Reykjalundur - 01.10.1977, Síða 24

Reykjalundur - 01.10.1977, Síða 24
við eldhúsið með algjöra endurnýjun tækja- búnaðar fyrir augum. Þeirri endurnýjun er nú lokið og getur Reykjalundur nú státað af einhverju fullkomnasta eldhúsi, sem völ er á fyrir stofnun þessarar stærðar. I byrjun árs 1974 var nýtt verksmiðjuhús tekið í notkun. Stendur sú bygging nyrst af húsum staðarins og tengist stóru lagersvæði. Upphaflega stóð til að þarna yrði vatnsröra- og filmuframleiðsla til húsa ásamt innilager af fullunnum vörurn. En framleiðsla sú, sent þarna er hýst, hefur stóraukist á síðustu árum og þurfti húsrýmið allt og þarf meira til. Lager fyrir fullunnar vörur var því settur upp í vinnuskála þeim, sem röra- og filmudeild var í áður. Söluskrifstofa var einnig flutt í þetta hús og starfar nú í eðlilegum tengslum við framleiðsludeildirnar. Þessa dagana er unnið að innréttingu á skrifstofuhúsnæði, sem er í nýbyggingu ofan á núverandi skrifstofu- og lagerhúsi. Er þar með risin síðasta nýbygging- in, sem áformað var að reisa samkvæmt áður- nefndri áætlun um alhliða stækkun Reykja- lundar. Standa vonir til að þangað sé hægt að flytja skrifstofustarfsemina um næstu áramót. Núverandi skrifstofuhúsnæði og lagarpláss ásamt „Bíóhúsi“ verður að öllum líkindum tekið undir endurhæfingarþjónustu og losnar þá húsnæðið í aðalbyggingunni, sem hýsir þessa starfsemi nú. Er því ekki öll nótt úti enn um að einhver fjölgun vistrýma fáist þegar framkvæmdaáætluninni er að fullu lokið. 3. HEILSUGÆSLUSTÖÐ Á REYKJALUNDI I áætlun þeirri, sem samþykkt var á lands- fundinum á Akureyri 1971, var gert ráð fyrir verulegri stækkun læknastöðvar, þar sem J)vottahúsið og saumastofa flyttu í húsnæði, sem rýmdist við framangreindar nýbyggingar. En nú kom annað og rneira mál til sögunnar: Heilsugæslustöð á Reykjalundi. Með lögurn um heilbrigðisþjónustu nr. 56/1973 er gerð gjörbreyting á fyrirkomulagi læknisþjónustu í landinu. Þar segir í 14. gr. „Setja skal á stofn heilsugæslustöðvar til þess að annast heilsu- gæslu samkvæmt löngum þessum. Þar sem að- stæður leyfa, skal heilsugæslustöð vera í starfs- tengslum við sjúkrahús og þá ávallt rekin sem hluti af því, og í sömu byggingu sé jiess kostur. Þar sem sjúkrahús er fyrir og afráðið er, að stofna heilsugæslustöð, skal byggja stöðina í starfstengslum við sjúkrahúsið, Jsannig að þjónustudeildir og starfslið nýtist fyrir hvort tveggj a“. Þar segir ennfremur að heilsugæslustöð skuli vera á Reykjalundi. Héraðslæknir Ála- fosslæknisumdæmis hefur haft aðsetur á Reykjalundi allt frá árinu 1967 og hefur starf- að í nánum tengslum við lækna, hjúkrunar- og Jjjónustudeildir Reykjalundar. Má Jsví segja að vísir að Jaessu, nú lögmæta, fyrirkomu- lagi hafi verið hér fyrir, og við heimamenn leyfum okkur að gæla örlítið við j)á hugmynd, að fyrirkomulagið á Reykjalundi hafi verið kveikjan að því, sem nú er verið að koma á um land allt. En lögin um heilbrigðisjtjónustu gera líka miklar kröfur til þeirra stofnana, sem gert er að hýsa lieilsugæslustöð. Hvað Reykjalundi viðvíkur höfðu fyrirmæli jiessara laga í för með sér breytingar á stjórn stofnun- arinnar, þannig að inn í stjórnina koma full- trúi sveitarfélagsins og fulltrúi frá sérstaklega kjörnu starfsmannaráði í stað þeirra tveggja stjórnarmanna sem kjörnir voru af félagi vist- manna á Reykjalundi, Sjálfsvörn. Ennfremur verður nú að gera aðrar kröfur til J^ess húsrýmis sem læknum héraðisins er ætlað. I stað starfsaðstöðu héraðslæknis, sem samkvæmt orðanna hljóðan hefur á sér blæ bráðabirgðafyrirkomulags, verður nú að gera ráð fyrir varanlegri aðstöðu tveggja heilsu- gæslulækna ásarnt starfsfólki. Stækkun lækna- stöðvar er því orðin meira mál en lillögur þær, er lágu fyrir á landsfundinum 1971 gerðu ráð fyrir. Er þetta er ritað eru framkvæmdir i „LENGJU“ að hefjast. Hverfur jarðhæðin 22 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.