Morgunblaðið - 21.05.2015, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015
✝ Hrefna G.B.Þórarins
fæddist í Reykja-
vík 6. febrúar
1952. Hún lést á
Líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 10.
maí 2015.
Uppeldisfor-
eldrar hennar
voru Friðrik H.
Ásmundsson
skipstjóri, f. 20.3. 1930, d. 27.11.
1979, og Þorgerður Gunn-
arsdóttir bankastarfsmaður, f.
4.6. 1930, d. 24.5. 2006. Systkini
Hrefnu eru: Þorsteinn Frið-
riksson, f. 19.11. 1955, Ingibjörg
Friðriksdóttir, f. 11.12. 1956, og
af Hrafn Gústafsson, f. 2.12.
1988.
Hrefna eignaðist Gerðu með
sambýlismanni sínum Óskari Eg-
ilssyni, f. 20.6. 1953, en Óskar
lést í sjóslysi 25.8. 1974. Eig-
inmaður Hrefnu var Gústaf
Gústafsson tæknifræðingur, f.
24.2. 1959, d. 16.2. 2013. Þau
slitu samvistum.
Hrefna var að mestu heima-
vinnandi húsmóðir en starfaði að
auki við verslunar- og skrif-
stofustörf. Lengst af hjá Geva-
fótó, Íslenskum aðalverktökum,
Landsbanka Íslands og Trygg-
ingastofnun ríkisins.
Útför Hrefnu fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 21. maí 2015,
og hefst athöfnin kl. 13.
Friðrik Þór Frið-
riksson, f. 6.10. 1964.
Börn Hrefnu eru: 1)
Gerða Óskarsdóttir, f.
25.1. 1973. Börn Gerðu
eru a) Þórunn Lilja
Arnórsdóttir, f. 1991,
b) Friðrik Már Arn-
órsson, f. 1991, c) Jóna
María Arnórsdóttir, f.
1997, d) Rebekka Rut
Arnórsdóttir, f. 2001,
e) Arnór Gabríel Arn-
órsson, f. 2007. 2) Rakel Gúst-
afsdóttir, f. 14.2. 1979. Synir
Rakelar eru: a) Jökull Þór Sverr-
isson, f. 2000, b) Máni Örn Ott-
ósson, f. 2002. 3) Margrét Gúst-
afsdóttir, f. 11.11. 1986, unnusti
Aron Þór Jóhannsson og 4) Gúst-
Elsku mamma mín, mér finnst
svo erfitt að kveðja þig enda varstu
ekki nema 63 ára gömul er þú
kvaddir þennan heim. Það er svo
stutt síðan við mættum reglulega í
ræktina og tókum á því saman og
mér fannst þú svo hraust og flott.
Þetta var rétt fyrir áramót og ekki
óraði mig fyrir því að þú yrðir farin
frá okkur núna í maí enda einungis
tæpir tveir mánuðir síðan þú
greindist með ólæknandi krabba-
mein. Hraðinn var svo mikill á veik-
indaferlinu að við sem eftir stönd-
um erum enn að reyna að átta
okkur. Þú varst svo hugguleg, fal-
leg og skemmtileg kona. Ég man að
sem stelpa dáðist ég að þér þegar
þú varst að hafa þig til og fannst ég
eiga fallegustu mömmu í heimin-
um. Þú varst svo mikil húsmóðir og
hélst alltaf fallegt og myndarlegt
heimili. Þú varst mjög fjölhæf og
bakaðir og eldaðir góðan mat en
þar höfum við systurnar notið góðs
af. Þú varst flink í höndunum og
saumaðir, prjónaðir, heklaðir og
málaðir skemmtilegar og litríkar
myndir. Þú varst góð hárgreiðslu-
kona og gast ýmislegt á því sviði.
