Morgunblaðið - 21.05.2015, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.05.2015, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is Þeir sem b óka ferð til Mallorca í maí fá frítt fyrir alla fjölsky lduna í Aqualand, á meðan birgðir end ast. KRAKKARNIR ELSKA MALLORCA! Nemendur og starfsfólk Ölduselsskóla í Breið- holti og aðrir velunnarar glöddust í gær í tilefni af 40 ára afmæli skólans. Grillaðar voru pylsur og boðið upp á risastóra afmælisköku sem skolað var niður með safa eða mjólk. Auk þess var fjölmargt í boði til afþrey- ingar og skemmtunar eins og t.d. hoppkastalar, bubbluboltar, kajakróður í sundlauginni, hjóla- skoðun, teygjutvist, snúsnú og söngatriði. Fertugsafmæli Ölduselsskóla fagnað í gær Morgunblaðið/Styrmir Kári Fjölbreytt afmælishátíð með afþreyingu og veitingum í Breiðholtinu Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kveðst stefna að því að afnema tolla á fatnað og skó, jafnvel strax í haust. Á næstu dögum er von á skýrslu starfshóps um tolla- mál. Bjarni kvaðst hafa óskað eftir því að skoðuð yrðu áhrif af afnámi tolla með sérstakri áherslu á aðra tolla en lagðir eru á matvæli. Hann sagði ekki fjarri lagi að flokka tolla í tvennt, þ.e. tolla á matvæli og tolla á iðnaðarvörur. Þar undir eru m.a. föt, skór og alls konar aðrar vörur. „Ég er þeirrar skoðunar að það sé fullt tilefni til þess að taka tolla á iðn- aðarvörurnar til sérstakrar skoðun- ar,“ sagði Bjarni. Hann sagði að starfshópurinn hefði m.a. skoðað áhrif af afnámi tolla af iðnaðar- vöruhlutanum og hvaða áhrif það myndi hafa á tekjur ríkissjóðs að afnema tolla af fötum og skóm. Einnig til hvaða sjónarmiða þyrfti að líta ef ætlunin væri að afnema alla tolla af iðnaðarvörum, t.d. með hlið- sjón af samningsstöðu í fríverslunar- samningum. Bjarni sagði nokkuð önnur lögmál gilda um tolla á matvöru. Við værum stórt matvælaútflutningsland og því gæti komið til skoðunar sjónarmið um gagnkvæmar tollaívilnanir í við- ræðum við önnur ríki. Einnig væru tollar á matvæli fremur hugsaðir sem verndartollar heldur en ætti við um tolla á iðnaðarvörurnar. Bjarni kvaðst aðspurður telja að það ætti að koma til skoðunar að af- nema alla tolla. Hann sagði að starfs- hópnum hefði verið falið að leggja mat á slíkt skref. „Það er alveg skýrt í mínum huga að það myndi auka framleiðni í land- inu. Það myndi draga úr bjögun á verðmyndun, það myndi styrkja samkeppnishæfni landsins og ávinn- ingurinn af slíku tel ég að muni vinna upp tekjutap til skamms tíma,“ sagði Bjarni. Hann rifjaði upp orð fram- kvæmdastjóra OECD um að það væri gott í sjálfu sér að afnema tolla. Það væri gott fyrir friðinn þegar ríki afvopnuðust og afnám tolla væri gott fyrir viðskiptin. Tollar 5,5 milljarðar í ár Í fjárlögum 2015 er gert ráð fyrir að tollar skili 5,5 milljörðum króna á þessu ári í ríkissjóð. Í ársskýrslu Tollstjóra fyrir árið 2013 kemur m.a. fram að heildaraðflutningsgjöld sem lögð voru á það ár hafi verið samtals rétt tæplega 244 milljarðar króna. Þar af voru virðisaukaskattur og bensín-, olíu- og kolefnisgjald rúm- lega 84% eða rúmir 204,5 milljarðar króna. Almennur tollur nam um 8,542 milljörðum króna árið 2013. Hann hefur farið lækkandi síðan þá. Sam- kvæmt upplýsingum frá embætti Tollstjóra bera 2.580 