Morgunblaðið - 21.05.2015, Page 27

Morgunblaðið - 21.05.2015, Page 27
færðum okkur brátt nær Ósló, eiginmaðurinn fékk vinnu á Grand Hótel í Ósló og ég hóf störf á hár- greiðslustofu hjá mjög þekktum meistara, Káre A. Nilsen, sem starfrækti þrjár stofur en þar störfuðu fjórir Íslendingar. Þetta var frábær tími í eitt og hálft ár en 1986 bárust mér þær sorgar- fréttir að Anna Kristín, systir mín, hefði látist í bílslysi. Eftir jarðarförina gat ég ekki hugsað mér að fara aftur úr landi.“ Mjöll starfaði síðan á hár- greiðslustofunni Papillu: „Þaðan hafði ég útskrifast á sínum tíma hjá einum af bestu meisturum í mínu fagi, Dórotheu og Torfa.“ Mjöll starfaði auk þess á barn- um Evrópa í Borgartúni: „Bar- þjónaáhuginn kom frá pabba og mömmu en pabbi rak barinn í Súlnasal í fjölda ára og mamma vann á barnum á Loftleiðum. Ég hef samt starfað við hárgreiðslu meira og minna frá útskrift, starf- rækt eigin stofu um skeið, Hár og förðun, og vann síðan á Kúltúr og síðan á Primadonnu.“ Úr veiðihúsum í Kaffivagninn Mjöll og eiginmaður hennar ráku veiðihús í 21 ár, fyrst tvö veiðihús við Norðurá og Hítará, síðan bættist við Laxá í Dölum og loks við Langá. „Þetta var ákaf- lega skemmtilegur tími enda er ég sjálf með veiðidellu á hæsta stigi. Þarna kynntist maður fjölda fólks frá öllum heimshornum, heims- frægum persónum og yndislegu fólki með mismunandi þarfir. Ég hef hins vegar aldrei farið í mann- greinarálit en það þykir mikil dyggð við slíkar aðstæður þar sem frægt fólk vill fá að vera það sjálft.“ Veiðihúsarekstrinum lauk árið 2013 en þá keyptu þau hjónin Kaffivagninn á Grandanum: „Þetta er rótgróinn og yndislegur staður á Grandanum við gömlu höfnina. Ég þarf alltaf að vera ná- lægt sjó eða vatni þó enginn sé eins vatnshræddur og ég.“ Áhugamál Mjallar snúast fyrst og fremst um stangveiði: „En ég fer líka mikið á skíði, stunda golf og hestamennsku. Reyndar hef ég gaman af allri hreyfingu og íþrótt- um sem stundaðar eru utandyra.“ Fjölskylda Eiginmaður Mjallar er Guð- mundur Viðarsson, f. 14.1. 1963, matreiðslumaður. Foreldrar hans eru Viðar Arthúrsson, f. 16.5 1936, skósmiður, og Jóhanna Ein- arsdóttir, f. 4.2. 1938, húsfreyja. Þau búa í Reykjavík. Börn Mjallar og Guðmundar eru Karen Guðmundsdóttir, f. 27.11. 1988, læður hótelstjórnandi frá JWU Providence, búsett í Reykja- vík; Daníel Guðmundsson, f. 7.11. 1993, nemi Reykjavík; Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 20.7. 2001, nemi í Reykjavík. Systkini Mjallar: Drífa Daníels- dóttir, f. 21.5. 1965, fram- kvæmdastjóri; Anna Kristín Daní- elsdóttir, f. 12.7. 1966, d. 25 3. 1986, og Kristján Daníelsson, f. 16.8. 1974, framkvæmdastjóri. Foreldrar Mjallar eru Daníel Stefánsson, f. 1.10. 1934, barþjónn, og Karen Kristjánsdóttir, f. 24.12. 