Reykjalundur - 01.10.1977, Page 28

Reykjalundur - 01.10.1977, Page 28
inn en vaka ber yfir því að þeir, sem mesta þörf liafa fyrir þá endurhæfingaraðstöðu, sem hér er, fái notið hennar. 5. REKSTUR SJÚKRAHÚSSINS Rekstur sjúkrahúss á íslandi getur aldrei gengið vel heldur einungis mismunandi illa. Breytingin úr vinnuhæli fyrir berklasjúklinga í alhliða endurhæfingarstofnun hefur verið Reykjalundi erfið, ekki einungis vegna breyttra þarfa á húsrými eða kaupa á tækjabúnaði, heldur vegna þeirrar aukningar á starfsliði, sem þessu fylgdi, aukningar á sérmenntuðu fólki og þar af leiðandi dýrari starfskrafti. Launakostnaður á sjúkrahúsinu nú er urn helmingur heildarútgjalda og veruleg ljölgun starfsfólks segir Jdví fljótt til sín. Nú verður að ætla að þessi breyting sé heilbrigðisyfir- vöklum í landinu velþóknanleg og þeim sé vel kunnugt um gang mála, enda hefur nefnd þeirri er ákvarðar sjúkrahúsum daggjöld af almannafé jafnan verið greint frá fyrirhuguð- urn breytingum eftir jiví, sem þær hafa komið til framkvæmda. Þessi breyting liefur ekki orðið skyndilega heldur er um hægfara þróun að ræða. Sarnt vantar mikið upp á að Reykja- lundi hafi verið ákvarðaðar tekjur til samrærn- is við þá þjónustu sem veitt er á hverjum tíma og þann kostnað, sem í er lagt. Mun það þó almennt viðurkennt af jjeim er til jtessara mála jjekkja, að Reykjalundur sé ekki þungur baggi á ríkiskassanum miðað við margar aðrar stofn- anir. Á síðasta ári varð um 30 milljóna króna halli á rekstri heimilisins en var árið 1975 um 15 milljónir. Enda jiótt ársfjórðnngslegar rekstursskýrslur væru sendar inn og nefndinni eða starfsliði hennar gert ljóst að hverju stefndi voru viðbrögð engin. Mér er nær að halda að sú vinna, sem lögð er í slík uppgjör og greinargerðir sé unnin fyrir gýg, jtar sem jretta sé ekki lesið og nnnið í hendur dag- gjaldanefndar til notkunar sem hjálpargagn við ákvörðun daggjalda. Ríkisspítalarnir hafa nú verið teknir út úr daggjaldakerfinu þannig að nefndin ákvarðar nú einungis sjúkrahús- um sveitarfélaga og einkastofnunum tekjur í daggjaldaformi. Ekki er jjað ætlun mín að hallmæla daggjaldakerfinu sem slíku, en jjað verður að vera virkt og réttlátt. Til jjess að svo megi verða þarf að skapa nefndinni við- unandi starfsgrnndvöll og nægan starfskraft, til að vinna úr fengnum upplýsingum og ann- ast eftirlit og athuganir á stofnunum sjálfum. Við á Reykjalundi sendum í júlímánuði inn rekstursyfirlit yfir fyrstu sex mánuði ársins ásamt greinargerð um starfsemi stofnunarinn- ar í dag. Nokkur úrlausn fékkst við næstu tit- hlutun daggjaldanefndar, en ]jó hvergi full- nægjandi. Skortir þar einkum á, að halli frá síðasta ári verði greiddur upp, en halli fyrra árs er greiddur upp með ákveðnu halladag- gjaldi og hefur í flestum tilvikum verið að fullu greiddur stofnunum í landinu á fyrstu sex mánuðum ársins, en okkur er gert að dreifa greiðslu hans á árið allt. Reykjalundur gerir ekki kröfu til Jtess að vera settur á liærri stall að þessu leyti en aðrar heilbrigðisstofn- anir í landinu, en að njóta jafnréttis og sann- girni er okkur lífsnauðsyn. 6. LOKAORÐ Ég hef hér leitast við að gefa yfirlit yfir starfsemi Reykjalundar í dag, þær fram- kvæmdir, sem unnið hefur verið að á undan- förnum árum og jjað, sem fyrirhugað er áð gera á næstunni. Inn í þetta hefur síðan fléttast frásögn um ýmis dægurmál, sem hvíla jjungt á huganum og rennur úr pennanum óafvitað, enda Jjótt ýmislegt annað mætti tína til, sem varpaði betur ljósi á starfsemi Reykjalundar í dag. En j>að verður að bíða betri tíma. 26 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.