Morgunblaðið - 08.06.2015, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.06.2015, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Bernhöfts bazaar eða ein-faldlega Basarinn nefnistmarkaður sem fata-hönnuðirnir Laufey Jóns- dóttir og Þórey Björk Halldórsdóttir tóku að sér að setja á laggirnar í tengslum við verkefnið Torg í bið- stöðu á vegum Reykjavíkurborgar. Nafngiftin „bazaar“, rituð á út- lensku, er á þeirra ábyrgð og hug- myndin um margþema markað er sömuleiðis runnin undan þeirra rifj- um. Enda eru þær allt í öllu og allt í senn; hönnuðir, verkefnastjórar og hugmyndasmiðir Bernhöfts bazaars. Þær kynntust í Listaháskóla Ís- lands og síðan hafa leiðir þeirra oft skarast. Báðar hafa komið víða við í tengslum við þverfaglegt hönnunar- starf, grafíska hönnun, sýningahald og viðburðastjórnun svo fátt eitt sé talið. Markaðsstarf er líka á feril- skránni, til dæmis hélt Þórey utan um PopUp-verslun; hönnunarmark- að, sem skaut upp kollinum annað slagið hér og þar í borginni. Þótt hönnunarflíkur verði ekki í aðalhlutverkum á Bernhöfts bazaar í sumar kennir þar margra grasa. Fatahönnuðirnir komu sér saman um að hver laugardagur frá 20. júní til 25. júlí yrði helgaður einu þema. Fyrsta þemað verður tónlist og síð- an koll af kolli plöntur, bretti og reiðhjól, leikföng, beint frá ömmu og afa og loks list. Marga vantar söluvettvang „Við vorum með fjölmargar hugmyndir, vildum bjóða upp á þemu sem kæmu á óvart og jafn- framt áhugaverðan markað sem höfðaði til margra,“ segir Laufey og nefnir sem dæmi þemað Beint frá ömmu og afa, sem sé vettvangur fyrir seljendur sem venjulega taki ekki þátt í mörkuðum. „Margir vinna ótrúlega fallegt handverk en vantar vettvang til að kynna það og selja,“ segir Laufey. Með því að hafa eitt ákveðið þema alla opnunardagana segja þær Laufey og Þórey að meiri fjölbreytni skapist en ella. „Leiðarljós okkar og útgangspunktur er að vekja athygli á fallegum garði og hafa alltaf eitt- hvað nýtt á boðstólum fyrir gesti og gangandi til að skoða, kaupa og njóta,“ segja þær og benda á að í samræmi við þemu hvers mánaðar verði uppákomur af ýmsu tagi, t.d. tónlistaratriði og leikrit sem flutt verða á taflborðinu í miðju garðsins. Þær stöllur segja þemun skapa tækifæri til að brydda upp á alls konar skemmtilegum nýjungum. Ein sé að gefa fólki tækifæri til að Flaggað til bazaars á Bernhöftstorfu Laufey Jónsdóttir og Þórey Björk Halldórsdóttir eru allt í senn, hönnuðir, verk- efnastjórar og hugmyndasmiðir Bernhöfts bazaars, margþema markaðar sem haldinn verður sex laugardaga í sumar. Þemun eru tónlist, plöntur, bretti og hjól, leikföng, beint frá ömmu og afa og loks list. Morgunblaðið/Arnaldur Kennileiti Bernhöftstorfan er eitt helsta kennileiti Reykjavíkurborgar. Árið 2011 voru 300 milljónir tonna af plasti framleiddar í heiminum, þar af fór um þriðjungur í einnota um- búðir og varning. Afleiðingarnar eru m.a. þær að árlega hafna meira en 6 milljónir tonna af rusli í ám og höf- um. Þessar sláandi staðreyndir koma m.a. fram í heimildarmyndinni Plast- strendur, Plastic Shores, klukkutíma heimildarmynd um plastmengun í sjó, sem sýnd verður í Bíó Paradís í kvöld, 8 júní, á alþjóðlegum degi hafsins . Umræður verða á eftir myndinni með þátttöku Egils Helgasonar sjón- varpsmanns, Hrannar Ólínu Jörunds- dóttur, doktors í umhverfisefnafræði og verkefnisstjóra hjá MATÍS, Karen- ar Kjartansdóttur, upplýsingafulltrúa Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Árna