Ef þér datt í hug að gera eitthvað
eins og að rífa niður flísar, festa
upp hillur eða að mála heilu vegg-
ina var það gert. Ekkert var þér
ómögulegt, elsku mamma, og hef
ég erft þann dugnað og fjölhæfni
frá þér. Þú varst svo mikill húm-
oristi og við systkinin og börnin
okkar vorum oft í hláturskasti yfir
þér, því að þú varst svo einstaklega
fyndin oft á tíðum. Þú hafðir ein-
staka söngrödd og ég man svo vel
söngva sem þú söngst fyrir mig er
ég var barn. Söngva sem ég hef
sungið fyrir börnin mín fimm frá
fyrstu stundu. Ég á eftir að sakna
fallega brossins þíns, hlátursins og
kaldhæðnislega húmorsins. Ég á
eftir að sakna þess að knúsa þig og
segja þér að ég elski þig. Ég er
þakklát fyrir þann tíma sem ég átti
með þér, elsku hjartans mamma,
og fyrir það að börnin mín skyldu
öll fá að kynnast þér enda voru þau
mjög náin þér. Þú munt alltaf lifa í
hjartanu mínu og minningarnar
um þig ylja mér um ókomna tíð.
Þín
Þorgerður.
„Dona dona dona … dona dona
dona dona dooo …“ Þetta söngstu
um leið og þú straukst um enni
mér á góðum kvöldstundum fyrir
svefninn þegar ég var lítil. Dona
dona … við góða laglínu og lagið
lifði áfram, ekki flókið, en ljúft og
skylt og hlýju það bar áfram í ein-
faldleika sínum. Þetta lýsir þér
ágætlega, elsku mamma mín. Þú
áttir gott með að finna þína taktík í
hverju sem þér hugnaðist. Þinn
hljóm og þinn blæ. Þú vildir ekki
gera hlutina eins og flestir aðrir og
ef þér hugnaðist að gera eitthvað
þá fannstu bara út úr því, á þinn
hátt. Ég á margar minningar um
þig þar sem þú varst að punta
heimilið, baka í eldhúsinu, með
pensilinn á lofti og sauma eitt og
annað. Mesta tilhlökkunin var þeg-
ar þú varst að sauma eitthvað á
mig og Gerðu. Lyktin úr bakarofn-
inum var óneitanlega kær á góðum
dögum og svo líka þegar við áttum
okkar snyrtistofukvöld. Það var nú
aldrei af þér tekið, mamma mín, að
þú varst ávallt glæsileg og tignar-
leg. Fegurð og fágun þín var ein-
stök.
Í Danmörku á Sólbakkanum var
oft svo gaman að vera dóttir þín.
Þú þessi mikla húsmóðir sankaðir
að þér húsgestunum og alltaf var
eitthvað skemmtilegt um að vera
og gott á boðstólum og fólki leið
alltaf vel heima hjá okkur í góðu yf-
irlæti hjá Hrefnu. Þú hafðir ein-
stakt lag á að gera heimilið fallegt
og það höfðu allir orð á því sem
komu til okkar.
Þetta voru góðar minningar og
er ég þakklát fyrir þær.
Árin liðu og tímarnir breyttust,
sumt var þér erfitt, mamma mín,
þegar á leið eins og gengur og ger-
ist. Þú varst alltaf góð amma og þú
tókst hverju barnabarninu fagn-
andi og opnum örmum og þeim
fannst öllum gott að vera hjá
ömmu sinni, öll á sinn hátt. Þau
eiga eftir að sakna þín sárt.
Svo veiktistu snögglega af
krabbameininu núna í mars og
veikindin stóðu stutt. Þú barðist
hetjulega síðustu dagana þrátt fyr-
ir þetta þunga högg. Þú gerðir þitt
besta til að njóta hverrar mínútu
með okkur fjölskyldu þinni. Það
var gott, kæra mamma mín, að fá
að leiða þína hönd síðasta spöl þinn
í þessu lífi líkt og þú leiddir mína
hönd inn í þetta líf. Við áttum
nokkrar dýrmætar stundir núna
undir lokin og við gátum kvatt hvor
aðra í sátt og góðri trú um að við
höfum skilað af okkur nokkuð vel
því hlutverki sem við gegndum í lífi
hvor annarrar. Nú er ferðalag þitt
hafið á nýjum slóðum og ég veit að
þín biðu margir útbreiddir faðmar.
Ég trúi ekki öðru en að þú sért um-
vafin dýrð og glæsileika, ómældri
elsku og ljósi úr öllum áttum, þar
sem þú ert núna. Njóttu þín, elsku
mamma mín. Takk fyrir að leiða
mig inn í þetta líf og takk fyrir allt
sem þú hefur gefið mér. Jökull og
Máni biðja að heilsa og við sjáumst
aftur. Knús.
