Reykjalundur - 01.10.1977, Side 44
SIGURÐUR SIGURÐSSON
F. 7. 2. 1912 - D. 15. 1. 1971
Sigurður var fæddur í
Reykjavík, yngsta barn hjón-
anna Sigurðar Péturssonar
fangavarðar og f. k. h. Guð-
rúnar Gilsdóttur. Móðir hans
dó skömmu eftir fæðingu
hans. Tók þá systir hennar,
Sigríður, við húsmóðurstarf-
inu og varð hún stjúpa hans.
Sigurður ólst upp í tugt-
húsinu við Skólavörðustíg
og var alla tíð síðan kenndur
við það meðal kunningja
sinna, sem að jafnaði kölluðu
hann aðeins Sigga tugt.
Á bernskuárum lians var
bílaöldin að renna upp hér
á landi og varð hann fljóttt
lieillaður af þeirri tækni.
Hann mun vart hafa verið
meira en 12 ára, þegar hann
var farinn að aka bílum um
götur Reykjavíkur. Skömmu
síðar fór Iiann að vinna við
bílavíðgerðir og gerðist bif-
vélavirki hjá Sveini Egils-
syni. Um 1932 hélt hann til
Danmerkur til frekara náms
í faginu. Þar var hann í þrjú
eða fjögur ár og lauk þar
sérnámi í réttingum og log-
suðu. Varð hann mjög fær á
þeim sviðum. Á árunum fyrir
síðari heimsstyrjöldina var
minna um það en nú er, að
pantaðir væru varahlutir ef
eitthvað bilaði eða dældaðist
í yfirbyggingu bíla, heldur
lögð meiri vinna í réttingar
og viðgerðir. Sigurður var
mjög laginn og útsjónarsam-
ur við allt slíkt, enda hafði
Irann ætíð mikinn áhuga á
vélum og tækni.
Á yngri árum sínum stund-
aði Sigurður mjög knatt-
spyrnu og lék m.a. í nokkur
ár stöðu vinstri bakvarðar í
meistaraflokki Fram. Hann
var alla tíð mikill Framari og
fylgdist af áhuga með gangi
félagsins á hverjum tíma.
' Árið 1947 veiktist hann af
berklum og var þá rúmt ár
á Vífilsstöðum. Fé>r hann þá
aftur að vinna, en innan
fárra ára var hann aftur kom-
inn á Vífilsstaði og eftir það
var hann lengst af á Reykja-
lundi eða Vífilsstöðum og
síðustu 16 árin var hann al-
farið á Vífilsstöðum.
Hann var fróður og minn-
ugur eg skemmtilegur í við-
ræðu. Hann las mjög mikið
og var því víða heima, ekki
síst í margs konar tæknimál-
um. Einnig hafði hann mik-
inn áhuga á alþjóðlegum
stjórnmálum og fylgdist vel
með á því sviði.
Á Vífilsstöðum er allmikið
og gott bókasafn, sem alla tíð
hefir verið í eigu og umsjá
sjúklinganna sjálfra. Allmörg
síðustu ár sín annaðist Sig-
urður um þetta bókasafn og
fórst það vel úr hendi. Sá
hann bæði um útlán og
margskonar viðgerðir á bók-
um safnsins og viðhald
þeirra.
I Við Siggi vorum saman
hér á Vífilsstöðum síðustu
16 árin og höfðum mikið og
margt saman að sælda, btéði
viðvíkjandi bókasafninu og
öðrum félagsmálastörfum.
Milli okkar skapaðist inni-
leg vinátta og margt og mik-
ið ræddum við saman, þótt
ekki værum við ætíð á einu
máli. Hann liafði skemmti-
lega kýmnigáfu og við áttum
ótaldar ánægjustundir sam-
an.
Ég vil að lokum þakka
honum fyrir alla okkar sam-
veru og viðkynningu og ég
hefi þá trú, að við munum
síðar eiga eftir að hittast
handan við tjaldið mikla,
þar sem ég þykist vita, að
þeir muni hafa hitst vinirnir,
hann og Haukur pressari.
Skúli Jensson.
42
REYK JAI.UNDUR