Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 19

Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015 Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, BRYNJÓLFS GUÐMUNDSSONAR, fyrrum bónda á Galtastöðum, Flóahreppi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Fossheima fyrir alúð og góða umönnun. . Arndís Erlingsdóttir, Erlingur Brynjólfsson, Ragnar Geir Brynjólfsson, María Geraldine B. Cuizon, afabörn og langafabörn. Bróðir okkar og frændi, HARALDUR JÓNSSON frá Fremra-Hálsi í Kjós, lést þann 3. júní síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut. Útförin fer fram frá Áskirkju 19. júní kl. 13.00. . Ósk Jónsdóttir, Jenný Jónsdóttir, Ása Jónsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Jón Þorgilsson, Eyvindur Þorgilsson, Birna Grímsdóttir, Ingi Valtýsson. Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir og systir, VALA INGIMARSDÓTTIR, Einimel 11, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 1. júní. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 10. júní kl. 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans. . Bjarni Þórður Bjarnason, Bryndís Líf Bjarnadóttir, Ingimar Stefán Bjarnason, Ingimar Jóhannsson, Lillý Valgerður Oddsdóttir, Oddný Ingimarsdóttir, Thorsteinn Jóhannesson, Oddur Ingimarsson, Soffía Valgarðsdóttir, Davíð Ólafur Ingimarsson. ✝ Björn JóhannGuðmundsson fæddist að Litla- Lambhaga í Borg- arfirði 11. apríl 1931 og lést á Ak- ureyri 24. maí 2015. Foreldrar hans voru Ásta Jónsdóttir, f. 6.4. 1901, d. 15.9. 1975 og Guðmundur Björnsson, f. 2.9. 1896, d. 27.1. 1989. Systkini Björns eru: Guð- mundur Óskar, f. 1928 (sam- feðra), Guðjón, f. 1929, Sess- elja, f. 1933, d. 2009, Björnfríður, f. 1936, Valdimar, f. 1937, Ásmundur, f. 1939. Eiginkona Björns var Guðný Sigríður Kolbeinsdóttir frá Stöng í Mývatnssveit, f. 7. maí 1929, d. 18. febrúar 2015. Þau gengu í hjónaband árið 1952. Fyrstu árin bjuggu þau á Stöng fyrir utan einn vetur í Valagili í Reykjadal. Árið 1958 byggðu þau Hólabraut í Reykjadal og bjuggu þar til hins síðasta. Fyr- ir nokkrum árum festu þau kaup á íbúð á Akureyri sem þau dvöldu í af og til síðustu árin. Börn þeirra eru: 1) Ragnheiður, f. 1951, maki Jóhann Karlsson. Börn: Guðný arsýslu til að vinna á skurð- gröfu á vegum Vélasjóðs Ís- lands. Björn gerðist meðeigandi og framkvæmdastjóri Rækt- unarsambandsins Smára árið 1955. Þar var unnið fyrir bændur við jarðvinnu á sumrin og viðgerðir á vélum á veturna. Smári tók m.a. þátt í gerð veg- ar fyrir Ólafsfjarðarmúla og byggingu Kísiliðjunnar, sem hófst árið 1965. Árið 1971 stofnaði Björn eig- ið félag, BJG ehf., sem tók að sér vegagerð og vinnu við bor- plön við Kröfluvirkjun frá árinu 1974 og var hann við það ásamt ýmsu öðru fram yfir 1990. Síðustu árin var hann með ýtuna sína við minni verk- efni, var verkstjóri við vega- gerð og lagfærði m.a. veg yfir Sandfell í Bárðardal. Á árunum milli 1980-90 fékkst Björn við að þróa nýjar lausnir varðandi snjóruðn- ingstæki og fleira, m.a. var honum boðið að kynna upp- finningar sínar á sýningu í Svíþjóð. Um sjötugt lærði Björn undirstöðuatriði í silfursmíði og hóf framleiðslu á víravirki fyrir þjóðbúninga, auk skart- gripa. Eftir hann liggja kross- ar, hringar, nælur og upp- hlutasett. Björn var stofnfélagi í Lions- klúbbnum Náttfara og félagi í Frímúrarareglunni. Útförin fer fram frá Glerár- kirkju 8. júní 2015, kl. 13.30. Lára og Klara Ás- rún 2) Ásta, f. 1953, maki Sigurjón Valdimarsson. Börn: Valdimar Kolbeinn, Signý Björg og Sara Valný. 