Morgunblaðið - 21.05.2015, Síða 33

Morgunblaðið - 21.05.2015, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015 ÍSLENSKT TAL POWERSÝNING KL. 10:30 Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus ingu, er ekki eitthvað andlegt í þeim? Og litirnir, fölrauður, bleikur og sundlaugablár, eru þeir ekki líka íslenskir?“ spyr hann Helga og hlær. Lühti segir síðan að myndverk sín séu alltaf óræð. „Ég hef engan áhuga á að skapa expressjóníska list, tjáningin á að koma úr hugs- ununum um verkin, ekki úr mynd- unum sjálfum. Mér finnst gaman að beita ein- földum og ódýrum brögðum í sköp- unarferlinu. Ekki eins og Picasso og Bacon með tjáningarríkum lita- samsetningum í málverki, heldur kann ég betur við að ýta á takka á myndavél eða smella með músinni í Photoshop.“ Þegar Lühti er spurður að því hvort hann njóti þess að vera prakkaralegur í listinni, þá glottir hann og kinkar kolli. „Ég vildi gjarnan vera prakkari en mér tekst það aldrei. Ég leita líka fegurðar en tekst aldrei að fanga hana í sinni hreinustu mynd.“ efi@mbl.is Morgunblaðið/Einar Falur Í stofunni Urs Lühti við nokkur verka sinna í Ganginum. Til hægri er eitt nýju verkanna sem hann vann fyrir sýninguna en á hillu eldri myndröð. AF TÓNLIST Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Írska sjarmatröllið Damien Rice hélt eftirminnilega tónleika í Þjóðleikhúsinu í fyrrakvöld og höfðu sérfróðir um söngvaskáldið það á orði, að tónleikum loknum, að Rice hefði verið í óvenjugóðu formi þetta kvöld. Rice fór sem rússíbani um tilfinningaskalann, allt frá því að leika á gítarinn og syngja svo mjúklega að vart heyrðist í honum yfir í að sprengja nánast hátalara og hljóðhimnur tónleikagesta með gargandi rokki. Allt virtist þá ætla að bresta; röddin, gítarinn, hátalararnir og Rice sjálfur. Allt með vilja gert, geri ég ráð fyrir. Stundum var hann trúbador; söngvari, gítarleikari og sagna- maður, og stundum eins manns hljómsveit, þökk sé skælifetlum og fótknúnum hljóðbrellugræjum sem ég kann ekki að nefna. Rice var einn á sviðinu, engin hljóm- sveit og söngkonan Lisa Hann- igan fjarri góðu gamni. Ekki kom það að sök, Rice jafnvel betri án hljómsveitar en með, vilja sumir meina. Rice heillaði gesti með hisp- urslausri framkomu sinni þetta kvöld, ófeiminn við að tala um til- finningar sínar og misheppnuð ástarsambönd m.a. og benti rétti- lega á að lögin hans væru ekki ástarsöngvar, eins og einhverjir virtust halda. Þau væru öllu held- ur haturslög, söngvar um mistök, eftirsjá, tímann og sorgina, þó vissulega kæmi ástin oftast nær við sögu. Rice lá mikið á hjarta þetta kvöld og hann var á köflum tregafullur, jafnvel bitur, þó alltaf væri stutt í grínið. Kærastinn Jesús En byrjum á byrjuninni, tékk- nesku tónlistarkonunni Marketu Irglovu sem hitaði upp fyrir Rice með blíðum söng og mjúkum ball- öðum. Irglova hefur búið hér og starfað í þrjú ár, varð ástfangin af Íslendingi og eiga þau nú von á öðru barni sínu. Irglova deildi þessu með tónleikagestum, virtist allt að því feimin þegar hún sagði frá og brosti sínu blíðasta. Irglova tók nokkur lög sem ég kann ekki að nefna, falleg en dálítið keimlík hvert öðru og endaði svo á lagi úr rokksöngleiknum Jesus Christ Superstar, ,,I don’t know how to love him“. Söngurinn var ægifag- ur og Irglova sagði skemmtilega sögu áður en hún hóf hann, að hún hefði orðið ástfangin af Jesú þegar hún horfði barnung á kvik- myndina Jesus Christ Superstar. Ekki hefði hún þá gert sér grein fyrir pínu Krists á krossinum, teiknað myndir af honum kross- festum hvert sem hún fór og þeg- ar fólk spurði af hverju myndin væri hefði hún einfaldlega svarað því til að hún væri af kærastanum hennar. Var þá hlegið í Þjóðleik- húsinu. Syndunum kastað á bálið Eftir alllangt hlé