Morgunblaðið - 21.05.2015, Síða 4

Morgunblaðið - 21.05.2015, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Framkvæmdum miðar vel við nýja hótelið á Siglufirði, Sigló Hótel, en þó næst ekki að opna það þann 1. júní nk. eins og að hafði verið stefnt. Róbert Guðfinnsson, athafnamaður á Siglufirði, áætlar að hótelið verði opnað um miðjan júní. Hótelherbergin verða 68 að sögn Róberts, þar af þrjár mismunandi svítur og 61 svokallað classic her- bergi, sem eru að meðaltali 23 fer- metrar að stærð, 4 deluxe herbergi sem eru um 29 fermetrar að stærð. Byggingin, sem er á tveimur hæð- um, er alls um 3.400 fermetrar. Sigríður María Róbertsdóttir (dóttir Róberts Guðfinnssonar), verður hótelstjóri Sigló Hótels og eiginmaður hennar, Finnur Yngvi Kristinsson, verður markaðsstjóri. Sigríður sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að bókanir fyrir sum- arið hefðu gengið mjög vel. „Við er- um að fá mjög góð viðbrögð. Það er talsvert síðan að mikið af fínum hóp- um bókaði sig hjá okkur og einmitt þessa dagana eru einstaklingarnir einnig að detta inn, en þeir eru alla jafna heldur síðar á ferðinni í bók- unum en hóparnir,“ sagði Sigríður. Ef marka má heimasíðu Sigló Hótels, siglohotel.is, og lýsingar á herbergjum og aðstæðum mun ekki væsa um gesti Sigló hótels. Verð á herbergjum er afar mis- munandi. Af handahófi var valin dagsetningin 1.-2. júlí 2015. Verð á sólarhring fyrir minni gerðina af tveggja manna herbergi er 30.198 kr., fyrir stærri gerðina af tveggja manna herbergi 39.672 kr., fyrir De- luxe Junior svítu er verðið 57.140 krónur og 87.338 fyrir Deluxe svítu með sjávarútsýni. Sigló Hótel verður opnað í júní Ljósmynd/Sigló Hótel Glæsilegt Nýja hótelið sem opnað verður um miðjan júní fær góð viðbrögð.  Nóttin frá 30 upp í 90 þúsund Malín Brand malin@mbl.is Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttarlögmaður og fyrrverandi dóm- ari við Hæstarétt Íslands flutti í gær erindi í Háskólanum í Reykjavík. Yf- irskrift erindisins var Hæstiréttur – Hvað er að og hvað þarf að gera til úrbóta? Jón Steinar hóf erindið á umfjöll- un um mikið álag á Hæstarétt og hvernig hann teldi það koma niður á gæðum vinnubragða dómara. „Ástandið hefur farið stöð- ugt versnandi, ekki bara með árun- um heldur áratugunum. Á árunum 2013 og 2014 voru ný mál á níunda hundrað og á árinu 2014 voru kveðn- ir upp 760 dómar í Hæstarétti Ís- lands. Í 695 málum sátu þrír dóm- arar eða í yfir 90% af öllum málunum sem voru dæmd á árinu. Þetta þýðir að einstakir dómarar í hverju máli hafa verið að dæma í allt að 350 dómsmálum. Dómari sem dæmir 350 mál yfir árið er að meðaltali að dæma í tveimur málum á hverjum einasta starfsdegi ársins,“ sagði Jón Steinar. Lögfræðileg samviska dómara Um andrúmsloftið í Hæstarétti sem Jón Steinar hefur áður lýst, m.a. í bók sinni sem kom út í fyrra, sagði hann í erindi sínu að líkja mætti við fjölskyldustemningu. Afstaða dóm- ara til hvers þeir vilja fá til liðs við sig mótist af því hverja þeir vilja fá í fjölskylduna. Sjálfur hafi hann ekki viljað taka þátt í fjölskyldustemning- unni og fyrir vikið verið óvinsæll á meðal annarra dómara. „Í fjölskipuðum dómi eiga menn að vinna vel saman og ef það er uppi ágreiningur eða mismunandi sjónar- mið um lagaatriði þá eiga menn að ræða þau í botn og skilja hvar ágreiningurinn liggur. En ef hann jafnast ekki og maður er áfram með aðra skoðun en hinir, hvaða skyldu hefur maður þá? Að skila sératkvæði auðvitað. Á maður að fara að greiða atkvæði gegn sinni eigin lögfræði- legu samvisku?“ Í því væri fólgin hin brýna verkskylda sem á öllum dóm- urum hvíldi. „Þetta ætti að vera aug- ljóst en þetta er ekki svona,“ sagði Jón Steinar. Hann sagði ennfremur að lögfræðingar væru oft hræddir við dómstólinn og bentu því ekki allt- af á þegar annmarkar væru á störf- um dómara, til dæmis þegar lög- menn fengju ekki þann tíma sem þeir þyrftu til málflutnings heldur væri þeim skammtaður tími af dóm- urum sem hefðu of mikið að gera. „Sá sem er að misbeita valdi, hann gerir það frekar gegn aðilum sem þegja alltaf þunnu hljóði þegar það er gert.“ Aðferð þagnarinnar Um ástæður þess að fáar gagn- rýnisraddir hafi heyrst um störf Hæstaréttar sagði Jón Steinar að rammgerður þagnarmúr væri um Hæstarétt. „Aðferð þeirra sem sitja þarna og stjórna þessu er aðferð þagnarinnar. Þeir leggja ekkert í að segja það sem satt er og þá skal þag- að og vonast til þess að þetta deyi nú út.