Morgunblaðið - 21.05.2015, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.05.2015, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015 „Seinni undanúrslitariðillinn er miklu erfiðari en sá fyrri, en ég er sann- færður um að María komist áfram enda frábær söngkona. Þeir jákvæð- ustu tala um hana sem „the dark horse“ sem gæti unnið öllum að óvör- um,“ segir Felix Bergsson, sem er kynnir í sjónvarpsútsendingum RÚV frá Eurovision í Vín. Seinni undan- keppnin fer fram í kvöld og hefst bein útsending kl. 19, en flutningur Maríu Ólafsdóttur á „Unbroken“ er 12. lagið í röðinni af þeim 17 sem keppa í kvöld. Röð flytjenda má nálgast á vefnum eurovision.tv. Að sögn Felix spá veðbankar Sví- þjóð sigri, en þar er á ferðinni Måns Zelmerlöw með lagið „Heroes“. Í næstu sætum á eftir eru Ítalía, Rúss- land og Ástralía. „Atriði Svía er mjög flott og mikið í það lagt. Því var hvísl- að að mér að söngvarinn sjálfur væri að setja mikla peninga í þetta atriði. Hann er ákaflega einbeittur og í þessu til að vinna, en það á reyndar næstum alltaf við um Svíana. Þeir haga sér alltaf eins og sigurvegarar og það fleytir þeim mjög langt,“ segir Felix og tekur fram að Guy Sebastian frá Ástralíu gæti komið á óvart. „Það bæri vott um mikla gestrisni,“ segir Felix og rifjar upp að Áströlum var boðið að taka þátt í ár í tilefni af 60 ára afmæli keppninnar. Spurður hvort eitthvað hafi komið sér á óvart við úrslit fyrri undan- úrslitariðilsins svarar Felix því neit- andi, en tekur fram að sér hafi þótt miður að Finnar hafi ekki komist áfram. „Það var upplýst í gær að dómnefndir og áhorfendur voru ekki sammála um eitt laganna og mér finnst líklegt að reyndin hafi verið sú að dómnefndir hafi ekki kosið Finna áfram, en að áhorfendur hafi gert það,“ segir Felix og tekur fram að ekki verði upplýst um hvaða lag hafi verið að ræða fyrr en að lokinni aðal- keppni á laugardag. silja@mbl.is Ljósmynd/Elena Volotova(EBU) Örugg María Ólafsdóttir geislaði af öryggi þegar hún söng lagið Unbroken á lokaæfingu í Vín í gær, en seinni undanriðill Eurovision fer fram í kvöld. Seinni riðillinn í Eurovision erfiðari Ljósmynd/Elena Volotova (EBU). Hetjur Måns Zelmerlöw syngur framlag Svía sem nefnist Heroes.  17 lönd keppa um 10 sæti í kvöld Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Tónlistarmaðurinn Helgi Valur hefur gefið út fjórðu plötu sína, Notes From The Underground, en platan kom út þann 13. maí. Flest lög plötunnar eru samin á áfanga- heimili sem Helgi dvaldi á eftir meðferð en titillag plötunnar var samið í Berlín og markar það endalok erfiðs tímabils sem einkenndist af óreglu og geð- sjúkdómum. Þá var loka- lag plötunnar, „Love love love love“, samið í fyrstu innlögn hans á geðdeild. Að plötunni kemur fjöldi tónlist- armanna með Helga Val. Má þar nefna Ása Þórðarson úr hljóm- sveitinni Much, Úlf Alexander úr Oyama, Berg Anderson úr Grísa- lappalísu og Katie Buckley úr Sin- fóníuhljómsveit Íslands. „Ég byrjaði að huga að þessari plötu 14. mars 2012, daginn sem ég ákvað að vera edrú en hug- myndin fæddist á geðdeild árið 2010. Ég samdi þá fyrsta lagið sem átti jafnframt að vera eina lagið á plötunni,“ segir Helgi. Sú áætlun gekk þó ekki eftir og þegar hann var búinn að vera edrú í um eitt ár þá hóf hann að semja og