Morgunblaðið - 21.05.2015, Page 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015
✝ IngibjörgBjarnadóttir
fæddist í Tungu á
Norðfirði 2. des-
ember 1922. Hún
lést á Sólvangi í
Hafnarfirði 14.
maí 2015. For-
eldrar hennar
voru Bjarni
Sveinss. bátasmið-
ur frá Viðfirði, f.
5.8. 1894, d. 24.2.
1978 og Guðrún Friðbjörnsd.
klæðskeri frá Þingmúla í
Skriðdal f. 11.5. 1893, d. 9.6.
1989. Systkini: Guðlaug Ólöf,
f. 1916, látin, Guðrún Aðal-
björg, f. 1918, Jónína Stefanía,
f. 1919, látin, Anna Sigríður, f.
1921, látin, Friðbjörg Berg-
þóra, f. 1924, látin, Sveinn, f.
1927, látinn, Unnur Ólafía, f.
1933. Hinn 20. desember 1941
giftist Ingibjörg Þórði Gísla-
syni bifreiðastjóra frá Hval-
eyri við Hafnarfjörð, f. 28.
apríl 1911, d. 7. maí 1989.
Hann var sonur Guðfinnu Sig-
urðard. og Gísla Jónss., Vest-
urkoti á Hvaleyri. Ingibjörg
og Þórður eignuðust 5 börn. 1.
Tvíburar óskírðir f/d 17. og
18. apríl 1945, 2. Guðfinnur
Gísli byggingatæknifr. f. 4.4.
1947. Maki 1; Ásdís Steinunn
Leifsd. kennari, f. 1952, d.
björg (Imma) fæddist í Tungu
á Norðfirði og ólst þar upp.
Hún var þrjá vetur í Barna-
skóla Norðfjarðar. Fimmtán
ára veiktist hún og var send
suður til lækninga árið 1938.
Imma og Þórður áttu heimili
á Suðurgötu 62 í Hafnarfirði
alla tíð. Hún sinnti öllum
heimilisstörfum þess tíma og
prjónaði og saumaði. Þórður
keyrði sand úr Hvaleyr-
arfjöru og lagði hún fram
mikla vinnu til aðstoðar. Hún
starfaði við ljósböð hjá
Heilsugæslustöð Hafn-
arfjarðar 1972-1976 og síðan
sem baðvörður í leikfimihúsi
Lækjarskóla frá 1976-1993, er
hún hætti vegna aldurs. Imma
var auk þess mikil hann-
yrðakona og prýðir margt
heimili hennar. Garðurinn og
blómarækt var einnig hennar
áhugamál. Hún var mikil fjöl-
skyldukona og fylgdist vel
með afkomendum og ætt-
ingjum sínum og naut þess að
hafa þá í kringum sig. Alltaf
stóð heimilið opið og var vel
tekið á móti öllum. Eyrún
Björg, dóttir Guðfinns, dvaldi
mikið hjá henni og bjó hjá
henni um tíma.
Imma var félagslynd og var
mörg ár í stjórn Hringsins í
Hafnarfirði og tók virkan
þátt í starfi hans alla tíð. Hún
var í saumaklúbbi og tók síð-
ar þátt í starfi eldri borgara.
Útför hennar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 21.
maí 2015, og hefst athöfnin
kl. 11.
1983, Barn a) Ey-
rún Björg, f. 1976,
d. 1997. Maki 2;
Elísabet Soffía
Þórðard. kennari,
f. 1962. Þau
skildu. Börn: a)
Andrés Pétur, f.
1986, b) Ívar
Bergþór, f. 1992.
c) Þórður Gísli, f.
1994. Vinkona
Guðfinns; Jóna
Guðbjörnsd. sjúkraliði, f.
1959. 3. Bjarni Rúnar bygg-
ingatæknifr., f. 30.7. 1950.
Maki Anna Sigríður Karlsd., f.
1952. Börn: a) Þórður Ingi, f.
1972. Maki. Linda Hrönn Þór-
isd., f. 1974. Börn: Bjarni
Dagur, Sindri Gunnar, Aníta
Sóley, Elsa Margrét. b) Hinrik
Örn, f. 1979, Maki. Brynja Ás-
dís Einarsd., f. 1980, Börn:
Bjartur Bóas, Benedikt Nóel,
Talía Berglind. c) Ingibjörg
Dóra, f. 1986. 4. Hrafnhildur
viðskiptafr., f. 23. mars 1958.
Maki; Guðjón Helgi Haf-
steinss. véltæknifr., f. 1956.
Börn: a) Hugrún Ósk, f. 1986.