“ Jón Steinar sagði ljóst að hið mikla álag á dómstólinn þyrfti að ræða, annars yrði ósamræmi í óvönduðum dómum. „Það virðist ekkert taka dagskipuninni fram. Sjáiði Al Thani-dóminn, bara sem dæmi um þetta. Sextán dögum eftir málflutning í því máli þá er kveðinn upp fimm núll dómur í Hæstarétti upp á 110 blaðsíður. Halda menn að þetta sé dómur sem sé skrifaður með þeim öguðu vinnubrögðum sem þarf til að skrifa dóma og komast að dómsniðurstöðu? Þessi dómur er stórkostlega gallaður að mínu mati. Ég er bara að tala um vinnubrögðin og forsendurnar.“ Þagnarmúr um Hæstarétt  Segir dómstóla reyna að ganga í augun á þjóðinni  Hæstaréttardómarar ættu aldrei að sitja í rétt- arfarsnefnd  Þörf sé á millidómsstigi Telur vinnubrögð og forsendur í Al Thani-málinu stórgölluð Morgunblaðið/Sverrir Hæstiréttur Jón Steinar segir mikilvægt að koma dómstólum á Íslandi í lag. Tillögur Jóns Steinars » Komið verði á millidóms- stigi. » Fimm dómarar sem allir dæma í öllum málum. » Hvert mál fari aðeins á tvö dómstig. » Dómarar beri persónulega ábyrgð á forsendum sínum. » Gera þurfi nauðsynlegar breytingar á reglum um skipan nýrra dómara. » Endurskipulag íslenskra dómstóla verði verkefni sem ekki sé flokkspólitískt. Jón Steinar Gunnlaugsson Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Hún flutti til Íslands þegar hún var fimm eða tíu ára gömul, líklega frá Skotlandi eða norð- arlega af Bretlandseyjum. Ævin var ekki löng. Hún lést rúmlega tvítug að aldri en dánarorsökin ligg- ur ekki fyrir. Með sér í gröfina tók hún m.a. tvær forláta brjóstnælur úr kop- ar en fyrir tilviljun færðist önnur þeirra að kinn henn- ar sem olli því að kjálkabein og vangi varðveittust í rúm 1100 ár. Fyrir vikið höfum við sem lifum á 21. öldinni fengið ómetanlega innsýn í líf þessarar víkingaald- arkonu sem lést í kringum árið 920. Hún er oftast kennd við flíkurnar sem hún fannst í sem voru bláar að lit og er því nefnd bláklædda konan. Undanfarið hafa miklar rannsóknir verið gerðar á öllu því sem tengist bláklæddu konunni og þær rannsóknir verða kynntar í Þjóðminjasafninu á laugardaginn þegar sýn- ing tengd henni verður opnuð. Einstök varðveisla á húð „Það sem er merkilegt við þennan fund er að kjálkinn og hluti kinnarinnar varðveittist í jörðu öll þessi ár. Þegar kinnin og koparinn lágu saman myndaðist efnafræðilegt ástand sem varð þess valdandi að holdið varðveittist. Þetta er einsdæmi á Íslandi og þó að víða væri leitað,“ segir Steinunn Kristjánsdóttir, pró- fessor við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnið. Starfsmenn Vegagerðarinnar fundu kuml bláklæddu konunnar árið 1938 við Litlu- Ketilsstaði í Hjaltastaðaþinghá. Hún var klædd í hefðbundinn víkingaklæðn- að en töluvert af fötum varðveittist. Fötin voru búin til á Íslandi því þau voru úr íslenskri ull en voru „indigó“ blá að lit og hafa verið lituð með innfluttum jurtum. Blár var samt frekar algengur litur á klæðnaði kvenna á þessum tíma. Það hafa textílrannsóknir sýnt fram á. Hún bar skart á sér sem var nokkuð fínt. Perlur í perlufestinni hennar höfðu sumar hverjar komið langt að, a.m.k. frá Miðjarð- arhafinu. Nælurnar eru líka innfluttar. Í kuml- inu fundust einnig hefðbundnir gripir eins og hnífur og annað hversdagslegt. Bræðingur ýmissa menningarstrauma „Þessi gröf, eins og svo margar aðrar sem hafa fundist frá þessum tíma, bera með sér að gripirnir koma víðs vegar að. Þær eru eins konar bræðingur ýmissa menningarstrauma sem hér voru,“ segir Steinunn. Hún bendir á að það hafi vissulega verið persónubundið hvað einstaklingar tóku með sér í gröfina, líkt og vopn og skartgripi. „Það sem varðveist hefur gefur okkur gott tækifæri til að vinna svona rannsóknir til að varpa ljósi á söguna,“ segir Steinunn. Niðurstöður frekari rannsókna, m.a. á DNA, eiga eftir að koma í ljós. Þá verður lík- lega hægt að svara því til hvaða háralit hún hafði. Kannski ljósan sem hefði farið vel við bláan klæðnað? Hulunni svipt af bláklæddu konunni  Konan sem fannst í kumli á Austurlandi árið 1938 dó líklega árið 920  Talin hafa flust til Íslands frá Skotlandi þegar hún var fimm til tíu ára gömul  Hún var klædd í bláar flíkur úr íslenskri ull Kjálkabein Einstakt þykir að húðtægjur af kjálka konunnar hafi varðveist í 1.100 ár. Steinunn Kristjánsdóttir SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan. Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur sínum náttúrulega lit. GERUM SÓLPALLINN EINS OG NÝJAN info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.