Morgunblaðið - 21.05.2015, Side 9

Morgunblaðið - 21.05.2015, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég er mjög bjartsýnn á að þetta tryggi framgang verkefnisins. Miðað við það sem þeir hafa fjárfest í und- irbúningi kæmi annað á óvart en að ákvörðun verði á jákvæðu nótunum,“ segir Friðrik Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Norðurþings, um þá niðurstöðu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) að samningar Landsvirkjunar og Landsnets við PCC um afhend- ingu raforku til áformaðs kísilvers á Bakka við Húsavík feli ekki í sér rík- isaðstoð. Fram hefur komið að PCC hefur unnið mikið að undirbúningi bygg- ingar verksmiðjunnar. Fyrirtækið hefur beðið eftir niðurstöðu ESA til að geta tekið endanlega ákvörðun um það hvort farið verði í fjárfest- inguna eða ekki. Friðrik telur að álit- ið losi um stóran tappa og vonast eft- ir ákvörðun PCC á næstunni. ESA komst að þeirri niðurstöðu að samningar Landsvirkjunar og Landsnets við PCC væru á markaðs- kjörum. Tekið er fram að samningur Landsvirkjunar sé arðsamur og skil- málar hans eins og einkarekið fyrir- tæki myndi samþykkja við sambæri- legar aðstæður. Friðrik Sigurðsson segir að upp- bygging á Bakka myndi hafa jákvæð áhrif á byggðina eftir áfallið sem varð þegar Vísir lokaði fiskverkun sinni fyrir ári. Áhugaverð störf skap- ist á nýjum stórum vinnustað á Bakka. „Þetta smitar út frá sér. Hugsanlega verður farið að byggja íbúðarhúsnæði á ný,“ segir Friðrik. Fullt skip af vinnubúðum LNS Saga sem er aðalverktaki við byggingu Þeistareykjavirkjunar er að koma sér fyrir á vinnustaðnum. Verið er að flytja stóra bygginga- krana frá Akureyrarhöfn og næstu daga er væntanlegt skip frá Noregi fulllestað af vinnubúðum. Bjartsýnn á fram- gang verkefnisins  ESA telur raf- orkusamninga ekki fela í sér ríkisaðstoð Ljósmynd/LNS Saga Flutningar Fullt skip af vinnubúð- um fyrir LNS Sögu er á leiðinni. Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911 www.facebook.com/spennandi Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16 NYDJ Gallabuxur - ný sending! „Krúnudjásn í konunglegum búningi“ Jónas Kristjánsson og Vésteinn Ólason sáu um útgáfuna. Æ D Á ó Sölvi Sveinsson Mbl. VÖNDUÐ OG VEGLEG ÚTSKRIFTARGJÖF Hið íslenzka fornritafélag Prins Póló er komið í nýjar umbúðir sem margir kannast við og fæst hið nýja Prins Póló aðeins í verslunum 10/11 í bili. 25 ár eru síðan heilsíðu- auglýsing birtist í Morgunblaðinu um að Prins Póló væri komið í nýjar um- búðir. Guðmundur Hafliðason, sem stendur vaktina í 10/11 á Kleppsvegi um leið og hann er búinn að bera út Morgunblaðið snemma morguns, segir að þónokkrir hafi komið í búð- ina bara til þess að kaupa sér hið nýja Prins Póló. „Hér hafa viðskiptavinir nánast komið hlaupandi inn og opna Prins Pólóið um leið og ég rétti þeim það yfir búðarborðið. Það rýkur út og hillurnar tæmast fljótt með þessu áframhaldi,“ segir Guðmundur ánægður með súkkulaðið og umbúð- irnar. benedikt@mbl.is Hátíðarútgáfa Prins Póló Ljósmynd/ Hafliði Breiðfjörð Hátíð í bæ Guðmundur Hafliðason, með hið nýja Prins Póló. Hjörvar Steinn Grétarssonvann Hannes Hlífar Stef-ánsson í 7. umferð semfram fór í Háuloftum Hörpunnar í gær og skaust við það einn í efsta sætið með 5 ½ vinning af sjö