Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 22

Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 22
Björn Ástmundsson FRAMKVÆMDASTJÓRI Reykjalundur í dag 1. INNGANGUR: Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar á Reykjalundi, ekki aðeins á ytra útliti staðarins heldur einnig á starfseminni innan veggja. Reykjalundur hefur breyst úr vinnuheimili berklasjúklinga í alhliða endur- hæfingarstofnun, þó með þá sérstöðu meðal slíkra, að vinnuleg endurhæfing, afjjreyingar- störf og vernduð vinna skipa hér sérstakan sess jafnhliða þeim endurliæfingaraðferðum, sem beitt er annars staðar. Með þessu er jafnframt sagt, að mikil breyting hefur orðið á eðli sjúk- dóma þess fólks, er hér vistast. Reykjalundur hefur opnað dyr sínar öllum þeim, sem endur- hæfingar þarfnast og aðferðir til iækninga verða jafn margar og fjölbreytilegar og fólkið, sem hingað leitar hjálpar. En stofnunin hefur einnig breyst á annan hátt. Með stofnun á ég hér ekki einungis við þau húsakynni, sem skapa hinn ytri ramma heldur einnig þá, sent þar starfa og veita staðnum það yfirbragð, sem lagt er til grundvallar mats á því, hvort stofn- unin ræki hlutverk sitt vel eða illa. Menn koma og fara eins og gengur og enda þótt Reykjalundur Itafi átt því láni að fagna, að þeir sem hingað ráðast kjósa oft að eyða hér starfsævi sinni, þá verður breytingin tilfinn- anlegri þegar slíkir starfsmenn hverfa af staðn- um. Árið 1972 lét Oddur Ólafsson yfirlæknir að fullu af störfum á Reykjalundi enda þótt öryrkjar hafi síðar notið starfskrafta hans og nú í ársbyrjun 1977 hætti Árni Einarsson fram- kvæmdastjóri fyrir aldurs sakir eftir tæpra þriggja áratuga starf. Báðir stóðu þessir menn á melnum milli herskálanna árið 1944 og gerðu áætlanir, sem þeir síðan áttu að öðrum ógleymdum, mikinn þátt í að framkvæma. Það hriktir í þegar þessir máttarstólpar hverfa rir starfi og dagleg viðvera þeirra hættir að vera þáttur í yfirbragði stofnunarinnar. Breytingin á starfsemi Reykjalundar sem sjúkrastofnunar kallar líka á breytingar á starfsháttum Reykjalundar sem iðnfyrirtækis. Réttara væri að segja, að iðnaðurinn hafi orðið að aðlaga sig vinnuhæfni vistmanna, sem í stórurn dráttum er lakari en áður var, en það gerir aftur auknar kröfur til þess liluta iðnrekstursins sem ætlað er að styðja fjárhags- lega við bakið á öryrkjavinnunni. 20 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.