taka upp lögin á plötuna. Hann segir það hafa verið lið í því að rækta sig eftir óreglu að taka upp geislaplötu og láta gamlan draum rætast, að gefa út á vínyl. Sættir tvo heima „Platan markar nýtt upphaf og endalok í mínu lífi, eyðingu og til- urð. Maður verður afkastameiri og massar allt ferlið þegar maður er edrú. Þá er maður ekki að sleppa neinum liðum í ferlinu,“ segir Helgi en hann semur alla texta og lögin á plötunni sjálfur og eru allir textarnir á ensku, nema tveir. „Ég hef alltaf sungið á ensku en mig langaði að vera mjög einlægur og persónulegur og náði ég að semja tvö lög á íslensku sem ég er mjög sáttur við,“ segir hann en lögin fjalla um að sætta tvo heima, undirheima og líf hversdagsleik- ans. Fyrri hluti lokalagsins, „Love love love love“, var saminn á geð- deild og er fyrri hlutinn frjálst flæði fyrstu dagana á geðdeildinni, segir Helgi. Hann týndi síðar text- anum og var búinn að semja nýjan texta. Síðar fann hann textann og varð þá úr ákveðið endurkast á milli tveggja tímabila. Annars veg- ar á meðan hann var á geðdeild- inni og hins vegar nokkru seinna er hann var útskrifaður. Helgi Valur stendur fyrir útgáfu- tónleikum á Húrra á miðvikudags- kvöldið í næstu viku, 27. maí, og hefjast þeir klukkan 21. „Markar nýtt upphaf og endalok í mínu lífi“  Helgi Valur með plötu  Byrjaði þegar hann varð edrú Ljósmynd/Takeshi Miyamoto Listamaðurinn „Maður verður afkastameiri og massar allt ferlið þegar maður er edrú. Þá er maður ekki að sleppa neinum liðum,“ segir Helgi. Finnski hönnuðurinn Ilkka Supp- anen hlýtur hin virtu hönn- unarverðlaun Torsten och Wanja Söderbergs pris í ár. Þetta eru ein virtustu hönnunarverðlaun samtím- ans og nemur verðlaunaféð einni milljón sænskra króna, um sextán milljón íslenskum. Suppanen er fæddur árið 1968 og nam arkitektúr við Tækniháskól- ann í Helsinki og innanhús- arkitektúr og húsgagnahönnun við Aalto-háskólann þar í borg. Hann hefur síðan unnið með fjölda þekktra fyrirtækja, svo sem Artek, Nokia, Zanotta og Marimekko, með sjálfbærni að leiðarljósi. Þá hefur hönnun hans verið sýnd í helstu söfnum og á hönnunartvíæringum. Suppanen hlýtur Söderbergs verðlaunin Ljósmynd/Pierre Bjork Hönnuðurinn Verk Suppanen hafa not- ið verðskuldaðrar athygli á liðnum árum. Tveir fyrirlestrar verða fluttir í stofu 101 í Odda í dag, fimmtudag, klukkan 16.30 í hinni athyglisverðu fyrirlestraröð Miðaldastofu Há- skóla Íslands um Landnám Íslands. Sverrir Jakobsson, prófessor í miðaldasögu, fjallar um Ara fróða, landnám í Breiðafirði og helstu for- ystumenn á því svæði. Náin vensl hafa verið á milli þessara fjöl- skyldna frá fyrstu tíð og Ari var tengdur þeim öllum. Torfi H. Tulinius, prófessor í ís- lenskum miðaldafræðum, fjallar um ritun Landnámu í ljósi kenninga heimspekingsins Paul Ricoeur um „sjálfsmynd sem afurð frásagna“. Fjalla um Ara fróða og ritun Landnámu Morgunblaðið/Sverrir Prófessorinn Sverrir Jakobsson fjallar um Ara fróða og landnám í Breiðafirði. ÞÚNÝTURÞESSAÐMOKA INNKÍLÓMETRUNUMÁCANNONDALE …OGVELURLENGRILEIÐINAHEIM. 529.900,- CAAD86TIAGRA SYNAPSEULTEGRACARBON56CM210.000,- HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200 VERSLAÐU Á WWW.GÁP.IS LEIKASÉRUMHELGAR &HJÓLA Í VINNUNAÁVIR KUMDÖGUM!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.