Maki; Ingi Þór H. Kúld, f.
1983. Barn: Gabríel Logi. b)
Hafsteinn Þór, f. 1990. Maki;
Bryndís Skarphéðinsd., f.
1991, c) Kristinn Ingi, f. 1993.
d) Eyrún Björg, f. 1998. Ingi-
Í dag kveðjum við elskulega
móður okkar, hana Immu, eins og
hún var jafnan kölluð.
Á kveðjustund viljum við
þakka samfylgdina og alla þá ást
og hlýju sem hún ávallt sýndi.
Hún var alltaf til staðar er á
þurfti að halda og gekk til þeirra
verka sem til féllu. Hún var mikið
snyrtimenni og ber fagurt heimili
hennar því best vitni.
Garðurinn á Suðurgötunni var
sem fegursti skrúðgarður meðan
hún bjó þar og stönsuðu margir
við garðinn og dáðust að er þeir
áttu leið hjá . Ljúft er að minnast
allra þeirra kræsinga sem á borð
voru bornar við hátíðleg tæki-
færi.
Ég sit hér einn og hugsa í hljóði
og horfi minnar æsku til.
Líf mitt vil ég rekja í ljóði.
Ljóð sem ég þér færa vil.
Æskuárum mun aldrei gleyma,
þú alltaf varst til staðar þá.
Mamma, þig mun alltaf geyma,
þá minningu ég aleinn á.
Mjúk var ætíð móðurhöndin,
mig þú leiddir lífsins braut.
Dýrleg voru draumalöndin.
Drauma minna alsæll naut.
Þú færðir mér og frið í hjarta.
Sú fegurð ætíð fylgdi þér.
Þú framtíð áttir fagra, bjarta,
framtíð sem þú færðir mér.
Löng er orðin lífsins saga
og ljósin ekki alltaf skær.
Ég bið þú eigir bjarta daga,
þess bið ég eins í dag og gær.
Mjúk er ennþá móðurhöndin.
Megi Drottinn vernda þig.
Blessuð séu tryggðarböndin,
bönd sem tengja þig og mig.
(Bjarni Rúnar)
Takk fyrir allt og allt, elsku
mamma, og megi góður Guð vaka
yfir þér á nýjum slóðum og fylgja
þér til ástvina okkar sem eftir þér
bíða.
Blessuð sé minning þín.
Guðfinnur Gísli, Bjarni
Rúnar, Hrafnhildur.
Elsku amma, þá hefur þú feng-
ið hvíldina eftir langa og góða ævi.
Margar minningar rifjast upp á
þessari stundu. Alltaf var gott að
koma til þín og spjalla um daginn
og veginn. Ég gat rætt um allt
milli himins og jarðar við þig og
veltum við oft upp ýmsum hlutum
sem okkur lágu á hjarta. Börnin
mín hlökkuðu alltaf til að koma í
heimsókn til þín og þeim leið vel í
návist þinni. Þú tókst alltaf vel á
móti okkur og hafðir mikinn
áhuga á að fylgjast með því sem
fram fór í okkar lífi. Ég var svo
heppinn að fá að búa hjá þér á
Suðurgötunni þegar ég var að
læra smíðar og vann hjá trésmíða-
verkstæðinu Dröfn í Hafnarfirði
en ekki kominn með bílpróf. Þá
áttum við góðar stundir saman og
lifir þessi tími áfram í huga mín-
um.
Dugnaður þinn var mikill og
fátt lést þú stöðva þig í að fram-
kvæma það sem þú vildir. Eitt
sinn komum við Linda til þín þeg-
ar þú varst nýstigin upp úr veik-
indum. Þá stóðstu efst í tröppu til
að hengja upp gardínur. Það var
þér mikils virði að hafa fallegt í
kringum þig, enda ber heimili þitt
þess merki. Það var þó enn mik-
ilvægara í þínum huga að fjöl-
skyldan stæði þétt saman og lagð-
ir þú mikið af mörkum til að
fjölskyldan sameinaðist við hin
ýmsu tilefni og voru hinar fjöl-
mörgu glæsilegu veislur sem þú
hélst til vitnisburðar um það.
Söknuður okkar er mikill en góðar
minningar lifa í hjörtum okkar.
Nú ert þú komin til afa sem tók
örugglega vel á móti þér. Hvíldu í
friði.
Þórður Ingi.
Elsku Imma amma.