1940, barþjónn. Þau eru búsett í Reykjavík. Úr frændgarði Mjallar Daníelsdóttur Mjöll Daníelsdóttir Sigríður María Sigurðardóttir húsfr. á Hrafnsnesi og var á Gvendarnesi Magnús Guðmundsson b.og á Bæjarstæði á Stöðvarfirði Sigurlaug Magnúsdóttir húsfr. á Akureyri og í Rvík Kristján Stefánsson sjóm. á Eskifirði, Akureyri og í Rvík Karen Kristjánsdóttir húafr. Í Rvík Anna Siggerður Jónsdóttir húsfr. á Fásskrúðsfirði og í Rvík Stefán Friðriksson sjóm. á Fáskrúðsfirði og í Rvík Jónína Jónsdóttir húsfr. í Haga og Austurhaga Björn Sigurgeirs b. í Haga og Austur- haga í Aðaldal Eva Björnsdóttir húsfr. í Rvík Karl Stefán Daníelsson prentari í Rvík Daníel Stefánsson barþjónn í Rvík Ólafía Pétursdóttir Petersen húsfr. í Daníelshúsi og í Brekkum Daníel Jónsson skipstj. og stýrim. í Daníelshúsi í Hafnarfirði Hjónin Mjöll og Guðmundur. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015 Ísleifur fæddist á Ási íHoltum 21.5. 1765,sonur Einars Jóns- sonar, skólameistara í Skálholti, og k.h., Krist- ínar Einarsdóttur hús- freyju. Fyrri kona Ísleifs var Guðrún Þorláksdóttir en síðari kona hans Sigríður, dóttir Gísla Thorarensen, prófasts í Odda. Gísli útskrifaðist úr Skálholtsskóla 1783, fór til náms við Kaupmanna- hafnarháskóla 1787 og lauk lögfræðiprófi 1790. Sama ár varð hann sýslu- maður í Húnavatnssýslu og bjó á Geitaskarði. Árið 1800 var Ísleifur skipaður assessor við ný- stofnaðan yfirrétt. Hann flutti þá til Reykjavíkur og byggði húsið Austurstræti 22 árið 1801 en það mun vera fyrsta hús sem byggt var við Austurstræti. Það er um margt sögufrægt hús. Ís- leifur bjó þar til 1805, síðan Trampe greifi, og Jörgen hundadagakóngur settist að í húsinu 1809. Síðar bjuggu þar Castenskjold stiftamtmaður og Moltek greifi en húsið varð seinna aðsetur Landsyfirréttar, var fangelsi bæjarins og ráðhús um skeið. Það brann árið 2007 en var endurreist skömmu síðar. Ísleifur flutti hins vegar að Brekku á Álftanesi og bjó þar til æviloka. Hann varð 1. as- sessor 1817, yfirdómari 1834, var etatsráð að nafn- bót frá 1817, gegndi emb- ætti amtmanns í Suður- og Vesturamti í fjarveru Stef- áns Þórarinssonar og emb- ætti stiftamtmanns þegar Castenskjold stift- amtmaður var settur af um stundarsakir. Ísleifur keypti skoska standklukku sem Halldór Laxness rakti ættir sínar til í Sjömeistarasögu: Syst- ir Ísleifs var Guðný í Ás- garði, amma þeirra systra Guðrúnar Klængsdóttur í Melkoti og Guðnýjar, ömmu Halldórs Laxness. Jórunn, dóttir Ísleifs, erfði klukkuna, gaf hana frænku sinni sem gaf hana þriðju frænku þeirra, Guðrúnu. Þetta er því klukk- an fræga í Brekkukoti (Melkoti) þar sem eilífðin bjó og sem sagði ei-líbbð, ei-líbbð. Eftir að Guðrún lést og Mel- kot var rifið fór Magnús í Melkoti með klukkuna að Laxnesi til móður Halldórs, en hún gaf skáldinu grip- inn sem því er til húsa að Gljúfra- steini. Ísleifur lést 23.7. 1836. Merkir Íslendingar Ísleifur Einarsson Sögufræg Klukkan að Glúfrasteini. 