vöruflokkar toll af alls 8.593 vöruflokkum tollskrár. Þannig bera t.d. landbúnaðarafurðir og unnin matvæli 30% toll ásamt magntolli, ýmis drykkjarvara ber 20% toll, snyrtivörur og sápur bera 10% toll, fatnaður ber 15% toll, kæli- skápar, þvottavélar og sjónvörp bera 7,5% toll og DVD og CD diskar bera 10% toll. Bandaríkin eru það land sem hvað mestur tollskyldur innflutningur er frá til Íslands, ef frá eru taldar land- búnaðarafurðir sem koma frá lönd- um innan Evrópusambandsins. Stefnir að afnámi tolla á föt og skó  Von er á skýrslu starfshóps um tollamál á næstu dögum  Tollar á iðnaðarvörur voru teknir til sér- stakrar skoðunar  Fjármálaráðherra telur að margt jákvætt myndi leiða af því að afnema alla tolla Bjarni Benediktsson Alþingismenn höfðu talað í 13 klukkustundir og 24 mínútur undir liðnum „Fundarstjórn forseta“ frá því að síðari umræða um ramma- áætlun hófst þriðjudaginn 12. maí sl. og þar til um klukkan 20.30 í gær- kvöld. Alls höfðu alþingismenn stigið 703 sinnum í pontu til að tala um fundarstjórn forseta á þeim fimm þingfundum sem haldnir voru á þessu tímabili, samkvæmt upplýs- ingum frá skrifstofu Alþingis. Ræð- urnar um fundarstjórn forseta voru 29,5% ræðutímans á þessum þing- fundum. Þingfundur hinn 12. maí (105 fundur) stóð frá kl. 13.30 til mið- nættis eða í tíu og hálfa klukku- stund. Hinn 13. maí stóð 106. fundur frá kl. 15.01 til 19.11 eða í fjórar stundir og tíu mínútur. 107. fundur hinn 15. maí stóð frá kl. 10.33 til 19.54 eða í níu klukkustundir og 21 mínútu. Hinn 19. maí stóð 108 fund- ur frá kl. 13.30 til 23.28 eða í níu stundir og 58 mínútur. Þingfundur hófst svo kl. 10.01 í gærmorgun og hafði því staðið í tíu stundir og 29 mínútur þegar staðan var könnuð í gær. Þessir fimm þingfundir höfðu því alls staðið í 45 klukkustundir og 28 mínútur. gudni@mbl.is 703 ræður um fund- arstjórn  29,5% ræðutímans á fimm þingfundum Gestir Feneyjatvíæringsins í myndlist halda áfram að streyma í íslenska skálann, að skoða Moskuna, verk Christophs Büchel. Borgaryfirvöld höfðu farið fram á að fá í gær öll gögn um sýninguna og um afhelgun kirkj- unnar, sem Moskan er sett upp í, og ef þau væru ekki fullnægjandi var hótað að loka skálanum. Að sögn Bjarg- ar Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra Kynningar- miðstöðvar íslenskrar myndlistar, hafa borgaryfirvöld fengið öll gögn en höfðu ekki brugðist við þeim í gær- kvöldi. Talsverð umræða hefur verið um verkið í fjölmiðlum í Feneyjum síðustu daga. Fulltrúar kaþólsku kirkjunnar gagnrýna verkið og þá nálgast kosningar til borgar- stjórnar og hefur verkið verið dregið inn í þá umræðu, segir Björg. Samtök múslima í borginni hafa verið beitt þrýstingi um að stunda ekki bænahald í kirkjunni og brugðust þau við með því að senda frá sér fréttatilkynn- ingu og kváðust draga úr þátttöku sinni í verkinu og hafa ekki staðið fyrir tilbeiðslu í því undanfarna daga. „Það er svolítill múgæsingur í fjölmiðlum í borginni og iðulega farið með rangt mál,“ segir Björg. efi@mbl.is Moskan Verk Christophs Büchel í íslenska skálanum á tvíæringnum í Feneyjum er umdeilt og vekur athygli.  Beðið er svara frá yfir- völdum í Feneyjum Dregið úr bænahaldi í Moskunni Ljósmynd/Bjarni Grímsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.