Morgunblaðið - 21.05.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.05.2015, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það má ýmislegt gera til að gleðja sjálfan sig og aðra án þess að kosta miklu til. Hvernig fólk bregst við óvæntum aðstæðum segir mikið um það. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur lagt mikla vinnu í verkefni þitt og sérð nú fyrir endann á því. Til eru frábær- ar aðferðir til að bæta nokkrum núllum við aftan við launin þín. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Rómantískt samband þarfnast smávegis innspýtingar. Nú er erfiður tími fyrir hvers kyns vináttu og því þarft þú að sýna þolinmæði. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú átt ekki gott með að einbeita þér að flóknum verkefnum í dag, hugurinn fer út og suður. Taktu til og gerðu við það sem þarfnast viðgerðar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Yfirmaður þinn mun hugsanlega færa þér óvænt tíðindi í dag. Ef þú færð á tilfinn- inguna að einhver sé að fara á bak við þig er það sennilega rétt hjá þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú munt sennilega eiga alvarlegar samræður um stjórnmál og trúmál við vin þinn í dag. Mundu að réttlætið sigrar alltaf að lokum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þótt þú eigir erfitt með að hemja tilfinn- ingar þínar geturðu haft stjórn á þeim. Stýrðu samræðum í áhugaverðar áttir. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu þér ekki til hugar koma að þú þurfir að klára allt eins og skot. Erfitt sam- tal sem þú kvíðir mun reynast þér auðvelt. En stórbrotin áætlun er að verða að veruleika. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt enginn brynja sé í fata- skápnum skaltu brynja þig gegn ósvífnum árásum vissra vinnufélaga. Fáðu vin þinn í lið með þér því hann hefur góða dómgreind. 22. des. - 19. janúar Steingeit Sláið öllum þýðingarmiklum samningaviðræðum á frest því þetta er ekki rétti dagurinn til þess að standa í ströngu. Kannaðu fyrst hvað þeir hafa fram að færa og berðu það saman við þín mál. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ýmsar nýjungar eru á döfinni hjá þér og þú ert ágætlega í stakk búinn til að fást við þær. Haltu þessu fyrir þig eða milli þín og náins vinar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér finnst álagið í vinnunni vera orðið fullmikið. Sumir eiga erfiðara með að biðja um aðstoð en aðrir. En þú getur líka valið að líta á þetta sem innblástur. Kemst þótt hægt fari,“ segirHjálmar Freysteinsson og yrkir á Boðnarmiði: Fellur allt í fastar skorður, fljótræði er engin bót. Fiskistofa flytur norður fyrir næstu aldamót. Í síðustu Vísnahornum birtust á Leirnum gamlar ferðavísur í sam- antekt Ólafs Stefánssonar, m.a. þessi eftir Æra-Tobba: Veit ég víst hvar vaðið er, vil þó ekki segja þér – fram af eyraroddanum, undan svarta bakkanum.“ „Vísan hans Æra-Tobba“ varð Grími Thomsen að yrkisefni: „Veit ég víst hvar vaðið er,“ vaðið yfir lífsins straum; á bakkanum sætum sofnast þér svefni fyrir utan draum. „Veit ég víst hvar vaðið er, vil þó ekki segja þér.“ Enginn þetta þekkir vað, þó munu allir ríða það. „Fram af eyraroddanum, undan svarta bakkanum,“ feigðar út af oddanum, undan grafarbakkanum. Æri-Tobbi fór um Ölfus og Flóann: Arra sarra urra glum, illt þykir mér í Flóanum. Þagnar magnar þundar klið, þó er enn verra Ölvesið. Kristján Gaukur Kristjánsson segir frá því á Leirnum að faðir hans, Kristján Jóhannsson frá Skjaldfönn, hafi ekki verið mikið að flíka eigin kveðskap á heimilinu – „en vinur hans kenndi mér eftirfar- andi ferðavísu sem faðir minn orti víst 9 ára gamall um prest sem þjónaði Djúpinu: Veljast að honum veðrin stinn, veikur er jafnan kjarkurinn. Það er eins og andskotinn sé í eltingarleik við prófastinn. Fékk hann víst rassskell í skálda- laun!