Reykjalundur - 01.10.1977, Page 32

Reykjalundur - 01.10.1977, Page 32
sjúkrahússins og telst hver menntunarstétt í þessu sambandi ein starfsstétt“. Þá er talað um ýmsar reglur sem kosið er eftir þar á meðal það, að ef merkt er við fleiri en einn úr sömu starfsstétt þá er atkvæðaseðill ógildur. Síðan segir ,,í starfsmannaráði skulu sitja 7 fulltrúar. I fyrsta skipti sem kosið er, skulu 4 þeir er flest atkvæði fá, kosnir lil fjögurra ára en hinir 3 til tveggja ára, þannig að aldrei sé skipt um alla ráðsmenn samtímis.“ Eins og sjá má eru þarna nýmæli á ferðinni sem jafna rétt fólks. Reglugerðin tryggir það eins og verða má að starfsstéttir vinni saman að sameiginlegum áhugamálum á sínum vinnustað. Svo er aftur annað mál hvernig til tekst hjá stjórninni að koma sínum málum fram eða yfirleitt að hafa eitthvað til málanna að leggja á hverjum stað. Eins og margir vita er starfsemi Reykja- lundar mjög sérstæð. Nú er þar rekið sjúkra- hús með mjög góðri endurhæfingu, sjúkra- þjálfun, iðjuþjálfun, sundaðstöðu o.fl. Þar er heilsugæslustöð fyrir víðlent læknishérað. Einnig er rekinn umfangsmikill iðnaður á staðnum. Allt er þetta rekið sem ein heild. Það er í raun og veru mjög gaman að hugleiða hvernig þetta gengur fyrir sig. En um það verður ekki fjallað hér. Eins og áður sagði var kosið í starfsmanna- ráð Reykjalundar 29. apríl 1974. Var það gert eftir ýtarlega yfirvegun þáverandi Vinnuheim- ilisstjórnar og þá ákveðið að allir starfsmenn Reykjalundar væru þar jafnir, þó „Reglugerð um starfsmannaráð sjúkrahúsa" gerði ekki sér- staklega ráð fyrir svo mörgum og alls óskyldum starfsgreinum eins og eru á Reykjalundi. Síðan kosið var fyrst eru liðin þrjú ár og búið að skipta um hluta af stjórninni samkvæmt reglu- gerðinni og liefur þetta gengið friðsamlega fyr- ir sig. Aftur á móti má eflaust finna að því, hve fá mál hafa verið tekin til meðferðar í ráðinu. Því er þá til að svara að stutt er síðan starfið hófst, aðeins um þrjú ár. Skal nú til fróðleiks geta þeirra mála, sem starfsmanna- ráð hefur átt aðild að eða beitt sér fyrir: Fyrsta mál, sem upp var tekið, var um ráðn- ingu og uppsögn starfsfólks. Talið var að það væri hagur beggja, starfsliðs og fyrirtækis, að um skriflegan samning væri að ræða. Nú er þetta komið til framkvæmda. Næst var at- hugun á áhuga starfsfólks um að halda sam- eiginlega árshátíð. Kosin var nefnd í málið. Síðan er búið að halda þrjár árshátíðir með mikilli aðsókn og við almenna ánægju. Rætt var um þörf á að koma upp sameiginlegri barnagæslu — eða barnaheimili á vegum Reykjalundar. Eæru þar sarnan hagsmunir starfsliðs og stofnunar. Reykjalundur starf- rækir í dag barnaheimili fyrir 10—12 börn. Starfsmannaráð gekkst fyrir þvi að flutt voru tvö fræðsluerindi um skaðsemi tóbaks- reykinga. Allt í allt hefur starfsmannaráð gengist fyrir 3 almennum fundum, þar sem fjallað hefur verið um starfsemi stofnunar- innar. Stjórnendur hafa kynnt það sem á að framkvæma á staðnum hverju sinni, lýst af- komu liðins árs, einnig hefur verið fjallað um samskipti starfsliðs og sjúklinga og skýrt frá breytingum á sjúkrahúsi o.fl. o.fl. Að sjálfsögðu er fulltrúi starfsmannaráðs löngu tekinn til starfa í Vinnuheimilisstjórn. Einnig var á sínum tíma kosinn fulltrúi í Barnaheimilisnefnd. Á döfinni er að bjóða myndlistarmönnum að sýna málverk í sölum Reykjalundar. (Verð- ur væntanlega nýlokið sýningu á vatnslita- myndum eftir Ragnar Lár. er þetta birtist). Á almennum fundi nú í maí s.l. var rætt um möguleika á sameiginlegum vöruinnkaup- um starfsfólks, það mál er í athugun. Eins og sjá má af þessari upptalningu hefur lífsmark verið með starfsmannaráði. Vonandi verður svo áfram, því verkefni eru næg. Ég vil að lokum þakka ritnefnd „Reykja- lundar“ það tækifæri, sem starfsmannaráð fékk til að kynna starfsemi sína. 20. júlí 1977. 30 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.