Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is
M.BENZ CLS 500
Árg. 2005, ekinn 126 Þ.km,
304hö, sjálfskiptur.
Verð 3.990.000. Raðnr.253093
BMW M5 E60
Nýskr 08/2005, ekinn aðeins
28 Þ.km, 509 hö, sjálfskiptur.
Mjög eigulegur sportari!
Verð 7.900.000. Raðnr.285936
FORD MUSTANG GT PREMIUM
Árg. 2005, ekinn 93 Þ.km,
8 cyl, sjálfskiptur. Supercharged,
ca. 500 hö! Verð 3.980.000.
Raðnr.253617
PONTIAC FIREBIRD
TRANS AM blæju
Árg. 2001, ekinn 51 Þ.km, 5,7L
sjálfskiptur. Verð 3.590.000.
Raðnr.283147
BMW M3
Árg. 2003, ekinn 178 Þ.km.
Verulega flottur! Verð 3.990.000.
Raðnr.252703
Mikið var um að vera í sjávar-
plássum um allt land um helgina í til-
efni sjómannadagsins og má sjá
sýnishorn af hátíðahöldunum hér á
síðunni. Skip og bátar voru í höfn
lögum samkvæmt
og víða var
brugðið á leik,
auk þess sem
gamlir sjómenn
voru heiðraðir og
víða voru sjó-
mannamessur.
„Allir dagar
eru sjómanna-
dagar, því vart
líður sá dagur að
íslenskir sjómenn
séu ekki einhvers staðar að störf-
um,“ sagði Sigurður Ingi Jóhanns-
son sjávarútvegsráðherra í ræðu
sinni í Reykjavík í gær. Hann sagði
framlag sjómanna til efnahagslegrar
velsældar þjóðarinnar mikilsvert,
hefði ætíð verið og myndi alltaf
verða.
Ráðherra vék að stöðu farmanna:
„Þeir sigla á skipum sem eru í eigu
íslenskra fyrirtækja en skipin eru
skráð undir hentifána. Ágreiningur
er milli verkalýðshreyfingarinnar og
sjómannafélaga um íslenska skipa-
skrá sem veitti útgerðum sömu skat-
taívilnanir og sú alþjóðlega. Hér tel
ég að menn eigi að setjast niður og
reyna að finna lausn sem allir geti
sætt sig við. Það væri fengur að því
að íslenskir farmenn gætu verið
skráðir á íslensk skip sem skráð
væru á Íslandi,“ sagði Sigurður Ingi.
Hann sagði Íslendinga hafa verið
lánsama að hafa náð tökum á sinni
sjósókn, fiskistofnar við landið væru
sjálfbærir, íslenskur fiskur væri úr-
valsvara sem hátt verð fengist fyrir
á erlendum markaði og síðast en
ekki síst greiddi íslenskur sjávar-
útvegur háar upphæðir til ríkisins
en væri ekki á framfæri hins opin-
bera eins og víða fyndust dæmi um.
„Í ljósi stöðu sjávarútvegsins er
skýrt í mínum huga að við erum að
gera hlutina með réttum hætti sem
tryggir sjálfbærni og arðsemi,“
sagði ráðherra og enn fremur í loka-
orðum sínum:
Kollsteypur koma niður á
sameiginlegum hagsmunum
„Þótt ýmislegt annað hafi rekið á
fjörur þjóðarbúsins á undanförnum
árum og ætlað er að standa undir
efnahagslegri hagsæld hefur sjávar-
útvegurinn verið ein meginstoð hag-
sældar hér landi um langa hríð og
svo mun áfram verða. Því allt er í
heiminum hverfult; ferðamenn geta
misst áhugann á Íslandi, kannski
verður álið ekki málið í framtíðinni,
tölvuleikir koma og fara – en fisk-
urinn hefur svamlað hér um ómuna-
tíð og fólk þarf mat; prótín. Svo mik-
ið vitum við. Þjóðin hefur treyst á
þolgæði sjómanna og allra sem
næstir þeim standa og mun gera það
áfram.
Ég tel að það verði best gert með
því að byggja áfram á því fyrir-
komulagi sem við höfum haft við
veiðar og vinnslu. Það fyrirkomulag
tryggir arðsemi veiða og vinnslu til
hagsbóta fyrir alla sem hér á landi
búa. Að sjálfsögðu er kerfið ekki haf-
ið yfir gagnrýni og sjálfsagt að sníða
af vankanta, en kollsteypur munu
koma niður á sameiginlegum hags-
munum.“ aij@mbl.is
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fáskrúðsfjörður Eftir siglingu um fjörðinn á laugardag var
farið í ýmsa leiki við smábátahöfnina í köldu sumarveðri.
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Vestmannaeyjar Óskar Þór Kristjánsson (t.v.) og Magni Hauks-
son tóku á því í koddaslagnum og söfnuðu fyrir gott málefni.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Þessir piltar biðu spenntir eftir því að landfestar
Húna II yrðu leystar. Boðið var upp á siglingu um Pollinn.
Allir dagar eru sjómannadagar
„Erum að gera
hlutina með rétt-
um hætti,“ sagði
sjávarútvegs-
ráðherra
Morgunblaðið/Golli
Reykjavík Fjöldi fólks lagði leið sína að höfninni um helgina og margt var þar í boði, meðal annars á athafnasvæði HB Granda í gær.
Sigurður Ingi
Jóhannsson