var komið að Íranum góða. Hann kom víða við í lögum sínum og spjalli við gesti, ýmis vandamál mannanna voru rædd, m.a. mikilvægi þess að láta sig tilfinningar annarra varða og að fyrirgefa sér eigin syndir. Hann hefði sjálfur prófað að kasta syndunum á bálið með góðum árangri. Það var líka stutt í grínið og furðulegar samlík- ingar. Þannig bað Rice gesti að ímynda sér hvernig það færi ef unglingi væru færðar fullar ferðatöskur af peningum á hverj- um degi, töskur með mörg hundr- uð milljónum króna, og hann beð- inn um að gæta þeirra vel og eyða ekki peningunum. Auðvitað gengi það ekki upp frekar en að geyma milljónir sæðisfruma á degi hverjum! Einmitt það. Og nokkur laga sinna kallaði Rice í gríni ,,typpa-lög“, þó þau fjalli raunar ekki um hinn utaná- liggjandi fítus. Að vísu má finna eftirfarandi setningu í texta lags- ins ,,The Professor“: ,,Loving is good if your dick’s made of wo- od.“ Frekar verður ekki farið út í þá sálma að þessu sinni. Hæfileikarík Margrét Sá írski brást ekki aðdáend- um sínum þetta kvöld. Þetta voru fyrstu tónleikarnir sem ég hef séð með honum og þeir verða vonandi fleiri. Rice tók fjölmörg lög af fyrstu tveimur plötum sínum, nán- ast hvern einasta smell (þeir eru margir) og af síðustu plötu sinni, hinni bráðgóðu My Favorite Fa- ded Fantasy. Hann hóf leika á ,,Delicate“ og á eftir fylgdu m.a. ,,The Blower’s Daughter“, ,,9 Cri- mes“, ,,Woman like a man“, ,,The Greatest Bastard“, ,,The Profess- or“ og ,,I remember“. Í ,,Woman like a man“ var blindandi ljósa- sýning og gekk mikið á og lagið ,,Amie“ tók Rice að ósk tónleika- gests og ,,The Blower’s Daug- hter“ var fyrsta aukalagið eftir uppklapp og eflaust enn stærsti smellur Rice. Óvæntar uppákomur voru tvær. Fyrir flutning á laginu ,,I remember“ sagðist Rice gjarnan vilja fá söngkonu úr sal til að syngja með sér. Áttu tónleikagest- ir líklega ekki von á því að ein- hver byði sig fram en það gerði þó ung kona að nafni Margrét. Hún tók lagið með Rice sem þurfti að vísu að hvísla að henni textanum á köflum, gestum til gamans, og söngur hennar var fagur og merkilega góður í ljósi aðstæðna, þ.e. að syngja óvænt með sjálfum Damien Rice á tón- leikum fyrir fullu Þjóðleikhúsi. Tónleikagestir studdu vel við Margréti, klöppuðu henni lof í lófa og hún má sannarlega vera stolt af sínu framlagi. Undir lok tónleika var svo aftur boðið upp á óvænt atriði því karlakór Kaffibarsins, Bartónar, birtist á sviðinu, steig hægt út úr myrkrinu, gestum til nokkurrar furðu. Irglova var kölluð upp á svið og saman tóku þau Rice og kórinn lokauppklappslag. Frábær endir á vel heppnuðum tónleikum. Þeir sem eiga miða á tónleika Rice í Gamla bíói á mánudaginn eiga von á góðu. Persónulegi trúbadorinn Morgunblaðið/Kristinn Söngvaskáldið „Þeir sem eiga miða á tónleika Rice í Gamla bíói á mánudaginn eiga von á góðu,“ segir blaðamaður. Margrét Unnarsdóttir, 24 ára nemi í sálfræði við Há- skóla Íslands, svaraði kalli Rice og söng með honum í laginu „I remember“ á tónleikunum. Margrét var í kór sem barn allt til 16 ára aldurs og hóf þá stutt söngnám á Akureyri. Hún sagði í samtali við blaðamann í gær að hún væri mikill aðdáandi Rice og hefði því ekki viljað sleppa þessu gullna tækifæri, að fá að syngja með hon- um á tónleikum. Kærastinn hefði líka hvatt hana til þess. „Ég þekki lagið vel en textinn gleymdist í stress- inu,“ segir Margrét og hlær. Spurð að því hvernig hefði verið að syngja með Rice segir hún það hafa verið mjög sérstaka líf- reynslu. „Þegar þetta var yfirstaðið var mjög óraunverulegt að þetta hefði gerst,“ segir Margrét og hlær. „Þetta var svakalega gaman.“ Söngelskur sálfræðinemi MARGRÉT UNNARSDÓTTIR TÓK LAGIÐ MEÐ DAMIEN RICE Margrét Unnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.