mögulegum. Umferðin hófst kl. 14 þar sem fyrir séð var ónæði af djass- tónleikum sem fram fóru í Hörpunni í gærkvöldi en Héðinn Steingrímsson og Guðmundur Kjartansson hófu skák sína þó á hefðbundna tímanum eða kl. 17. Skákinni lauk með sigri Héðins sem komst þar með upp við hlið Hjörvars. Baráttan um Íslandsmeistaratit- ilinn ætlar því að verða á milli Hjörv- ars Steins Grétarssonar og Héðins Steingrímssonar. Hjörvar hefur aldr- ei unnið landsliðsflokkinn á Skák- þingi Íslands en Héðinn Stein- grímsson varð Íslandsmeistari 15 ára gamall árið 1990 og vann svo í annað sinn árið 2011. Mikið hefur verið um óvænt úrslit og tilþrifin fjörleg. Í gær vann Sig- urður Daði Sigfússon Jóhann Hjart- arson í aðeins 22 leikjum og Lenka Ptacnikova lagði Henrik Danielssen. Þeir Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason hafa átt fremur erfitt upp- dráttar enda langt síðan þeir hafa teflt á þessum vettvangi. Mótið er lið- ur í undirbúningi þeirra fyrir þátt- töku gullaldarliðs Íslands á Evr- ópumóti landsliða sem fram hér á landi í nóvember nk. Jóhann vann Hannes Hlífar í vel tefldri skák í 5. umferð en tapaði í tveim næstu um- ferðum. Jón L. Árnason gerði stutt jafntefli í gær og hefur verið þreifa fyrir sér með byrjanir og annað og virkar hestil varkár í skákum sínum. Báðir hlotið 3 vinninga úr sjö skák- um. Óvenjulegur biskupsleikur Hannes Hlífar sem byrjaði mótið með krafi virðist hafa misst dampinn þegar hann tapaði maraþonskák sinni við Jóhann í 86 leikjum, rétt marði jafntefli í annarri maraþonskák í næstu umferð þegar hann tefldi við Lenku Ptacnikovu sem hefur teflt frísklega og frammistaða hennar kemur einna mest á óvart og einnig árangur Einars Hjalta Jenssonar sem er nálægt því að krækja sér í áfanga að alþjóðlegum meistaratititli. Hann vann Henrik Danielsen í 5. um- ferð í aðeins 24 leikjum. Óvenjulegur biskupsleikur, 9. Bf1xa6 gerði út- slagið í skákinni: Einar Hjalti Jensson – Henrik Danielsen Sikileyjarvörn 1. e4 d6 2. Rc3 c5 3. f4 Rc6 4. Rf3 a6 5. d4 cxd4 6. Rxd4 g6 7. Be3 Bg7 8. Rd5 Hb8 Upp er komin óvenjuleg staða í Dreka-afbrigði sikileyjarvarnarinnar. Næsti leikur Einars Hjalta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. 9. Bxa6!!? Það er ekki oft sem mönnum gefst kostur á því að leika biskupinum frá upphafsreitnum alveg út að endi- mörkum taflborðsins. 9. … e5 10. fxe5 Rxd4 11. Bxd4 bxa6 12. exd6 Dh4 13. Kf1 f6? Lokar menn svarts inni. Mun betra var 13. …. Kf8. 14. Df3 Bd7 15. h3 Kf7 16. Kg1 f5? Eftir þetta verður stöðu svarts ekki bjargað. Hann get barist áfram með 16. … He8 þó hvítur hafi meira en nægar bætur fyrir manninn með þrjú peð og öfluga stöðu. 17. Bxg7+ Kxg7 18. Dc3+! Kh6 Eða 18. … Rf6 19. g3! Dg5 20. h4 og riddarinn á f6 fellur. 19. Dxh8 Dxe4 20. Hd1 Dxc2 21. Kh2 Hxb2 22. Hhg1 Hb8 23. Rf6 Rxf6 24. Dxf6 – og svartur gafst upp. Í 8. umferð sem hefst kl. 17 í dag eigast við Héðinn og Einar Hjalti, Henrik og Hjörvar Steinn, Jón L. og Jóhann, Hannes og Bragi, Guð- mundur og Björn og Sigurður Daði og Lenka. Baráttan á milli Hjörvars og Héðins Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Gunnar Björnsson Toppbaráttan Hjörvar Steinn (t.v.) vann Hannes Hlífar Stefánsson í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.