Morgunblaðið - 21.05.2015, Page 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015
ólst ég upp. En eftir að ég varð full-
orðinn leiddist mér svolítið heima í
Marokkó og mig langaði að sjá
meira af heiminum. Fyrir tveimur
árum, þegar ég var tuttugu og
tveggja ára, fór ég því í háskólanám
til Montreal og bjó þar í eitt ár, en
systir mín býr líka þar. Eftir það
flutti ég mig yfir til Vancouver og
hef starfað þar síðan,“ segir Ismail.
Leið eins og hann væri
staddur við helgidóm
Fyrst eftir að Ismail kom til Ís-
lands dvaldi hann í þrjá daga í höf-
uðborginni og það sem vakt athygli
hans var að snemma á morgnana er
þar enginn á ferli nema ferðamenn.
„Íslendingar fara líka afskaplega
seint út á lífið, ég var hér um
helgina og enginn mætti á skemmti-
staðina fyrr en eftir klukkan eitt,“
segir hann og hlær. Hann skellti sér
síðan með nokkrum öðrum ferða-
mönnum hinn Gullna hring og einn-
ig fór hann í nokkurra daga ferð til
Víkur í Mýrdal.
„Það var sérlega fallegt að aka
meðfram suðurströnd Íslands, ég
var heillaður af fossunum, sér-
staklega Skógafossi, hann var kraft-
mikill og vakti hjá mér sérstakar til-
finningar. Mér leið eins og ég væri
staddur við helgidóm. Við fórum
líka í náttúrulaug og að lokum í
fjallgöngu á Eyjafjallajökul, en við
þurftum reyndar að snúa við vegna
veðurs, en það var samt mögnuð
upplifun.“
Hlakkar til að upplifa hvers-
dagslíf með heimamönnum
Ismail ætlar að dvelja á Íslandi
allt til júlíloka og hann mun starfa
sem sjálfboðaliði á þremur stöðum.
„Ég skráði mig sem sjálf-
boðaliða hjá samtökum sem heita
Workaway, og ég er mjög spenntur
fyrir þessu, af því ég veit að maður
kynnist heimafólki betur þegar
maður býr með því. Ég verð fyrst í
tvær vikur á bóndabæ á Norður-
landi, hjá Eydísi Magnúsdóttur og
Rúnari Gunnarssyni á bænum
Sölvanesi í Skagafirði. Þar mun ég
hjálpa til í sauðburði sem og við
ferðaþjónustuna sem þau reka. Síð-
an fer ég aftur til Reykjavíkur og
dvel þá tvær vikur í borginni og
verð svo heppinn að vera staddur
þar á þjóðhátíðardaginn 17. júní,
það verður gaman að upplifa hátíð-
arhöldin. En síðan mun ég starfa
sem sjálfboðaliði við tónlistarhátíð-
ina Secret Solstice í Reykjavík, en
eftir það fer ég til Patreksfjarðar,
til að vinna sem sjálfboðaliði á hos-
telinu Ráðagerði, hjá Öldu Davíðs-
dóttur. Ég hlakka til að upplifa
hversdagslíf með heimamönnum á
Íslandi.“
Íslensk miðnætursól og
ferðalag inn á við
Ismail finnst íslenskan spenn-
andi og framandi tungumál og hann
ætlar að gera sitt besta til að læra
svolítið í íslensku meðan hann dvel-
ur hér. Honum finnst ekkert mál þó
það sé kalt hér á landi, hann er van-
ur kulda í Kanada.
„En ég hlakka mjög til að vera
hér þegar sumarnæturnar eru
bjartar í júní, þegar aldrei kemur
nótt. Ég hlakka til að sjá miðnæt-
ursólina fyrir norðan. Ég valdi að
koma til Íslands af því að mig lang-
aði til að eiga tíma með sjálfum mér,
því ég er á þeim stað í lífi mínu að
mig langar að gera breytingar og
það er gott að vera í næði með sjálf-
um sér til að taka erfiðar ákvarð-
anir. Þessi Íslandsferð verður því
ekki síður ferðalag inn á við fyrir
mig, en ég held að Ísland sé einmitt
kjörinn staður fyrir slíkt.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vor Enn er snjór í fjöllum í Skagafirði þar sem Ismail starfar nú við að hjálpa til í sauðburði og við ferðaþjónustu.
Aðdáandi fossa Ismail er hrifinn af fossum, hér er hann hjá Gullfossi.
Reykjavík Ismail finnst fólk fara seint út að skemmta sér í höfuðborginni.
Fjallganga Ismail á leið á Eyjafjallajökul, en hann þurfti að snúa við.
1961 Afmæli Soffíu Hallgerðar Ólafsdóttur sem er til hægri á mynd.
1940-1945 Ungar konur brjóta
saman þvott af snúru.
1921-1923 Kristín Jónína Guð-
mundsdóttir (Nielsen)
Ljósmynd/Bjarnleifur Bjarnleifssson
Ljósmyndari/Ragnheiður Bjarnadóttir
(1912-2012) Ljósmynd/Karl Christian Nielsen
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegur 61 Kringlan Smáralind
Stúdentastjörnur og
stúdentarós 2015
Úrval af fallegum
útskriftargjöfum
kr. 20.500,- kr. 17.500,-
PIPA
R\TBW
A
•
SÍA
•
15210
3