Morgunblaðið - 08.06.2015, Síða 17

Morgunblaðið - 08.06.2015, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015 Allir litir regnbogans Fjöldi fólks tók þátt í litahlaupinu í miðborginni á laugardaginn og vart mátti sjá hvort áhorfendur eða þátttakendur skemmtu sér betur í allri litadýrðinni. Golli Á undanförnum árum hefur verið unnið að því að gera stjórnsýslu og fjárlagagerð markvissari og gagnsærri. Í því efni hefur sumt tekist vel, annað síður. Ég er þeirrar skoðunar að mikilvægt sé að staldra við og reyna að fá sýn á heildarlín- urnar í þessum efnum – spyrja hvert stefni þegar allt er lagt saman. Ég fæ ekki betur séð við slíka skoðun en að þegar á heild- ina er litið stefni í aukið ráð- herraræði og aukna miðstýringu á kostnað löggjafans. Þetta er slæm þróun. Nefnd vildi auka völd forsætisráðherra… Á síðasta kjörtímabili var sett á laggirnar nefnd til að gera tillögur um umbætur í Stjórnarráðinu og stjórnsýslunni. Hún skil- aði frá sér endanlegu áliti í desember árið 2010. Í niðurstöðum álits þessarar nefndar kemur fram að hún telji brýnt „að tryggja betur samheldni innan ríkisstjórna, m.a. í því skyni að auðvelda þeim að taka erfiðar ákvarðanir. Rannsókn sem nefndin studdist við sýnir að sjálfstæði ráðherra er óvíða meira en hér á landi og hlutverk ríkis- stjórnar og forsætisráðherra að sama skapi veigaminna.Telur nefndin æskilegt að rík- isstjórn hafi meira að segja um stefnumót- andi yfirlýsingar einstakra ráðherra, fjár- hagslega skuldbindandi ákvarðanir, þýðingarmiklar reglugerðarbreytingar, veit- ingu æðstu embætta í ráðuneytum og stofn- unum og skipun nefnda sem undirbúa stefnu- markandi breytingar á löggjöf svo nokkur dæmi séu tekin“. ...við pólitíska smalamennsku Árið 2011 leit síðan dagsins ljós stjórnar- frumvarp sem byggði á áliti framangreindrar nefndar. Þar kom í ljós á hvern hátt stuðla mætti að samhæfingu og „samheldni“ innan ríkisstjórna. Gleymum því ekki að þetta ger- ist á sama tíma og vinsælt var að tala um ketti og kattasmölun, svo vísað sé í orðfæri þáverandi forsætisráðherra um ráðherra og þingmenn í stjórnarmeirihlutanum sem þá héldu uppi gagnrýni um ýmis efni. Í grein- argerð með umræddu frumvarpi segir: „Í frumvarpinu er kveðið skýrar á um skipunar- og verkstjórnarvald forsætisráðherra.“ Á grundvelli þessarar stefnu- mörkunar setti ég fyrirvara við afgreiðslu frumvarpsins úr rík- isstjórn og gerði grein fyrir honum við umræður á Alþingi hinn 15. september 2015. Því er skemmst frá að segja að frum- varpið tók nokkrum breytingum í meðförum þingsins og hafði ég á orði í þingumræðunni að jafn- framt því sem málið þróaðist „dofnaði fyrirvari minn“. Eftir sem áður teldi ég frumvarpið þó afleitt og gagnrýndi harðlega þá meginhugsun þess að auka á miðstýringu í Stjórnarráðinu. Þáverandi stjórnarandstaða... Þáverandi stjórnarandstaða gagnrýndi frumvarpið harkalega og þá ekki síst að Al- þingi ætti ekki lengur að hafa hönd í bagga um skipulag Stjórnarráðsins. Enda gekk stjórnarfrumvarpið út á það að ríkisstjórnin skyldi ráða þessu ein. Þetta þótti þáverandi stjórnarandstöðu ófært. Skiljanlega. Var að lokum sæst á þá málamiðlun að nýskipan ráðuneyta yrði að byggja á þingsályktunar- tillögu sem fengið hefði samþykki Alþingis. Þetta var árið 2011. ...núverandi stjórnarmeirihluti En skjótt skipast veður í lofti. Nú á því herrans ári 2015 er þáverandi stjórnarand- staða, núverandi stjórnarmeirihluti, að leggja til svipaða hugsun og gagnrýnd var svo harkalega í tíð fyrri ríkisstjórnar. Fyrsta grein stjórnarfrumvarps um breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands sem nú er til umræðu á Alþingi hefst á þessum orðum: „Ráðherra kveður á um aðsetur stofnunar sem undir hann heyrir.