3) Arna Jak- obína, f. 1957, maki Skúli Rúnar Árnason, börn: Jó- hann Björn og Árni. 4) Guðmundur Kolbeinn, f. 1959, maki Guðlaug Ágústs- dóttir, börn: Eyrún Ösp, Björn Jóhann og Ágúst Ingi. 5) Birna, f. 1965, börn: Kol- björn Ivan, Sigrún Gyða, Björn Húnbogi og Guðni Hávarður. Fyrir hjónaband átti Björn son, Guðmund Eggert, f. 1951, maki Birgitta Granqvist, börn: Árný Anna, Eyjólfur, Hrafn- hildur Stella, Daníel og Martin. Barnabarnabörnin eru orðin 30. Þegar Björn var 9 ára flutti hann með fjölskyldu sinni að Arkarlæk í Skilmannahreppi. Hann fór 15 ára að vinna á jarðvinnsluvélum hjá Rækt- unarsambandi Flóa og Skeiða. Árið 1950 fór Björn, þá 19 ára gamall, norður í Þingeyj- Faðir minn, Björn J. Guð- mundsson, oft kallaður Ýtu- Björn, yfirgaf bernskustöðvar sínar 15 ára gamall og fór á vinnuvélanámskeið á Selfossi. Í framhaldi af því fór hann að vinna á jarðýtu hjá Sigfúsi Öfjörð og var síðan viðloðandi jarðýtur til dauðadags, eða í 69 ár. Hann náði undraverðum tökum á stjórn véla svo eftir var tekið. Reyndar var sama hvað hann tók sér fyrir hendur, allt lék í höndum hans. Skóla- félagar á Selfossi horfðu t.d. á hann skrifa nafnið sitt með báð- um höndum samtímis til hægri og vinstri og lá spegilskrift nafnsins til vinstri. En svona var pabbi, allt sem hann gerði, hvort sem var vinna á jarðýtu, víragröfu eða smíða víravirki úr silfri á íslenska búninga, allt lék lék í höndum hans. Hann var líka nærgætinn og góður mað- ur. Eitt sinn kviknaði eldur í vél sem ungur maður var byrj- aður að vinna á. Með snarræði tókst honum að slökkva eldinn en vélin varð ógangfær á eftir. Hann fór til pabba og sagði dauðkvíðinn sínar farir ekki sléttar. „Nú jæja,“ sagði pabbi, „þá held ég sé rétt að fara í mat.“ Meira var þetta ekki rætt heldur gert við vélina eftir að búið var að borða. Pabbi var óskaplega góður við dýr og öll dýr hændust að honum. Maríuerlur hafa lifað á bakkelsi frá mömmu í mörg ár og dúfur í Boston fengu sinn skerf af brauðinu hans. Eitt sinn komst mús inn í Hóla- braut. Við Bína systir vorum með alls konar ráð til að ná henni en alltaf sagði pabbi nei, það varð að ná henni lifandi og koma henni lifandi út. Músin hafði ekkert til saka unnið. Vegna gæsku pabba var villi- bráð aldrei borin á borð í Hóla- braut. Eitt sem pabbi kenndi mér var að fordæma aldrei nokkurn mann, honum fannst að allir ættu að fá sinn mögu- leika og hann var tilbúinn að gefa hann. Fyrir mörgum ár- um, þegar ég hafði legið í fjóra mánuði á sjúkrahúsi, kom pabbi óvænt til Reykjavíkur á drátt- arbíl sem hann átti. Við hitt- umst í mat hjá Ragnheiði syst- ur og þá tók pabbi sig til og skammtaði mér mat og flysjaði fyrir mig kartöflur. Daginn eft- ir bauð hann mér með sér