Morgunblaðið - 08.06.2015, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.06.2015, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015 Þessi vara er laus við: Mjólk Glúten Soja Rotvarn- arefni 10 0% NÁ TTÚRULEGT •100% NÁTTÚRUL EG T • Fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is P R E N T U N . I S UPPLIFÐUMUNINN! Áhrifaríkur ASÍDÓFÍLUS ásamt öðrum öflugum góðgerlum Oft spurt? Af hverju virka PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 góð- gerlarnir svona vel og fljótt á marga meltinga- erfiðleika eins og hægðatregðu, niðurgang, uppþembu, kandíta, sveppasýkingu ofl. Svar Lykillinn er að allir góðgerlarnir í PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 eru gall- og sýruþolnir og ná að lifa ferðina af í gegnummagann niður í smáþarmana. Auk þess er ASÍDÓFÍLUSINN DDS 1, sem hefur þann hæfileika að fjölga sér og dvelja í þörmunum, vinnusamur og stöðugur. Notkun 2 hylki á morgnana á fastandi maga geta gert kraftaverk fyrir meltinguna! Margir fullyrða að þeir sem hafa góða meltingu séu hamingjusamari. - Prófaðu og upplifðu muninn Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 30 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Svalaskjól - sælureitur innan seilingar Þórshöfn | „Páll, Siggi, Villingur og Strútur“ er titill sýningar sem lista- konan Ólöf Nordal opnaði á Fræða- setri um forystufé á Svalbarði á laugardaginn. Þetta eru nöfn for- ystusauða og -hrúts frá Þistilfirði og Hrunamannahreppi, en ljósmyndir Ólafar af þessum höfðingjum prýða sýningarrými í Fræðasetrinu. Auk ljósmyndanna sýnir Ólöf vídeóverkið „Palli skoðar heiminn“, þar sem forystusauðurinn Palli frá Hagalandi er í aðalhlutverki og er myndin sýnd á skjá í Fræðasetrinu. Palli sér sjálfur um töku vídeó- myndarinnar. Hann sýnir gestum umhverfi sitt og það sem helst vek- ur áhuga hans frá eigin sjónarhorni, en á hornum hans var upptökuvél. Verkið, sem er um stundarfjórð- ungur að lengd, sýnir glöggt hvað vekur helst áhuga Palla og er fróð- legt að fylgjast með atferli hans á skjánum. Ólöf kom í Þistilfjörðinn á miðjum vetri til að undirbúa verkið, en á þeim árstíma er fé allt í húsi. For- ystusauðnum Palla var þá hleypt út eftir að Ólöf hafði fest upptökuvél- ina á horn hans og leysti hann hlut- verkið með prýði, eins og vænta mátti af slíkum foringja. Ólöf er fjölhæfur listamaður og hefur áður unnið verk þar sem for- ystufé var viðfangsefnið. Sextán ára sonur hennar, Hjalti, kom með óvænt innlegg við sýningaropnun og lék á fiðlu fyrir gestina, m.a. lag eft- ir afa sinn, tónskáldið Jón Nordal. Uppbókað til ársins 2020 Þegar Fræðasetur um forystufé var opnað í fyrrasumar fékk það af- ar góðar viðtökur og vakti athygli, enda er það einstakt í sinni röð. Þó að það sé ekki stórt er það eftirsótt af listafólki og er litla galleríið nú uppbókað fyrir sýningar allt til árs- ins 2020. Sýning Ólafar er tileinkuð minn- ingu Páls Kristjánssonar frá Her- mundarfelli í Þistilfirði og verður hún opin í sumar til ágústloka. Palli skoðar heiminn  Ólöf Nordal sýnir á Fræðasetri um forystufé í Þistilfirði Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Hrúturinn