Morgunblaðið - 21.05.2015, Síða 15
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP)
eru margverðlaunuð fyrir hönnun,
myndgæði, notagildi, umhverfisvernd
og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga,
rekstrarleigusamninga og alhliða
prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur
sem eiga það sameiginlegt að gera
kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
• BLI A3 MFP Line of the Year 2013
• BLI A3 MFP Line of the Year 2012
• BLI A3 MFP Line of the Year 2011
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Ef að líkum lætur munu uppbygging-
aráform á reit fyrir aftan gamla
Kennaraháskólann verði komin í
formlegt deiliskipulag næsta haust.
Um er ræða 50 íbúðir fyrir eldri
borgara og allt að 100 íbúðir fyrir
námsmenn. Að sögn Hjálmars
Sveinssonar, formanns umhverfis- og
skipulagsráðs Reykjavíkurborgar,
var leitað til fjögurra arkitektastofa
við hönnun svæðisins. Lagt var til í
ráðinu að tillaga A2f arkitekta yrði
ofan á og að hún yrði grunnurinn að
lýsingu sem er fyrsta stig deiliskipu-
lags. A2f mun þróa hugmyndina
áfram „Þessi tillaga hefur ekki form-
lega verið valin. En eftir að hafa farið
rækilega ofan í kosti og galla, þá telj-
um við að þessi tillaga henti best,“
segir Hjálmar. Hann segir að teknar
verði upp viðræður við íbúana og leit-
að álits á því hvort þeir séu sammála
um að besta tillagan hafi verið valin.
Að lýsingarstigi loknu fara áform-
in í deiluskipulagsgerð þar sem end-
anleg tillaga verður valin. „Deili-
skipulagsvinnan fer fram í sumar og
síðan verður það auglýst í haust. Þá
hafa borgarbúar í nágrenninu sex
vikur til að skila athugasemdum,“
segir Hjálmar. Fái málið hnökra-
lausan framgang verður skipulagið
samþykkt seinni hluta hausts að sögn
Hjálmars.
0,2 stæði á hverja íbúð
Sjá má deiliskipulagssvæðið á af-
mörkuðu svæði á meðfylgjandi korti.
Svæðið er um 3.65 ha. að stærð og af-
markast af lóð Háteigsskóla, lóð-
unum við 27-45, oddatölumegin við
Bólstaðarhlíð, lóð kirkju
Óháða safnaðarins við Háteigsveg,
Háteigsvegi og Stakkahlíð. Innan
deiliskipulagssvæðisins eru bygg-
ingar Kennaraháskóla Íslands, KHÍ,
og íþróttahús. Þar er einnig færanleg
kennslustofa sem tilheyrir Háskóla
Íslands en er leigð út til Háteigs-
skóla. Áætlað er að hún muni víkja
við gerð deiliskipulagsins. Á hluta
nýbyggingasvæðisins eru nokkrir
tugir bílastæða KHÍ sem verða fjar-
lægð. Stór hluti þess er hins vegar
óbyggt svæði í órækt. Samkvæmt
áætlunum munu 0,2 stæði fylgja
hverri stúdentaíbúð en eitt stæði á
hverja 120 fermetra við íbúðir eldri
borgara.
Bílastæðaskortur fyrirséður
Böðvar Jónsson, framkvæmda-
stjóri Byggingarfélags námsmanna,
segir fyrirséð að bílastæðaskortur
verði á svæðinu miðað við núverandi
áætlanir. „Við munum koma þeim
sjónarmiðum á framfæri í deiliskipu-
lagsvinnunni að þarna sé allt of lítið
af bílastæðum,“ segir Böðvar. Hann
segir að bílastæðafjöldi komi til með
að hafa áhrif á stærð íbúða. „Ef bíla-
stæðin eru svona fá, þá verða íbúð-
irnar minni. Við hefðum alveg haft
not fyrir að byggja para- og fjöl-
skylduíbúðir líka en það er tómt. mál
að tala um það ef bílastæði eru svo fá.
Reynslan sýnir okkur að pör og
barnafólk er á bíl,“ segir Böðvar.
Stefna á deiliskipu-
lagssamþykkt í haust
Íbúðir fyrir eldri borgara og námsmenn Fá bílastæði
Fyrirhugað framkvæmdasvæði
Kennaraháskólinn
Þjónustumiðstöð
og íbúðir aldraðra
Námsmannaíbúðir
St
ak
ka
hl
íð
Háteigsskóli
Bólstaðahlíð
Háteigsvegur
Malín Brand
malin@mbl.is
Nokkur innflutningsfyrirtæki innan
Félags atvinnurekenda hafa farið
þess á leit við Matvælastofnun að
hún sinni þeirri
skyldu að votta
innfluttar búvör-
ur sem bíða nú
tollafgreiðslu.
Engar búvörur
(kjöt, ostar, kart-
öflur o.fl.) hafa
verið toll-
afgreiddar síðan
dýralæknar Mat-
vælastofnunar
lögðu niður störf
vegna verkfalls og á meðan liggja
hundruð tonna matar undir
skemmdum.
Í frétt á vef Félags atvinnurek-
enda, FA, er fjallað um að gríð-
arlegt tjón sé yfirvofandi verði ekk-
ert að gert en ekki sé lagaleg krafa
um að innlendur dýralæknir stimpli
skjölin heldur aðeins að Mat-
vælastofnun geri það.
Vilja bjarga verðmætum
Heilbrigðisvottorð sem koma með
vörum upprunnum innan Evrópska
efnahagssvæðisins eru gefin út af
þarlendum dýralæknum og er það í
samræmi við þær heilbrigðisreglur
sem gilda hér á landi.