Nú ertu farin að hitta afa, Ey-
rúnu, systur þínar og litlu strák-
ana þína. Það er skrítið þegar
svona fastur punktur í tilverunni
fer í burtu og það mun örugglega
taka smá tíma fyrir okkur að átta
okkur á því að þú sért ekki hérna
lengur. Við erum þó viss um það
að þú ert ekki alveg farin frá okk-
ur, að þú munir vaka yfir okkur og
því sem við erum að gera.
Það eru svo margar minningar
sem við eigum af okkar tíma sam-
an. Berjamó, ísblóm, laufa-
brauðsbakstur, fiskibollur og
veisluhlaðborð. Alltaf svo flott til
fara, enda varstu hefðarkona,
amma okkar. Það var hluti af
sumrinu að fara með þér í sum-
arbústað, að baka pönnukökur og
spila hin ýmsu spil. Boltaleikir fyr-
ir utan Krókahraunið og spjall um
lífið og tilveruna.
Elsku amma okkar, við söknum
þín ógurlega en erum þakklát fyr-
ir tímann okkar saman.
Hugrún Ósk, Hafsteinn
Þór, Kristinn Ingi og
Eyrún Björg.
Í dag kveð ég Immu, ömmu
mína og nöfnu, Ingibjörgu
Bjarnadóttur, með tveimur bæn-
um sem hún kenndi mér þegar ég
var lítil.
Kristur minn, ég kalla á þig,
komdu að rúmi mínu.
Gakktu hér inn og geymdu mig,
Guð, í faðmi þínum.
(Höf. ók.)
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Ég er viss um að þú ert komin
til tvíburanna þinna sem þú fékkst
aldrei að kynnast, Þórðar afa, Ey-
rúnar Bjargar og Ásdísar. Þau
tóku á móti þér, þegar þú sofnaðir
svefninum langa og fylgdu þér á
nýja staðinn sem þú ert nú komin
á. Góða ferð, elsku amma mín,
hafðu það gott hjá Jesú og öllum
englunum sem taka vel á móti þér.
Kveðja, þín nafna og sonar–
dóttir,
Ingibjörg Dóra Bjarnadóttir.
Ingibjörg
Bjarnadóttir
✝ Guðfinna Sig-ríður Sigurð-
ardóttir fæddist á
Ketilseyri í Dýra-
firði, 15. maí 1949.
Hún lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 11. maí 2015.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Björnfríður Ólafía
Magnúsdóttir, f.
14.12. 1926, d.
11.5. 2006, og Sigurður Frið-
finnson, f. 26.3. 1916, d. 19.2.
2002. Hún var þriðja barn for-
eldra sinna en þau eignuðust
17 börn. Þann 31. desember
1969 giftist Guðfinna Samúel
Jóni Guðmundssyni frá Græn-
hól á Barðaströnd. Börn
þeirra þeirra eru 1. Sædís
Hrönn, f. 15.9. 1970, börn
hennar: Aron Elvar, Alex-
andra Ýrr, drengur andvana
upp úr fermingu fór hún að
vinna utan heimilis og vann
meðal annars á Héraðsskól-
unum á Núpi og í Reykjanesi
sem og á Sjúkraskýlinu á
Þingeyri. Guðfinna flytur með
eiginmanni sínum til Reykja-
víkur 1971 og frá 1974 voru
þau til heimilis að Fram-
nesvegi 48 þar sem þau
bjuggu næstu 30 árin. Hún
var að mestu heimavinnandi á
meðan börnin voru ung en er
þau uxu úr grasi sinnti hún
ýmsum umönnunarstörfum og
varð það hennar helsti starfs-
vettvangur. Guðfinnu var
margt til lista lagt. Hún var
mikil og góð saumakona,
mjög nýtin og saumaði bæði
úr nýjum efnum sem og not-
uðum flíkum og bjó oftast til
sín eigin snið. Einnig prjónaði
hún og heklaði bæði flíkur og
annað. Hún hafði gaman af
allri matseld og undi sér vel í
eldhúsinu. Síðustu árin mál-
aði hún mikið og eftir hana
liggja ófá falleg málverk.
Útför Guðfinnu fer fram
frá Guðríðarkirkju í dag, 21.
maí 2015, kl. 13.
fæddur og Ísa-
bella Von. 2. Sæ-
rún Magnea, f.
12.5. 1972, börn
hennar: Jökull
Máni, Búi og Kar-
in. 3. Hafþór Ingi,
f. 10.8. 1974, börn
hans: Ásdís
Helga, Daníel
Smári, Róbert
Ingi og Andri
Snær. 4. Hafliði
Guðmann, f. 20.11. 1985. Haf-
liði og Aron hafa búið hjá
þeim hjónum síðustu árin og
hafa verið þeim mikil stoð og
stytta.
