Morgunblaðið - 21.05.2015, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 21.05.2015, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015 Samstarfsvett- vangur um Mat- vælalandið Ís- land býður til opinnar ráð- stefnu um tæki- færi í útflutningi matvæla í dag, fimmtudaginn 21. maí, á Hótel Sögu kl. 12:00-15:45. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Út- flutningur – til mikils að vinna. Ráðstefnunni er ætlað að vekja at- hygli á tækifærum til aukinnar verð- mætasköpunar í matvælageiranum með útflutningi, miðla reynslu og hvetja þannig fleiri til að vinna með markvissum hætti að því að sækja á erlendan markað með matvæla- afurðir. Á ráðstefnunni verða flutt þrjú er- indi um efnið og sagðar verða sex reynslusögur úr ýmsum áttum. Ráðstefnan er ókeypis og öllum opin en nauðsynlegt að skrá sig á vefnum www.si.is. Ráðstefna um út- flutning matvæla VIÐTAL Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Flugið til Íslands hefur gengið mjög vel og eiginlega betur en við áttum von á. Við byrjuðum með fimm ferðir á viku yfir 15 vikna tímabil en núna höfum við fjölgað ferðunum í sjö á viku og tímabilið nær yfir 21 viku,“ segir Jan Feenstra, markaðsstjóri Delta Air Lines á Norðurlöndunum og Hol- landi, í samtali við Morgunblaðið en flugfélagið hefur aukið sætaframboð sitt verulega síðan sumarflug hófst í júní árið 2011 á milli Keflavík- urflugvallar og John F. Kennedy- flugvallar í New York í Bandaríkj- unum. Fyrsta ferðin þetta árið var farin í byrjun mánaðarins, sem er mánuði fyrr en undanfarin sumur. Ákvað Delta að hefja sumarflugið fyrr til Íslands en annarra áfangastaða á Norðurlöndunum. Notast verður við stærri flugvélar í sumar en áður en frá 2011 hefur sætaframboðið hjá Delta aukist um rúm 170%. Áhugaverður áfangastaður Að undangengnum ítarlegum markaðsrannsóknum ákvað Delta að hefja flug til Íslands sumarið 2011. Feenstra segir það hafa verið gert sökum þess hve Ísland væri áhuga- verður áfangastaður og miklir möguleikar á tengiflugi til fjölda áfangastaða austan hafs og vestan. Hann segir, aðspurður, eldgosin árið 2010 í Fimmvörðuhálsi og Eyja- fjallajökli ekkert hafa haft með þessa ákvörðun að gera, þó að Ís- land hafi síðar meir orðið æ vinsælli áfangastaður meðal ferðamanna af þeim sökum. „Delta tekur sér góðan undirbún- ingstíma í að velja nýjan áfangastað og okkar viðskiptavinir sýndu því mikinn áhuga að geta flogið til Ís- lands,“ segir hann. Feenstra var staddur hér á landi ásamt Debbie Egerton, svæðisstjóra almannatengsla Delta í Evrópu, þar sem þau áttu fundi með umboðsaðila sínum hér á landi, ferðaþjónustufyr- irtækjum, flugmálayfirvöldum og fleirum. Aukinn áhugi Íslendinga Hann segir flugið til Íslands hafa gengið mjög vel á síðustu fjórum ár- um. Aukið sætaframboð og lengra tímabil sýni það og sanni. Einnig hafi nýr flugfloti gefið tækifæri á fjölgun ferða. „Við förum reglulega yfir stöðuna á mörkuðum okkar og ef flugið til Íslands held- ur áfram að ganga svona vel þá kemur Delta áreiðanlega til með að íhuga ferðir hingað allt árið um kring. Það er þó alltaf skoðað mjög vandlega áður en slíkar ákvarðanir eru teknar, með tilliti til markaðs- aðstæðna á hverjum stað, stöðu gjaldmiðla og efnahagslífs almennt,“ segir Jan Feenstra. Hann segir stöðugt fleiri Íslend- inga fljúga héðan með Delta, enda séu miklir tengimöguleikar frá New York til fjölda áfangastaða í Norður- og Suður-Ameríku. Félagið leggi mikið upp úr þessu í sinni markaðs- setningu. Ráðist hefur verið í miklar fjárfestingar í aðstöðu Delta og fleiri félaga í flugstöð 4 á JFK-flugvelli en þar eru núna komin 28 hlið eftir ný- lega fjölgun um 11. Var þetta fyrst og fremst gert til að fjölga tengi- möguleikunum. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær hafa íslensku flug- félögin, Icelandair og WOW, aukið umsvif sín í Bandaríkjafluginu þar sem í boði eru alls 13 borgir í N- Ameríku. Spurður út í samkeppnina segja þau Icelandair vera harðan keppinaut. Ekki sé auðvelt að fá góða afgreiðslutíma og hart sé keppt um hliðin í Leifsstöð. Skoðuðu Minneapolis „Svo lengi sem samkeppnin er heiðarleg þá heldur hún þér á tánum í þínum verkefnum,“ segir Feenstra og bætir við að Delta bjóði upp á mjög samkeppnishæft miðaverð í sínu flugi. Félagið geti ekki alltaf verið með lægsta verðið en taka þurfi einnig tillit til þeirrar þjónustu sem er um borð. Delta leggi mikið upp úr rúmgóðum sætum og góðri þjónustu og afþreyingu um borð, bæði á fyrsta og almennu farrými. Þannig sé Delta fyrsta félagið, sem flýgur til Íslands, til að bjóða upp á sérstök svefnsæti. Delta skoðaði þann möguleika að bæta við flugi milli Keflavíkur og Minneapolis en fékk ekki þann af- greiðslutíma sem félagið óskaði eftir sökum andstöðu Icelandair. Feenstra og Egerton segja það koma í ljós síðar á þessu ári hvort Delta íhugi Minneapolis á nýjan leik. Delta eykur umsvifin á Íslandi  Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hefur fjölgað ferðum sínum til Íslands og lengt tímabilið  Sætaframboðið hefur aukist um 170% frá 2011  Markaðsstjóri segir Icelandair harðan keppinaut Morgunblaðið/Árni Sæberg Íslandsferðir Jan Feenstra, markaðsstjóri Delta Air Lines á Norðurlöndum hittir samstarfsaðila sína hérlendis. Delta Airlines er með stærstu flugfélögum heims, með um 760 flug- vélar í rekstri sem fljúga til 326 áfangastaða í 59 löndum í sex heims- álfum. Fjöldi farþega er um 170 milljónir en til samanburðar flaug Ice- landair með 2,6 milljónir farþega á síðasta ári. Höfuðstöðvar flugfélagsins eru í Atlanta í Bandaríkjunum og starfs- menn um 80 þúsund um allan heim. Félagið á í samstarfi (SkyTeam) við Air France-KLM og Airitalia um flug yfir Atlantshafið. Daglega eru farnar um 15 þúsund flugferðir og tengimöguleikar miklir eins og frá New York, þaðan sem flogið er til Íslands yfir sumartímann. Farþegar yfir 170 milljónir DELTA GRÍÐARLEGA STÓRT FLUGFÉLAG Að innan frá með Birkisafanum og utanfrá með Birki Scrub og Birki Cellolite olíunni Birki Cellolite olían hjálpar til við að draga úr og koma í veg fyrir appelsínuhúð* - í samhljómi við mann og náttúru, www.weleda.is Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land. Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland *Niðurstöður vísindalegra rannsókna (Derma Concept GmbH) Þéttleiki húðarinnar jókst um 35% eftir 28 daga notkun með Birki Cellolite olíunni og Birkisafanum og mýkt húðarinnar varð 21% meiri. Meðhöndlaðu appelsínuhúðina heildrænt Rangar tölur um fjölda flugferða hjá Icelandair Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í gær voru birtar rangar upplýsingar um fjölda flugferða Icelandair til Norður-Ameríku. Upplýsingar í fréttinni voru byggðar á tölum frá Icelandair og voru tölur um fjölda flugferða frá Keflavík til Norður- Ameríku rangar. Þær eru 101 á viku en ekki 284 eins og birt var. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.