Palli Listakonan Ólöf Nordal spjallar við Gunnar Þóroddsson frá Hagalandi í Þistilfirði, eiganda Palla, við mynd af forystusauðnum. Stór hluti tekna ÁTVR er hluti af tekjum ríkissjóðs, þ.e. í formi áfengis og tóbaksgjalda, virðisaukaskatts og arðs. Á síðasta ári nam þessi upphæð um 23,7 milljörðum kr. og hækkaði um 5,2% á milli ára, var 22,5 millj- arðar kr. árið 2013. Alls nam arður ÁTVR til ríkissjóðs 1.400 m.kr. Hagnaður ÁTVR var 1.288 m.kr. í samanburði við 1.304 m.kr. árið 2013. Tekjur af sölu áfengis voru 19.067 m.kr. og hækkuðu um 4,7% á milli ára. Alls voru seldar 19,2 milljónir lítra af áfengi, sem er 3% meira magn en árið áður. Flokkað eftir bjór, létt- víni og sterku áfengi var mesta aukn- ing í sölu bjórs, eða 3,6%, og 1,4% aukning í sölu léttvína en 0,3% sam- dráttur í sölu á sterku áfengi. Tekjur af sölu tóbaks jukust um 4,1% á milli áranna 2013 og 2014 og voru 9.510 m.kr. Í magni jókst sala á neftóbaki um 19% og vindlingum um 0,2%, en þetta eru stærstu flokkarnir, samkvæmt því sem fram kemur í árs- skýrslu ÁTVR fyrir 2014. 1.650 milljónir í skilagjald Þar kemur einnig fram að þriðj- ungur allra einnota drykkjar- vöruumbúða sem Endurvinnslan tek- ur á móti kemur frá Vínbúðunum. Skil á drykkjarvöruumbúðum dróg- ust lítillega saman milli ára, en alls var hlutfallið 88% af seldum umbúð- um. Á árinu nam heildarsala drykkjarvöruumbúða 126 milljónum eininga, en þar af voru 40,6 milljónir seldar í Vínbúðunum. Gera má ráð fyrir að skil á umbúðum frá Vínbúð- unum fylgi almennum skilum og því hafi verið skilað til Endurvinnslunnar um 35,3 milljón einingum, eða 87% af þeim 40,6 milljónum sem seldar eru í Vínbúðunum. Greiddar eru 15 krónur í skilagjald fyrir hverja dós eða flösku og því voru greiddar fyrir umbúðirnar um 1.650 milljónir hjá Endurvinnslunni. Skil á áldósum eru best, 89%, en drógust saman á milli ára. Það sama gildir um drykkjargler, en þar er hlutfallið nú 85%. Skil á plasti jukust lítillega. Skilahlutfall umbúða hér á landi er mun hærra en að meðaltali í Evrópuríkjunum og Bandaríkjunum. aij@mbl.is Vínbúðirnar Heimild: Vínbúðin 2013 2014 % breyting Seldir lítrar 18.653.122 19.216.406 3% Fjöldi viðskiptavina 4.285.000 4.383.097 2% Seldir plastpokar 1.838.204 1.761.781 -4% Bréfpokar gefnir viðskiptavinum 1.919.000 1.632.000 -15% Fjölnota pokar 23.334 31.457 35% Hlutfall viðskiptavina sem kaupa plastpoka 43% 40% Milljarðar króna fara í ríkissjóð  Hagnaður ÁTVR tæplega 1.300 millj- ónir í fyrra  Arður til ríkisins 1.400 milljónir  Mest aukning í sölu bjórs Enginn var með allar tölurnar rétt- ar í Lottóinu á laugardagskvöldið og verður potturinn því sexfaldur næst. Fjórir skiptu með sér bónus- vinningnum og hlýtur hver þeirra 136.990 krónur. Á föstudag var heppinn Finni einn með fimm réttar aðaltölur og tvær stjörnutölur í Euro-Jackpot og fær hann fyrir það rúmlega 3,4 milljarða. Einn var með 2. vinning og fær hann tæplega 175 milljónir. Miðinn var keyptur í Koblenz í Þýskalandi. Norðmaður fær 61,6 milljónir fyrir þriðja vinning. Sexfaldur vinningur í lottóinu næst

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.