Morgunblaðið - 08.06.2015, Side 23
og vinstri manna 1971-78, sat í
stjórn Enskukennarafélagsins 1981-
86, var einn af stofnendum Kvenna-
kirkjunnar 1993 og ritari hennar.
„Ég nýt þess fyrst og fremst að
hafa góðan tíma til að sinna barna-
börnum, fjölskyldu og vinum. Ég
hef sótt leikhús frá unglingsaldri og
hef ætíð verið sílesandi en jólabóka-
vertíðin er árlegt tilhlökkunarefni.
Ég er í lesklúbbi enskukennara og
bridsklúbbi okkar Kvennaskóla-
systra sem var endurreistur eftir
hálfrar aldar hlé. Þar fáum við
stundum hlátursköst eins og litlar
stelpur. Aðra hópa hitti ég reglulega
á veitingahúsum, s.s. gamlar bekkj-
arsystur og gamla vinnufélaga. Ekki
má gleyma að hreyfa sig en ég fer í
vatnsleikfimi á Grensás og göngur
með konum í blokkinni minni.
Ég hef haft gaman af því að
treysta ættarböndin. Árið 1989 hélt
okkar leggur Grundarættarinnar,
afkomendur Sigríðar Vigfúsdóttur
og Vigfúsar Höskuldssonar, stórt
niðjamót á Hótel Sögu, og sumarið
2008 héldum við, afkomendur Krist-
ófers Þorvarðarsonar og Rann-
veigar Jónsdóttur, niðjamót austur
á Síðu þar sem mættu á fimmta
hundrað manns. Þau hjón voru afar
kynsæl og við reistum þeim minn-
isvarða og gróðursettum tré í landi
Prestbakkakots og nefndum Rann-
veigarlund.
Mér finnst gaman að ferðast inn-
anlands og erlendis hef ég ferðast
allvíða. Kínaferðin var líklega mest
spennandi. Á síðustu árum höfum
við svo, tvær Kvennaskólasystur,
ferðast töluvert um Bandaríkin í
boði gamallar skólasystur.
Afmælinu fagna ég með mínum
nánustu austur á Hala í Suðursveit.
Á leiðinni ætlum við að borða nestið
okkar í Rannveigarlundi á Síðu.“
Fjölskylda
Eiginmaður Rannveigar var Ing-
ólfur A. Þorkelsson, f. 23.1. 1925, d.
3.1. 2005, fyrsti skólameistari
Menntaskólans í Kópavogi. For-
eldrar hans voru Þorkell Björnsson,
f. 24.6. 1892, d. 9.8. 1974, verkamað-
ur, og k.h., Þóra Margrét Þórðar-
dóttir, f. 21.6. 1900, d. 4.5. 1990, hús-
freyja. Þau bjuggu á Seyðisfirði.
Börn Rannveigar og Ingólfs eru
Jón Arnar, f. 31.10. 1961; Þorkell
Már, f. 15.5. 1964, bókavörður á
Borgarbókasafni Reykjavíkur en
sonur hans og Áróru Helgadóttur
viðskiptafræðings er Ingólfur Már,
f. 2000; Þóra Sigríður, f. 14.6. 1966,
forstöðumaður Hljóðbókasafns Ís-
lands. Maður hennar er Karl Emil
Gunnarsson, starfsmaður 365 miðla,
og eru börn þeirra Rannveig, f.
1999, og Kormákur, f. 2001, en son-
ur Karls Emils er Gunnar Jökull, f
1978.
Systir Rannveigar er Vigdís Jóns-
dóttir, f. 22.2. 1927, fyrrv. banka-
fulltrúi á Seltjarnarnesi.
Foreldrar Rannveigar voru Jón
Kristófersson, f. 9.6. 1884, d. 7.2.
1953, skipstjóri í Reykjavík, og k.h.
Þórunn Guðmundsdóttir, f. 3.2.
1896, d. 10.6. 1960, húsfreyja og rit-
ari á lögmannsstofu í Reykjavík.
Úr frændgarði Rannveigar Jónsdóttur
Rannveig
Jónsdóttir
Sigríður Vigfúsdóttir
húsfr. í Hamrakoti, dóttir Vigfúsar Gunnarssonar b. á
Grund í Skorradal og Vigdísar Auðunsdóttur húsfr. þar
Vigfús Höskuldsson
b. í Hamrakoti í Húnav.s. af
Fjallsætt
Vigdís Vigfúsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðmundur Stefánsson
skútuskipstj. og lögregluþj. í Rvík
Þórunn Guðmundsdóttir
húsfr. og ritari á lög-
mannsstofu í Rvík
Anna Jóhanna
Guðmundsdóttir
húsfr. í Hlöðutúni, frá Hvítárv.