norð- ur og lét mig um að keyra bíl- inn. Þetta hjálpaði mér að finna aftur trú á sjálfan mig og lífið. Takk, pabbi. En sólin rís í austri, hún vísar okkur veginn því villugjörn er leiðin og birtu mikil þörf. Að mega starfið iðja þá frjáls ég verð og feginn og fyllist hugur gleði er lít ég unnin störf. Nú hæstum degi hallar og húmið fær- ist yfir. Ég held til minnar hvílu og bíð þín dimma nótt. Svo yfir birtir aftur og annar dagur lifir en upp þá mun ég rísa og áfram verður sótt. (Björn J. Guðmundsson) Guðmundur Kolbeinn Björnsson. Látin eru með skömmu milli- bili hjónin Björn og Guðný í Hólabraut. Aldrei fæ ég full- þakkað hlýlegt viðmót þeirra fyrir um 45 árum þegar ég, strákurinn sem farinn var að vera með Ragnheiði dóttur þeirra, fór að venja komur mín- ar þangað. Einnig minnist ég ánægjulegra stunda saman þeg- ar þau heimsóttu okkur til Dan- merkur þegar við vorum þar og ferðalaganna sem við fórum í, bæði um Danmörku og Þýska- land. Þau voru á ýmsan hátt ólík. Guðný opin og ræðin. Oft áttum við skemmtilegar samræður m.a. um pólitík, enda féllu skoð- anir okkar ekki alltaf saman. Henni hefur eflaust þótt ég helst til rauður. Björn var dul- ari, en undir bjó frjór hugur. Minnisstæðar eru stundirnar þegar við vorum samtíða á Eng- landi í byrjun níunda áratug- arins þegar honum, um fimm- tugt, datt í hug að fara í enskunám. Þar skeggræddum við mikið um uppfinningar hans, einkum snjóruðningsblásarann sem fólst í því að sameina snjó- ruðningstæki og snjóblásara í eitt tæki. Við ferðuðumst líka saman þar og skruppum m.a. til Parísar. Eftir heimkomuna vann hann áfram að þróun snjóruðn- ingsblásarans, m.a. við öflun einkaleyfis. Stórskemmtilegt var, þegar Björn breytti bíl- skúrnum í Hólabraut í kvik- myndaver, þar sem líkan af snjóruðningsblásaranum ýtti og blés kísilgúr af vegi. Myndatak- an og leiktjöldin heppnuðust það vel að margir, sem horfðu á myndbandið, héldu að raunveru- legt tæki væri að eiga við snjó. Ég tel mig lánsaman að hafa kynnst þeim og ég þakka fyrir öll góðu samskiptin sem við átt- um í gegnum árin. Jóhann Karlsson. Tengdafaðir minn, Björn Jó- hann Guðmundsson, lést þann 24. maí sl. Birni kynntist ég er ég hóf sambúð með Ástu dóttur þeirra hjóna árið 1975. Þótt að Björn hafi haft lifibrauð af rekstri á jarðýtum og skurðgröf- um, verktöku í sambandi við vegaframkvæmdir og jarðvegs- vinnu við framkvæmdir í Kröflu og Kísiliðjunni við Mývatn var mér fljótt ljóst að Björn hefði getað fengist við hvað sem er annað á lífsleiðinni. Hann bjó yf- ir listrænum hæfileikum í meiri mæli en flestum er gefið. Þannig gat hann spilað á hvaða hljóð- færi sem var, hann gat teiknað og málað það sem hann vildi og hann setti saman tækifærisljóð og samdi lög við þau. Björn naut ekki mikillar skólamenntunar en menntaðist af lífinu sjálfu. Til að bæta sig í enskri tungu sótti Björn námskeið á Suður-Eng- landi árið 1983. Björn hafði mikla ánægju af því að velta fyrir sér nýjum lausnum á ýmsum verkum. Þetta leiddi til þess að hann fór að þróa uppfinningar og sótti m.a. um einkaleyfi á nokkrum þeirra. Fór með hugmyndir sín- ar og sýndi þær á sýningum