“ Þetta vill núverandi stjórnarandstaða ekki sætta sig við og krefst aðkomu þingsins til að tryggja að fyrir hugsanlegum flutningi ríkis- stofnana séu rökstuddar málefnalegar ástæð- ur en ekki geðþóttavald að ofan. Skiljanlega. Ráðherranefndir lögfestar En þótt athygli manna hafi einkum beinst að fyrstu grein framangreinds frumvarps um Stjórnarráð Íslands um valdheimildir ráð- herra eru ekki síður afgerandi þær grund- vallarbreytingar sem felast í þriðju grein frumvarpsins um lögbindingu svokallaðra ráðherranefnda. Með lagabreytingunni 2011 var verkstjórnarvald forsætisráðherra m.a. styrkt með því að heimila forsætisráðherra að skipa ráðherranefndir um aðskiljanleg mál. Þetta getur að sönnu verið til góðs um tiltekin afmörkuð málefni en þegar þetta er orðið fast form í ríkisstjórn sem ekki er fjöl- skipað stjórnvald, þar sem einstakir ráð- herrar fara með málefni sem undir þá heyra, getur þarna orðið til ákvörðunarvettvangur sem ekki er í samræmi við stjórnskipanina og læt ég þá liggja á milli hluta að þetta fyrirkomulag í síðustu ríkisstjórn varð ekki til að efla samvinnu þvert á ráðuneyti, hvað þá auka gagnsæi. Nú vissu sumir en aðrir síður hvað gerðist. Ætlunin er nú að ganga enn lengra í þessa átt, án þess þó að for- sendur með tilvísan í stjórnskipan hafi verið nægilega ígrundaðar. Eða hvað? Hafa þessar lagabreytingar ef til vill verið vel hugsaðar? Mynda þær og breytingar á ýmsum öðrum lögum þegar allt kemur til alls samfellu þar sem allt gengur út á að efla ráð- herraræði og á endanum ráðsmennsku for- sætisráðherra? Í greinargerð með þriðju grein frumvarpsins um Stjórnarráðið sem nú er til umræðu, þar sem fjallað er um lögbind- ingu ráðherranefnda, er vísað í reynslu af ráðherranefndum frá því í tíð síðustu ríkis- stjórnar og geri ég ráð fyrir að jákvætt mat í því efni sé komið frá embættismönnum í for- sætisráðaneytinu. Varla er það komið frá þeim fyrrverandi ráðherrum sem hafa tjáð sig um þetta sérstaklega á þingi í umræðunni um Stjórnarráðsfrumvarpið á undanförnum dögum. Þar hefur mátt kenna gagnrýni á þetta fyrirkomulag. En meira hangir á spýt- unni. Í greinargerðinni segir nefnilega: „Til- lagan er sett fram í samhengi við fram komið frumvarp til laga um opinber fjármál en sam- kvæmt þeim tillögum sem þar eru settar fram munu ábyrgð og valdheimildir ráðu- neyta þegar kemur að framkvæmd fjárlaga aukast umtalsvert.“ Opinber fjármál að tillögu AGS Fyrir þinginu liggur nú frumvarp um Opinber fjármál. Það er unnið að frumkvæði og með aðstoð sérfræðinga frá Alþjóðagjald- eysissjóðnum og er mjög í anda hans. Sam- kvæmt frumvarpinu er leitast við að gera fjármál ríkisins sem líkust því sem tíðkast í fyrirtæki, að mínu mati á kostnað félagslegra sjónarmiða. Í samhengi þessarar greinar vil ég þó fyrst og fremst benda á að flestum þeim sem fylgjandi eru þessari tillögusmíð í anda AGS og hinum sem gagnrýna hana ber saman um að hún gangi út að efla vald ráð- herra og ráðuneyta. Stjórnarskrártillögur í sömu átt Þótt það eigi varla heima í þessari blaða- grein um stjórnarfrumvörp fyrr og nú þá vil ég benda á að tillögur sem fram hafa komið um breytingar á Stjórnarskrá Íslands virðast margar hverjar þessu markinu brenndar. Stjórnlagaráð setti fram tillögur um að ráð- herrar sætu ekki á Alþingi og glötuðu þar með tengslum við aðra innan þingsins en samráðherra sína og síðast en ekki síst við sinn góða verkstjóra, forsætisráðherrann, sem samkvæmt tillögum ráðsins „ákveður skipan ráðuneyta og tölu ráðherra og skiptir störfum með þeim…“! Áherslurnar virtust mér í sama farvegi og komu fram í áliti starfshóps forsætisráðu- neytisins í byrjun maí 2010 um „samhenta stjórnsýslu“ sem vikið var að í upphafi. Þar var talað um að þörf væri á að „skerpa á for- ystuhlutverki forsætisráðherra í ríkisstjórn“; aðrir ráðherrar ættu að sitja „í skjóli“ hans og mætti ekki orka tvímælis hverjum bæri „að knýja á um ábyrgð þeirra eða afsögn þegar ástæða þykir til“. Efla þarf Alþingi Ég er þeirrar skoðunar að auka eigi beina aðkomu þjóðarinnar að ákvarðanatöku um mikilvæg málefni. En næsta þrep lýðræðisins við almennan þjóðarvilja eins og hann kemur fram í almennri atkvæðagreiðslu er fulltrúa- lýðræðið á Alþingi. Ég hvet til vakandi og gagnrýninnar um- ræðu um greinilega tilhneigingu tillögusmiða stjórnarfrumvarpa sem lúta að stjórnskipan landsins – óháð ríkisstjórnum – til þess að draga úr vægi Alþingis. Tillögur eru gerðar af þeirra hálfu um auknar valdheimildir ráð- herra jafnframt því sem reynt er að miðstýra ákvarðanatöku í Stjórnarráði Íslands. Allt væntanlega til að auka „samheldni“ að hætti hins góða smala. Spurningin er hvort gagnsæi og gagnrýnin hugsun gæti orðið fórnarlambið. Eftir Ögmund Jónasson »Ég er þeirrar skoðunar að auka eigi beina aðkomu þjóðarinnar að ákvarðanatöku um mikilvæg málefni. Ögmundur Jónasson Höfundur er alþingismaður. Aukin miðstýring í stjórnarráði og stjórnsýslu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.