“ Kristján Eiríksson rifjaði upp þessa limru eftir Þorstein Valdi- marsson: Ég gekk fótbrotinn fimm tíma leið nema fyrst, þennan spöl sem ég reið, og stund sem ég beið og stíg sem ég skreið – en ég stytti mér auðvitað leið! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Fiskistofa, Æri-Tobbi og Grímur Í klípu „VIÐ ÞURFUM AÐ HREINSA ANDRÚMSLOFTIÐ, EN AÐ SJÁLFSÖGÐU BARA OKKAR Á MILLI“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „OG ÞÚ VELTIR ÞVÍ FYRIR ÞÉR AF HVERJU ÉG VIL EKKI FARA Á ÍTALSKA VEITINGASTAÐI“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ...það mikilvægasta sem þú skuldbindur þig til að gera VEISTU AF HVERJU HEIMINN VANTAR MEIRA? MÉR! ÁST! AÐ HEIMURINN ELSKI MIG! ER ÞAÐ AF ÞVÍ VERTINN LEYFIR ÞÉR AÐ SKRIFA? HVER ER TILGANGUR LÍFSINS? AF HVERJU ER ÉG HÉR? Það hefur væntanlega ekki fariðfram hjá nokkru mannsbarni á Íslandi að hún María okkar er að fara að keppa í Eurovision-söngva- keppninni í kvöld. Víkverji óskar henni að sjálfsögðu allrar velgengni, þó að hann viðurkenni það fúslega, að á sínu heimili sjái Frú Víkverji um öll málefni tengd Eurovision. Víkverji eyddi til að mynda ágætu þriðjudagskvöldi í að horfa á fyrri undankeppnina, jafnvel þó að Ísland ætti þar engan fulltrúa, því að frúin skipaði honum að gera það. x x x Víkverji getur ekki sagt að sér hafiendilega þótt undankeppnin leiðinleg, en hann hefði þó líklega aldrei horft á hana ótilneyddur. Þannig er nefnilega mál með vexti, að Víkverji og frú hafa gert með sér samkomulag. Víkverji situr þolin- móður í gegnum allt Eurovision- tengt sem frúnni dettur í hug að láta hann horfa á, og í staðinn kemur Frú Víkverji með Víkverja á alla heima- leiki Knattspyrnufélags Reykjavík- ur með tölu. x x x Vinnufélagar Víkverja sem frétthafa af þessu samkomulagi eru flestir á því að þarna hljóti einhver Genfarsáttmáli að hafa verið brot- inn, því að það falli undir óvenju- harða refsingu að neyða konuna til þess að horfa á íslenskan fótbolta í skiptum fyrir Eurovision-áhorf. Benda þeir á að Eurovision er í mesta lagi nokkrar vikur í apríl og maí, en Pepsi-deildin stendur yfir frá byrjun maí og til loka september. Þegar bikarleikir og Evrópukeppnir hafa bæst við reiknast Víkverja svo til að um sé að ræða ca. 21 klukku- tíma á öllu árinu sem fari í Stór- veldið, á móti kannski 9 sem fari í Eurovision með undankeppnum. x x x Víkverji blæs á allt slíkt tal ogbendir á móti á, að áður en Eurovision-keppnin sjálf hefst eru undankeppnir í hinum ýmsu löndum sem þarf að fylgjast með af jafnmik- illi natni og sjálfri lokakeppninni. Þjáningar Víkverja eru því nokkurn veginn jafnar á við þær sem frúin þarf að þola. víkverji@mbl.is Víkverji Í því birtist kærleikur Guðs til okkar að Guð hefur sent einkason sinn í heiminn til þess að hann skyldi veita okkur nýtt líf. (Fyrsta Jóhannesarbréf 4:9) Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur LEGUR Í BÍLA OG TÆKI Það borgar sig að nota það besta! TRAUSTAR VÖRUR ...sem þola álagið Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is Kúlu- og rúllulegur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.