Ólafur Stephensen, fram-
kvæmdastjóri FA, segir að verið sé
að leita leiða til að bjarga þessum
verðmætum og koma nauðsynlegri
matvöru á markað. „Við fáum ekki
séð að það sé skilyrði að dýralækn-
ar stimpli innflutnings- og heil-
brigðisvottorðin á þessum vörum,“
segir Ólafur og minnir á að ekki séu
allir starfsmenn Matvælastofnunar í
verkfalli.
„Forstjórinn og yfirdýralækn-
irinn ættu að hafa allar heimildir til
að votta þessa vöru, enda geta þeir
gengið í störf sinna undirmanna,
samkvæmt dómum í vinnurétti,“
segir hann.
Segja synjun ólögmæta
Beðið er eftir svörum frá Mat-
vælastofnun um hvort unnt sé að
verða við ósk innflutningsfyrirtækja
en í erindi lögmanns matvörufyr-
irtækisins Innness, sem vitnað er í
á vef FA, segir m.a. að synjun
stofnunarinnar á að stimpla skjölin
sé ólögmæt og mögulega hægt að
lögsækja hana fyrir.
Matvælastofnun hefur óskað eftir
frekari upplýsingum og fylgigögn-
um vegna þessa en ekki hefur verið
tekin efnisleg afstaða til kröfu Inn-
ness.
Matvælastofnun
sinni skyldu sinni
Ólafur
Stephensen
„Tillagan var samþykkt með örlítilli
orðalagsbreytingu en efnislega
óbreytt. Það kom í raun á óvart
hversu vel var tekið í tillöguna og ég
hef ekki heyrt neinar óánægjuradd-
ir,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson
borgarfulltrúi.
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti á þriðjudag tillögu Júlíusar um
að skora á mennta- og menningar-
málaráðherra að vinna að því að önn-
ur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu
taki þátt í rekstrarkostnaði Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands. Gangi það ekki
eftir er beint til ráðherra að leggja
fyrir Alþingi að breyta lögunum. Júl-
íus segist þó ekkert hafa heyrt frá
fulltrúum sveitarfélaganna vegna til-
lögunnar.
Lítil reisn yfir tillögunni
Í samræðum blaðamanns við
stjórnendur umræddra sveitarfélaga
kom í ljós að málið hefur ekki verið
tekið til umræðu þar. Bæjarstjórar
hafa þó persónulegar skoðanir á til-
lögunni.
„Mér finnst lítil reisn yfir tillög-
unni. Mér finnst höfuðborgin gera lít-
ið úr sér með þessu. Ég reikna ekki
með að þeir leggi fram tillögu um að
það eigi að skipta tekjum sem falla
borginni í skaut, jafnt á milli sveitar-
félaga. Það eru miklir fjármunir sem
ríkið greiðir í fasteignagjöld hjá
Reykjavíkurborg þar sem langflestar
stofnanir ríkisins eru þar, auk þess
sem borgin fær miklar óbeinar tekjur
af staðsetningu þessa stofnana. Í
þessu samhengi má benda á Reykja-
víkurborg er að fara að fá 380 millj-
ónir í fasteignagjöld af Hörpu auk
þess sem Sinfónían borgar leigu fyrir
aðstöðu þar þannig að það er verið að
færa úr einum vasa borgarinnar yfir í
annan,“ segir Ármann Kr. Ólafsson,
bæjarstjóri Kópavogs. Hann telur
Kópavogsbæ þó líklega muni sam-
þykkja tillöguna komi Reykjavíkur-
borg til með að skipta tekjunum, sem
hún hefur frá ríkinu, jafnt milli sveit-
arfélaga. Kópavogsbær kæmi út í
stórum plús yrði það gert.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar og Haraldur Sverrisson,
bæjarstjóri Mosfellsbæjar, sögðu
Reykjavíkurborg bera skyldur sem
höfuðborg til að styðja Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og vísuðu jafnframt til
þess að borgin fengi tekjur fyrir það
eitt að vera höfuðborg.
„Svo finnst mér að ef Reykjavík-
urborg sjái sér ekki fært að gera
þetta eigi ríkið að sjá sóma sinn í að
styðja myndalega við menningarlíf í
landinu út frá þeirri hugsun að það
eykur lífsgæði íbúanna og skapar
verðmæti,“ segir Gunnar.
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjar-
stjóri Seltjarnarness, lagði áherslu á
að horft yrði til jafnræðis gagnvart
öðrum stofnunum sem einnig þjón-
uðu öllu landinu. „Mér finnst bara
eðlilegt að þetta sé skoðað og ef talið
er að þessi stofnun eigi að vera styrkt
af öllum sveitarfélögum landsins þá
þarf náttúrlega bara að gæta jafn-
ræðis gagnvart öðrum stofnunum,
eins og Þjóðleikhúsinu, Íslenska
dansflokknum og Þjóðminjasafni Ís-
lands“ segir Ásgerður.
Guðný G. Ívarsdóttir, sveitarstjóri
í Kjósarhreppi, sagðist ekki hafa
myndað sér skoðun á málinu. Ekki
náðist í bæjarstjóra Hafnarfjarðar.
brynjadogg@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Harpa Sinfóníuhljómsveit Íslands
leigir aðstöðu í Hörpu tónlistarhúsi.
Vilja ekki taka
þátt í kostnaði
Gagnrýna tillögu um sinfóníuhljómsveit