Guðfinna gekk í farskóla á
Ketilseyri frá ca.7 ára aldri
til fermingar og fór svo í
Húsmæðraskólann á Stað-
arfelli veturinn 1965-1966.
Hún fór ung að leggja móður
sinni lið við heimilisstörfin og
Litli tónlistarmaðurinn.
Mamma, ertu vakandi mamma mín?
Mamma, ég vil koma til þín.
Ó, mamma, gaman væri að vera stór,
þá vildi ég stjórna bæði hljómsveit og kór
Mamma, þú ert elskuleg, mamma mín.
Mér finnst gott að koma til þín.
Ó, en mamma, áðan dreymdi mig draum
um þig
en datt þá framúr og það truflaði mig.
Þú varst drottning í hárri höll,
hljómsveitin álfar, menn, og tröll,
lék þér og söng í senn
þú varst svo stórfengleg.
Tröllin þau börðu á bumburnar,
blómálfar léku á flauturnar,
fiðlurnar mennskir menn,
á mandólín ég.
Allir mændum við upp til þín
eins og blóm þegar sólin skín
er þínum faðmi frá
gjafir flugu um allt.
Flestum gekk vel að grípa sitt,
glaður náði ég fljótt í mitt,
en stóll er steig ég á
stóð tæpt svo hann valt.
Ó, mamma, þú ert elskuleg mamma mín.
Mér finnst gott að koma til þín.
Ó, mamma, gaman væri að vera stór
þá vildi ég stjórna bæði hljómsveit og
kór.
(Freymóður Jóhannesson)
Sjáumst í Nangíala.
Særún Magnea
Samúelsdóttir.
Guðfinna Sigríður
Sigurðardóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁGÚSTA MARGRÉT FREDERIKSEN,
dvalarheimilinu Grund,
áður til heimilis Laufskógum 8,
Hveragerði,
sem lést föstudaginn 8. maí á Landspítalanum í Fossvogi,
verður jarðsungin frá Hrepphólakirkju í Hrunamannahreppi
föstudaginn 22. maí kl. 14.
.
Grétar Páll Ólafsson, Gyða Ingunn Kristófersdóttir,
Halldór Þórður Ólafsson, Guðmunda Sigfúsdóttir,
Reynir Ólafsson, Jónína Sigmarsdóttir,
Klara Stephensen, Ólafur Stephensen,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
MARGRÉT ERLA FRIÐJÓNSDÓTTIR,
Arnarhrauni 9,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi Hafnarfirði
þriðjudaginn 12. maí.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 22. maí kl. 13.
.
Þorkell Sigurgeir Júlíusson,
Elísa Hjördís Ásgeirsdóttir,
Júlíus Már Þorkelsson, Guðlaug Sveinsdóttir,
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
STEFÁN ÞÓRHALLSSON
símvirkjameistari,
Gullsmára 9,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 17. maí.
Útför hans fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi föstudaginn
22. maí kl. 13.
.
Katrín Stefánsdóttir, Viðar Hauksson,
Þóra Stefánsdóttir, Ólafur E. Davíðsson,
Stefán Snorri Stefánsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN VIÐAR GUNNLAUGSSON
flugmaður,
Efstalandi 6,
Reykjavík,
lést 15. maí á gjörgæsludeild LSH, Fossvogi.
Útför hans verður gerð frá Bústaðakirkju þriðjudaginn
26. maí kl. 15.
.
Arndís Kristjánsdóttir,
Auður Kristrún Viðarsdóttir, Guðjón Baldvinsson,
Arna Sigrún Viðarsdóttir, Haraldur Páll Hilmarsson,
Gunnlaugur Viðar Viðarsson,
Sonja Guðrún Viðarsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
tengdasonur, bróðir og mágur,
HÖRÐUR ÓSKARSSON
viðskiptafræðingur,
Hrauntúni 12,
Vestmannaeyjum,
lést á heimili sínu laugardaginn 16. maí.
Útför hans fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 30. maí kl. 11.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hans er bent á Kvenfélagið Líkn í Vestmannaeyjum.
.
María Guðbjörg Pálmadóttir,
Pálmi Harðarson,
Elín Ósk Harðardóttir,
Ásta María Harðardóttir,
Ásta Haraldsdóttir,
Anna Steinunn Eiríksdóttir,
Haraldur Óskarsson, Guðbjörg Karlsdóttir,
Elínborg Óskarsdóttir, Sigurður Georgsson,
Sigbjörn Þór Óskarsson, Kristín Hjartardóttir,
ættingjar og vinir.