hér heima og í Svíþjóð, þar sem meðal annarra Karl Gústaf kon- ungur kynnti sér hugmyndir hans. Allt varðandi vélar lék í hönd- unum á Birni. Ég varð einhverju sinni fyrir því óláni að Audiinn minn bræddi úr sér norður í landi. Þó að Björn hefði aldrei komið nálægt Audi-viðgerðum tókst honum að taka upp vélina og gera hana eins og nýja og kom svo keyrandi á bílnum suð- ur yfir heiðar. Björn var ætíð ljúfur í sam- skiptum við menn og dýr og það var sama hvað um var rætt, allt- af reyndi hann að sjá nýja fleti á umræðuefninu. Það var alltaf stutt í glettnina og heimspeki- lega afstöðu til manna og mál- efna. Þótt við Ásta ættum ekki oft heimangengt norður í land var Ásta ætíð í miklu sambandi við foreldra sína, síminn var óspart notaður og leið varla sá dagur að hún heyrði ekki í þeim. Þegar Björn fór að fást við silfursmíð- ina setti Ásta sig í samband við gullsmiði í Reykjavík til að út- vega Birni bæði efni og upplýs- ingar um tæki til að nota við víravirkið. Þar sem Ásta hefur unnið mikið með þjóðbúninga og þekkir vel til þjóðbúningasilfurs var henni auðvelt að ræða silf- ursmíðina við föður sinn. Það var auðsætt hve vel þau skildu hvort annað á þessu sviði sem og öðrum og þurftu fá orð til þess að komast að niðurstöðu. Síðustu árin þegar við komum norður settist Ásta gjarnan nið- ur og fylgdist með smíði föður síns á meðan þau ræddu um- búðahönnun og fleira. Um leið og ég þakka Birni góða samleið sl. 40 ár vil ég minnast Guðnýjar sem stóð hon- um við hlið í 65 ár. Saman mynduðu þau gæfuríkt samband sem fjölskyldan öll mun minnast um ókomin ár. Ég sendi ættingjum og vinum mínar bestu samúðarkveðjur. Sigurjón Valdimarsson. Þá er komið að því að kveðja hann nafna minn og afa hinsta sinni, tel það nokkuð ljóst að ömmu hefur leiðst einni þarna uppi og kallað hann til sín. Sem fyrr fer ég að velta vöngum yfir hversu ótrúlega heppinn ég hef verið að fá að kynnast öðru eins fólki, en það sem eftir stendur nú eru aðeins góðar minningar frá þeim tíma sem ég hef eytt hjá þeim. Ég var svo heppinn að foreldrar mínir nenntu ekki að hafa mig hjá sér á sumrin þegar ég var barn svo ég var sendur með rútu norður á Laugar til þess að vera hjá ömmu minni og afa, og fékk því sem betur fer að kynnast þeim mjög vel. Þessum sumrum mun ég líklega aldrei gleyma og miðað við það sem við Árni brölluðum í frelsinu hjá þeim er ég hissa á að hvorugur okkar skuli vera verkfræðing- ur … Eða í það minnsta frétta- þulur. Þó svo að hann afi minn sé farinn þá standa ekki aðeins eftir minningar í huga manns heldur einnig hundruð minnis- varða um hans ævistarf úti um allar Þingeyjarsýslurnar, og ég mun geta stoltur sagt við börnin mín: „Sjáiði … Þetta gerði hann langafi ykkar.