Snævarr, upplýsingafulltrúa Sameinuðu þjóðanna. UNRIC, Upplýsingaskrifstofa Sam- einuðu þjóðanna, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), Evrópustofa og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi standa að sýningu myndarinnar. Sjónum beint að mengun neyslusamfélagsins Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Fýkur yfir hæðir Rúlluplast sem og annað plast getur feykst til og frá og endað með ósköpum í ám og sjó þar sem það mengar lífríkið gríðarlega. Heimildarmynd og umræður um plastmengun í höfum heims Söngkonurnar Silva og Anna Sóley koma fram með Hilmari Jenssyni gít- arleikara og Þórði Högnasyni bassa- leikara á djasstónleikum í Djúpinu í kvöld kl. 20. Fluttir verða standardar í hefðbundum útsetningum, t.d. My Ideal og Some Other Time. Söngkon- urnar flytja sitt settið hvor. Djúpið er á neðri hæð veitinga- hússins Hornsins við Hafnarstræti í Reykjavík. Meiningin er að endur- vekja staðinn sem tónleikastað, en hann var áður þekktur djassklúbbur þar sem fram komu þekktir djassleik- arar. Endilega … … farið á djasstónleika í Djúpinu Silva Anna Sóley Byltingafræði við Háskólann á Bif- röst stendur fyrir málstofu með yfir- skriftinni Hverju skila brjóstabylt- ingar?, í húsnæði skólans við Hverfisgötu 4-6, 5. hæð kl. 12 til 13 þriðjudaginn 9. júní. Ýmsum spurningum verður velt upp, t.d. í ljósi þess að rúmum tveim- ur mánuðum eftir brjóstabyltinguna á Íslandi er eins og hún hafi verið gerð fyrir mörgum árum. Aðgerðir sem vöktu athygli erlend- is og tóku yfir umræðuna hér á landi í nokkra daga eru nú eins og eitthvað úr fortíðinni, eitthvað sem við getum skoðað og greint í ljósi tímans. En breyttist eitthvað eða getum við kannski ekki enn metið hvað það er? Hvað segja aðgerðir eins og brjóstabyltingin okkur um mótmæla- menningu samtímans? Hvaða breyt- ingar hafa orðið á jafnréttisbarátt- unni? Er femínismi annað í dag en hann var fyrir nokkrum árum? Og hverju skila aðgerðir eins og að birta myndir af sér berbrjósta? Er hægt að breyta samfélagi eða hugmyndum fólks með aðgerðum af þessu tagi? Málstofa á vegum byltingafræði við Háskólann á Bifröst Hverju skila aðgerðir eins og að birta myndir af sér berbrjósta? Berbrjósta frelsisbaráttukona Málverkið La Liberté guidant le peuple frá 1830 eftir Ferdinand Victor Eugène Delacroix í Louvre-listasafninu í París. Níu opnir kofar úr timbri, kross- viði, speglum og gegnsæju báru- blasti með þök- um mynda basarinn. Hver þátt- takandi fær hálfan kofa og standa þeir bak í bak við söluna. Fyrirtæki fá heilan kofa til um- ráða og ráða uppsetningu rým- isins sjálf. Í hverjum kofa eru hillur og borð fyrir söluvörur. Kofarnir eru níu talsins, átta einstaklingspláss og fjögur fyrirtækjapláss, ásamt einum kofa fyrir veitingasölu. Bak í bak BERNHÖFTS BAZAAR • Konica Minolta fjölnotatækin (MFP) eru margverðlaunuð fyrir hönnun, myndgæði, notagildi, umhverfisvernd og áreiðanleika. • Bjóðum þjónustusamninga, rekstrarleigusamninga og alhliða prentumsjón. • Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur sem eiga það sameiginlegt að gera kröfur um gæði og góða þjónustu. • Kjaran er viðurkenndur söluaðili á prentlausnum af Ríkiskaupum. Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is • BLI A3 MFP Line of the Year 2013 • BLI A3 MFP Line of the Year 2012 • BLI A3 MFP Line of the Year 2011 bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.