Reykjalundur - 01.10.1977, Blaðsíða 45
Vinnustofur S.Í.B.S. á Kristneshæli hætta störfum
20. þing S.Í.B.S. var lialdið í Reykjalundí
í september 1976, eða um svipað leyti og rit
þetta var fullprentað það árið.
Meðal þess, sem þar var samþykkt, og telja
verður fréttnæmt hér, er sii ákvörðun þings-
ins, að leggja skuli niður starfsemi Vinnu-
stofanna að Kristnesi, sem þá höfðu verið
starfræktar i rúma tvo áratugi.
Er þessi ákvörðun lýsandi dæmi um þá
þróun, sem orðið hefir á þessu árabili í bar-
áttunni gegn berklaveikinni.
Um svipað leyti og S.Í.B.S. ákvað að koma
á fót vinnuaðstöðu fyrir berklasjúklinga á
Kristneshæli, með svipuðu sniði og komið var
á Reykjalundi, og einnig að nokkru leyti á
Vífilsstaðahæli, voru allar þessar stofnanir
fullsetnar af berklasjúklingum.
Þörfin fyrir endurhæfingu berklasjúkling-
anna, hvar sem þeir voru á landinu, var því
ærið brýn, og Jrví nauðsyn mikil, að engum
væri mismunað í Jreim efnum.
Byggði sambandið hús fyrir verkstjóra
vinnustofanna að Kristnesi, og fékk inni á hæl-
inu fyrir vinnuaðstöðu sjúklinganna þar, enda
var yfirlæknir Kristneshælis Snorri Ólafsson
og stjórnvöld rnjög jákvæð í stuðningi sínum
við þetta framtak sambandsins.
Sú ánægjulega þróun hefir átt sér stað í
baráttunni gegn berklaveikinni, að hún er
REYKJALUNDUR
ekki lengur sá bölvaldur, sem hún áður var,
og yfirfull berklahæli eru ekki lengur fyrir
hendi.
Því miður getum við Jró ekki sagt í dag, að
berklaveikinni hafi verið útrýmt.
Enn sýkist fólk af berklum, en þó ekki í
stærri mæli en svo, að Jreir sem þurfa á liælis-
vist að halda í dag, eru allir sendir á Vífils-
staðahæli.
Kristneshælið liefir því breyst að Jressu leyti,
að Jiar er nú meir um langlegusjúklinga að
ræða af öðrurn sökum en berklaveiki.
Hefir þörfin fyrir vinnuaðstöðu á hælinu
fyrir sjúklingana þar orðið önnur og minnkað
verulega á undanförnum árum.
Að vísu eru enn sjúklingar á Kristneshæli,
sem eitthvert vinnuþrek hafa, og er Jtað von
sambandsins, að Jrær vinnufúsu hendur fái
Jrar störf við sitt hæfi, enda gert ráð fyrir því
um leið og vinnustofurnar voru lagðar niður
á Jtessu ári.
Allar vélar og læki, auk efnis, sem tilheyrðu
vinnustofunum, eru nú eign félags sjúklinga
Kristneshælis, Sjálfsvarnar.
Á þessu ári seldi S.Í.B.S. Kristneshæli verk-
stjórahús sitt á staðnum, og skal andvirði þess
koma félögum S.Í.B.S. á Norðurlandi til Jieirra
nota, er þeir sjálfir óska.
43
L