Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 22

Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015 Anna Sigríður Arnardóttir er sérfræðingur í eignastýringu oglögfræðingur hjá Kaupþingi og sinnir hún aðallega eignumsem Kaupþing á í London, fasteignaþróun og nýbyggingu á skrifstofum og íbúðarhúsnæði. Að auki er hún formaður aganefndar Kraftlyftingasambands Íslands og varaformaður Brjóstaheilla. Áhugamál Önnu Siggu eru margvísleg. „Ég stunda fjallaskíði, kraftlyftingar, jóga og hugleiðslu og er í Beyoncé-dansi í Kramhús- inu. Svo er ég mikið í fjallahjólreiðum og götuhjólreiðum. Ég tilheyri hópi öflugra kvenna sem kalla sig Kríurnar Adventure Club og við verðum með tíu manna lið í götuhjólakeppninni Wow Cyclothon eftir tvær vikur.“ Keppnin er með boðsveitarformi og er hjólað hringinn í kringum landið. Eiginmaður Önnu Siggu er Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Sam- áls, börn þeirra eru Ólöf Kristrún, 13 ára, og Örn Óskar, 10 ára. „Við erum nýkomin frá Balí með gönguhópnum okkar Drífandi fyglingum. Þetta var algjörlega dásamleg ferð enda yndislegt sam- félag þar og ótrúleg náttúrufegurð. Við fórum á brimbretti, hjóluðum niður eldfjallastíga og stunduðum jóga. Þá var alveg ný upplifun að synda með stórum skjaldbökum í tærum sjónum og taka þátt í trúar- hefðum hindúa.“ Anna Sigga bauð nokkrum vinum í afmælisútilegu í Fljótshlíð á laugardag og var með óvissudagskrá sem lukkaðist vel. „Á afmælis- daginn sjálfan ætla ég að fá jógakennarann minn til að fara með okkur fjölskyldunni út að Gróttu og eiga þar góða kósístund.“ Hjónin Anna Sigga og Pétur á leið frá Balí til Gili-eyja. Fjallahjólreiðar og brimbretti á Balí Anna Sigríður Arnardóttir er 40 ára í dag R annveig fæddist 8.6. 1935 og ólst upp á Ránargötu 22 í Reykjavík en þar var hún búsett í nær hálfa öld. Frá sjö ára aldri var hún mörg sumur í sveit hjá frændfólki sínu austur á Síðu, lengst í Mörk, og kynntist snemma ættarsögunni. Hún lauk barnaprófi frá Landakots- skóla 1948, landsprófi frá Kvenna- skólanum í Reykjavík 1951 og stúd- entsprófi frá MR 1955. Hún var í enskunámi við Lundúnaháskóla 1957 og lauk BA-prófi í ensku, sögu og kennslu- og uppeldisfræðum frá HÍ 1959, lauk cand.mag.-prófi í ensku frá HÍ 1980, stundaði fram- haldsnám í kennslufræðum við Kennaraháskólann í London 1990 og sótti fjölda námskeiða innanlands og utan. Á námsárunum vann Rannveig á sumrin margs konar störf til sjós og lands. Hún kenndi við KÍ 1959-60, Gagnfræðaskólann í Kópavogi 1959- 61, Námsflokka Reykjavíkur 1962- 70, Framhaldsdeildirnar við Lindar- götu 1970-76 og var síðan ensku- kennari við Fjölbrautaskólann við Ármúla 1976-2002. Rannveig var deildarstjóri í ensku og átti sæti í skólastjórn. Hún var árum saman stjórnskipaður próf- dómari í ensku á unglinga- og gagn- fræðastigi og við MR. Rannveig skrifaði cand.mag.- ritgerð um síðustu ljóð Sylvíu Plath og ævi hennar undir lokin. Hún sat í ritnefnd ársrits KRFÍ, 19. júní, 1981-87 og skrifaði einnig greinar og viðtöl í önnur blöð og tímarit. Á árunum 2000-2003 þýddi hún þrjár bækur úr ensku fyrir bókaútgáfuna Sölku og hafði áður þýtt framhalds- sögu fyrir dagblaðið Tímann. Hún er einn af höfundum bókarinnar Á rauðum sokkum – baráttukonur segja frá (Háskólaútgáfan, 2011), en þar segja 13 konur frá uppvexti sín- um og lífsbaráttu, en þær fæddust allar fyrir miðja síðustu öld og voru meðal stofnenda Rauðsokkahreyf- ingarinnar 1970. Rannveig sat í miðstöð Rauð- sokkahreyfingarinnar 1972-73, tók virkan þátt í Samtökum frjálslyndra Rannveig Jónsdóttir framhaldsskólakennari – 80 ára Ein af Rauðsokkunum Vinsæl amma Rannveig og barnabörnin Rannveig, Kormákur og Ingólfur 40 ára brúðkaupsafmæli Ingólfur og Rannveig með fjölskyldunni. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Landsins mesta úrval af trommum í öllum verð�lokkum. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.