„Að ferðalokum finn ég þig,
sem mér fagnar höndum tveim.
Nú ertu komin heim, mamma
mín. Hvíldu í friði. Þín dóttir,
Rakel.
Elsku mamma, lífið getur verið
skrítið og óréttlátt. Sérstaklega
núna, það er skrítið og sárt að þú
skulir vera farin frá okkur. Þú
varst einstök, svo yndisleg og
glæsileg og fólk hafði oft orð á því
hvað þú værir flott kona. Það var
alltaf stutt í húmorinn hjá þér og
þú varst alltaf svo skemmtileg. Þú
kenndir mér margt sem ég er svo
þakklát fyrir. Ég á eftir sakna þín
svo mikið, sakna þess að vera í
kringum þig, hlæja með þér og
knúsa þig. Núna held ég fast í góðu
og fallegu minningarnar um þig og
okkur saman. Ég trúi því að þú
sért komin á betri stað og sért
núna með pabba. Þú munt alltaf
eiga stað í hjarta mínu og minn-
ingin um þig mun alltaf lifa í huga
mínum.
Elska þig, mamma mín.
Þín
Margrét.
Hrefna G.B. Þórarins
Fleiri minningargreinar
um Hrefnu G.B. Þór-
arins bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Íþróttir
Verðlaunagripir
- gjafavara -áletranir
Bikarar, verðlaunapeningar, barm-
merki, orður, póstkassaplötur,
plötur á leiði, gæludýramerki,
starfsgreinastyttur.
Fannar,
Smiðjuvegi 6, Rauð gata,
Kópavogi, sími 5516488
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Þjónusta
! " #$ %&& ' ''
((()*)
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Teg. SMOOTHING - stærðir 32-40,
D, DD, E, F og 32-38FF, G á kr. 7.880.
Teg. SUSANNA - 32-42, DD, E, F,
FF, G-skálar á kr. 11.885.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Þú mætir – við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
– vertu vinur
Bílstjóraskórnir komnir aftur!
Teg:413202 Mjúkir og þægilegir her-
raskór úr leðri og skinnfóðraðir. Litir:
brúnt og svart, stærðir: 40 - 47
Verð: 15.950.-
Teg: 305302 Mjúkir og þægilegir
herraskór úr leðri og skinnfóðraðir.
Stærðir: 40 -46 Verð: 15.885.-
Teg: 458404 Þægilegir extra breiðir
herraskór úr leðri, skinnfóðraðir
Stærðir: 41-46 Verð: 19.885
Laugavegi 178
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán.-fös. 10–18,
laugardaga 10–14.
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf.
Sendum um allt land
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Hópbílar
!
"#
$
%
&#'( !)
Húsviðhald
Tökum að okkur viðhald, við-
gerðir og nýsmíði fasteigna
fyrir fyritæki húsfélög og einstak-
linga. Fagmenn á öllum sviðum.
Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373.
brbygg@simnet.is
Hreinsa þakrennur,
laga vatnstjón, ryð á
þökum og tek að mér
ýmis smærri verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
- meðmorgunkaffinu
Þökkum öllum þeim sem sýndu yndislegri
móður okkar,
ÞÓRUNNI KJARTANSDÓTTUR,
Aflagranda 40,
Reykjavík,
vinskap og virðingu vegna andláts
hennar.
Guð blessi ykkur öll.
.
Kristín Lárusdóttir, Guðjón Hilmarsson,
Ragnheiður Lárusdóttir, Sigurður Dagsson,
Kjartan Lárusson, Anna Karlsdóttir,
Guðmundur Lárusson, Birna Smith,
Steinn Lárusson, Hrafnhildur Sigurbergsdóttir
og ömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÓLÖF BJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR,
Þórustöðum 1,
Eyjafjarðarsveit,
lést sunnudaginn 10. maí á Sjúkrahúsi
Akureyrar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls hennar.
.
Stefán Sigurður Árnason,
María Stefánsdóttir, Guðjón Höskuldsson,
Ágúst Á. Stefánsson, Sigurhanna Sigmarsdóttir,
Sigurlaug Stefánsdóttir, Guðmundur St. Svanlaugsson,
Stefán Stefánsson, Anna R. Árnadóttir,
Helga Kr. Stefánsdóttir, Benedikt Sverrisson,
barnabörn og barnabarnabörn.