95 ára Hrefna Sigurðardóttir 90 ára Sveinn Snorrason 85 ára Vilhelmína Þorvaldsdóttir Þórarinn Óskarsson Þórey J. Sigurjónsdóttir 80 ára Auður Ellertsdóttir Haukur Viktorsson Sigmar Þorsteinsson 75 ára Arnheiður Kristinsdóttir Björg Þorsteinsdóttir Bryndís Kristinsdóttir Davíð Valgeirsson Hanna María Tómasdóttir Sigurgeir Þórarinsson 70 ára Aðalsteinn Vilbergsson Björn Erlendsson Elísabet Gunnarsdóttir Eysteinn Ingólfsson Gísli Guðmundsson Guðmundur Ragnar Ingvason Hrönn Hákonardóttir Katrín Valsdóttir 60 ára Erla Ólafía Gísladóttir Guðlaug M. Ásgeirsdóttir Hulda Karitas Harðardóttir Linda Hrönn Sigvaldadóttir Margrét Helga Ólafsdóttir Randver Einar Ólason 50 ára Drífa Daníelsdóttir Gunnar Guðmundsson Hallgrímur Óskarsson Helen Williamsdóttir Gray Helga Sigurðardóttir Hjálmar Breiðfjörð Jóhannsson Jerzy Wozniak Kristbjörg Sveinsdóttir Magnús Helgi Sigurðsson Ólafía Karlsdóttir Pétur Pétursson Sigurbjörg Guðmundsdóttir Þorbjörg Ásbjörnsdóttir 40 ára Arnþór Þórðarson Elísabet Huld Ragnarsdóttir Gunnar Aron Ólason Halldór Gunnar Pálsson Haukur Harðarson Hulda Rós Hákonardóttir Íris Kristinsdóttir Jón Þorberg Steindórsson Jón Þorgrímur Stefánsson Magnús Reyr Agnarsson Sigurbrandur Kristinsson Styrmir Guðmundsson Viðar Daði Einarsson Vilma K. Guðmundsdóttir Þórleifur Karl Karlsson 30 ára Atli Antonsson Birna Pálsdóttir Daggrós Þyrí Sigurbjörnsdóttir Friðrik Rúnar Halldórsson Guðný Ólafsdóttir Hannes Ingi Smárason Harpa Særós Magnúsdóttir Helga Vala Ingvarsdóttir Hrannar Ólafsson Ingibjörg R. Egilsdóttir Lukasz Kacprzak Marta Pálsdóttir Mohammed Issam Ihssan Sinokrot Ólafur Valur Ólafsson Sólveig Gunnarsdóttir Tinna Rós Hansen Til hamingju með daginn 30 ára Unnur ólst upp í Reykjavík, er búsett þar og var að ljúka MSc-prófi í lífefnafræði frá HÍ. Maki: Gísli Páll lngimund- arson, f. 1982, bílasmiður og rafvirki, að ljúka bif- vélavirkjun. Stjúpdóttir: Freyja Gísla- dóttir, f. 2006. Foreldrar: Guðrún Árný Arnarsdóttir, f. 1955, hús- freyja, og Magnús Ólafur Helgi Axelsson, f. 1948, lagerstjóri. Unnur Magnúsdóttir 30 ára Snædís ólst upp í Grindavík og býr þar og starfar á sambýli fyrir fatl- aða í Grindavík. Maki: Bogi Adolfsson, f. 1976, sjúkraflutn- ingamaður. Börn: Selma Líf, f. 2006, Guðjón Darri, f. 2012, og Margrét Jara, f. 2014. Foreldrar: Andrea Mar- grét Þráinsdóttir, f. 1966, félagsliði, og Guðjón Sig- urðsson, f. 1964, starfs- maður hjá Stolt Seafarm. Snædís Ósk Guðjónsdóttir 30 ára Sigurður ólst upp í Bandaríkjunum, býr í Reykjavík, lauk prófum í kvikmyndagerð og starfar sjálfstætt sem ljósamað- ur í kvikmyndagerð. Maki: Svava Halldórs- dóttir, f. 1984, fatahönn- uður og verslunarstjóri. Dóttir: Saga Ljós Sigurð- ardóttir, f. 2010. Foreldrar: Ingibjörg Petra Guðmundsdóttir, f. 1962, og Magnús Garðarsson, f. 1958. Sigurður Ágúst Magnússon Íþróttastuðningshlífar Mikið úrval af stuðningshlífum frá Sporlastic. Vandaðar vörur á góðu verði. Sporlastic vörurnar fást einnig í ýmsum apótekum. F A S TU S _H _2 8. 04 .1 5 Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16, 2.h. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Veit á vandaða lausn HNJÁHLÍFAR HÁSINA- OG ÖKKLAHLÍFAR OLNBOGAHLÍFAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.