“ Vertu sæll, afi, og berðu innilegar kveðjur til hennar ömmu. Björn Jóhann Guðmundsson. Nú er elsku afi minn farinn, farinn í annan heim í faðm ömmu sem svo nýlega kvaddi okkur. Ég minnist afa sem ein- staks manns sem var alltaf hress og glaður. Þegar ég hugsa um tímann með afa kemur svo margt upp í hugann, hvað hann var hlýr og góður þannig að öll börn hændust að honum og hans góðu nærveru, til eru ófáar myndir af barnabörnum og barnabarnabörnum að kúra í fanginu á afa í sófanum í Hóla- braut. Heimsóknirnar til afa og ömmu voru svo skemmtilegar, Hólabraut var einstök paradís, lengi voru endur í garðinum, það var gaman að fylgjast með afa þegar hann var að gefa þeim brauð og tala við þær, það var eins og afi talaði dýramál miðað við hvað hann náði góðu sam- bandi við öll dýr. Í garðinum var stórt bú sem afi hjálpaði okkur að gera sem raunverulegast og toppaði það allt þegar hann tengdi vatn í kranann í búinu, þá varð búið að því flottasta sem maður vissi um. Ég man eftir því þegar ég fór í fyrsta sinn ein til ömmu og afa árið sem ég varð sjö ára. Ég keyrði þangað með þeim á Buicknum, sem allt- af var kallaður forsetabíllinn, svo flottur var hann. Þetta var langt ferðalag og ekki skemmti- legt framan af, amma svaf lang- leiðina og lítið var talað. Mér leist ekkert á þetta, ekki fyrr en afi stoppaði bílinn og bauð mér að sitja frammi í hjá sér enda þar þriggja manna bekkur. Við spjölluðum saman og skyndilega var þetta langa ferðalag orðið að ævintýri enda ekki á hverjum degi sem maður fékk að sitja í framsætinu á Buicknum. Ég sagði oft frá afa mínum sem var svo sniðugur að hann var meira að segja uppfinningamaður sem hefði fundið upp snjóblásara, það þótti mér sko merkilegt. Hann var ekki bara uppfinn- ingamaður heldur var hann al- gjör listamaður eins og allir silf- urmunirnir sem hann gerði segja til um. Ég er svo stolt að bera hálsmen eftir afa minn og eiga þjóðbúning sem prýðir víra- virki eftir hann. Auk þess að smíða úr silfri spilaði hann á pí- anó, fiðlu og skeiðar, hann var ótrúlega fjölhæfur. Ég á eftir að sakna afa mjög mikið og tilhugs- unin um að fara norður og geta ekki hitt ömmu og afa er mjög sár. Ég vona að afi sé núna kominn til ömmu og þeim líði vel. Bless, elsku afi, þín verður sárt saknað. Eyrún Ösp Guðmundsdóttir. Hver minning dýrmæt perla að liðn- um lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Bless, elsku afi. Andri Freyr og Guðlaug María. Það er alltaf erfitt að sætta sig við fráfall ástvinar en ég trúi því að amma hafi kallað afa til sín svo þau gætu orðið saman á ný. Það var alltaf jafn yndislegt að koma í Hólabraut og fá hlý og góð faðmlög frá ömmu og afa. „Ertu komin elskan mín“ sagði afi alltaf svo hressilega. Hóla- braut er stór partur af mínum æskuminningum þar sem drul- lubúið uppi í brekku hafði mikið aðdráttarafl og var mikið notað. Ég minnist sérstaklega úr Hóla- braut að vakna snemma og vera fyrst niður í kistuna í eldhúsinu að leita að morgunkorninu sem amma sá til að væri alltaf til handa okkur. Amma var þá allt- af komin í stólinn og afi í sófann. Elsku afi. Ég á eftir að sakna þín og ömmu og góðu faðmlag- anna frá þér í Hólabraut en ég trúi því að þið séuð komin á góð- an stað saman. Þín Klara ÁsrúnJóhannsdóttir. Björn Jóhann Guðmundsson HINSTA KVEÐJA Kveðja til afa Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson) Þínar Agnes Þóra, Freyja Ragnheiður og Hanna Lára.  Fleiri minningargreinar um Björn Jóhann Guðmunds- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.