Reykjalundur - 01.10.1977, Side 29

Reykjalundur - 01.10.1977, Side 29
Kári Sigurbergsson LÆKNIR Erfðir og umhverfi Heilbrigði er lítið orð, sem við notum oft í daglegu tali, en samt er erfitt að skilgreina þetta orð. Merking þess verður dýpri, eftir því sem við veltum því lengur fyrir okkur. Líkamleg heilbrigði er í rauninni mjög flókið ástand. Þetta táknar annars vegar, að innra jafnvægi líkamsstarfseminnar helst í skorðum og hins vegar, að ytri áhrif valda ekki meiri háttar röskun, svo að athöfn og íhugun verða innan eðlilegra marka. Orsakir sjúkdóms eru margþættar en oft má rekja hér tvo meginþætti. A aðra hönd þann, sem við rekjum til forfeðranna, erfð- anna, en á hina, þann þráðinn, sem rakinn verður til ytri áhrifa eða áreitni. Flestir kannast við einhverja kvilla eða sjúk- dórna, sem ganga í ættir, eða erfast samkvæmt erfðalögmálum Mendels, þekkt dæmi urn slík- an sjúkdóm, er t.d. dreyrasýki. Hreinn erfða- sjúkdómur er sjúkdómur, sem menn fá án til- lits til umhverfis. Erfðasjúkdómum eða afleið- ingum þeirra, er tíðum hægt að halda í skefj- um með ýmsum ráðum, en sjúkdómurinn sjálf- ur verður ekki sniðgenginn, vegna þess að hann er arfbundinn. Við þekkjum öll fjölda sjúkdóma, sem eiga rót sína að rekja til ytri ástæðna, og er hér átt við hvers konar utanaðkomandi áhrif, t.tl. hita, kulda, geislun, efnaverkun, afleiðingar sýkingar og áverka. f þessum flokki sjúkdóma er t.d. kvef, sem veirur vaida og flestir hafa fengið einhvern tíma á ævinni. Orsök sjúk- dóma er þó nær einatt ákaflega margslungið samspil erfða og ytri áhrifa, fólk er t.d. mjög misjafnlega kvefsækið. f ónæmisfræði koma fyrir hugtökin mótefni og mótefnisvaki. Til nokkurrar skýringar á Jsessum hugtökum má nefna, að eggjahvítuefni á yfirborði sýkils getur verið mótefnisvaki. Ef ákveðinn sýkill kemst í snertingu við ónæmis- kerfi líkamans, myndar líkaminn gjarnan mót- efni gegn mótefnisvökum sýkilsins, en síðan lamar mótefnið sýkilinn eða gerir út af við hann. Líkaminn myndar þannig oft mótefni gegn frantandi eggjahvítuefni eða mótefnis- vökum. Til eru einstaklingar, sem mynda ófullnægj- andi mótefni gegn ákveðnum sýklum. Veik- indi, sem hljótast af Jjví, má bæði rekja til minnkaðrar mótstöðu og til Jsess, að einstak- lingurinn komst í snertingu við sýkilinn, sem hann hafði litlar varnir gegn. Leiðir til Jjess að hindra veikindi af Jæssum sökum, geta verið j)ær, að bæta varnir þessa einstaklings, REYKJALUNDUR 27

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.