Stefán Ottesen
b. í Hlöðutúni í Stafholtstungum
Sigríður Þórhalladóttir
húsfr. í Mörk
Jón Bjarnason
b. í Mörk á Síðu
Rannveig Jónsdóttir
húsfr. á Breiðabólstað
Kristófer Þorvarðarson
landpóstur og b. á Breiðabólstað
á Síðu, fylgdarm. í leiðangri Watts
í fyrstu ferð yfir Vatnajökul 1875
Jón Kristófersson
skipstj. í Rvík
Sigríður Pálsdóttir
húsfr. í Holti
Þorvarður Jónsson
pr. í Holti undir Eyjafjöllum
og á Prestbakka á Síðu,
sem þjónustaði Agnesi fyrir
aftökuna í Vatnsdalshólum
Vigdís Jónsdóttir fyrrv.
bankaritari í Rvík
Jón Þórisson
arkitekt í Rvík
Ingvar Þórisson
kvikmyndagerðarm. og
fjallaleiðsögum. í Rvík
Sigríður
Kristófersdóttir
húsfr. í Hörgs-
dal á Síðu
Jakob
Bjarnason
b. á Hörgs-
landi á Síðu
Ólafía
Jakobsdóttir
forstöðum.
Kirkjubæjar-
stofu
Þórður Vigfússon
sjóm. í Rvík
Þórður Þórðarson
rakari í Vestm. eyjum
og kaupm. í Rvík
Ingibjörg Þórðardóttir
form. Félags
fasteignasala
Vigdís og Rannveig Systurnar á
Hrafnseyri við Arnarfjörð 2011.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015
Þór Axel Jónsson alþingismaðurfæddist í Reykjavík 8. júní1922. Foreldrar hans voru
Jón Björnsson, f. 18.5. 1891, d. 29.11.
1921, klæðskeri þar, sonur Björns
Jónssonar bónda í Núpsdalstungu í
Miðfirði, og Lára Þórhannesdóttir, f.
29.10. 1897, d. 11.4. 1978, síðar hús-
freyja á Hvítanesi og í Blönduholti í
Kjós, dóttir Þórhannesar Gíslasonar
bónda á Glæsivöllum og síðar á Mel-
um í Miðdölum.
Um fermingaraldur fluttist Axel
með móður sinni að Hvítanesi í Kjós.
Veturinn 1937-1938 stundaði hann
gagnfræðanám í Reykjavík. Rúm-
lega tvítugur að aldri reisti hann ný-
býlið Fell í landi Blönduholts í Kjós
og stundaði jafnframt bifreiðaakstur.
Árið 1953 flyst hann til Kópavogs og
er sundlaugavörður í Reykjavík til
1959 og síðan forstjóri Sundlauganna
til 1961. Árin 1962-1968 er hann
fulltrúi framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins, síðan fulltrúi hjá Al-
mannavörnum ríkisins 1968-1971 og
loks framkvæmdastjóri Sambands
sveitarfélaga í Reykjaneskjördæmi
1971-1978.
Axel Jónsson var löngum áhuga-
maður um félagsmál og þjóðmál og
valinn til margs konar forystustarfa.
Hann var formaður Ungmenna-
félagsins Drengs í Kjós 1946-1949,
formaður Ungmennasambands
Kjalarnesþings 1950-1956, í stjórn
Ungmennafélags Íslands 1955-1957, í
stjórn Íþróttasambands Íslands
1959-1964 og formaður Æskulýðs-
sambands Íslands 1959-1960. Hann
var kosinn í áfengismálanefnd 1964
og í stjórn atvinnuleysistrygginga-
sjóðs 1974-1978. Hann var í bæjar-
stjórn Kópavogskaupstaðar 1962-
1982, sat lengi í bæjarráði og var for-
seti bæjarstjórnar 1976-1977. Í
alþingiskosningunum 1963 var hann
kjörinn varaþingmaður Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi og
átti sæti á öllum þingum til 1978, oft
sem varaþingmaður en hlaut fast
sæti á Alþingi 1965-1967 og 1969-
1971 vegna fráfalls kjörinna þing-
manna og var að síðustu landskjörinn
alþingismaður 1974-1978. Alls átti
hann sæti á 16 þingum.
Axel lést 31. ágúst 1985.
Merkir íslendingar
Axel
Jónsson
95 ára
Oddur Magnússon
90 ára
Helga Helgadóttir
Smári Guðlaugsson
85 ára
Jóna Guðbergsdóttir
Olga Hafberg
80 ára
Egill Þ. Jónsson
Jóhannes Ingibjartsson
Rannveig Jónsdóttir
Valgerður Davíðsdóttir
75 ára
Agnar Guðmundsson
Eberhard Hans Joachim
Lignitz
Guðrún Eyjólfsdóttir
Hilmar F. Thorarensen
Ragna Freyja Karlsdóttir
Þorgeir Árnason
70 ára
Baldvin Atlason
Brynjar Ingi Skaptason
Charlie Valeriano Radam
Freddy Andreas
Heidenreich
Helgi Guðnason
Ingi Páll Karlsson
Kristbjörg Jónsdóttir
Ólafur Jónsson
Sólveig Filippusdóttir
60 ára
Elías Þór Baldursson
George Hunter Young
Guðjón Leifur Sigurðsson
Hafliði Loftsson
Helena Wiszniewska
Hörður Kristjánsson
Kristján Júlíus Erlingsson
Pétur Eysteinsson
Sigurgísli Kristinsson
50 ára
Andrés Bjarnason
Bragi Guðbrandsson
Cezary Dariusz Neumann
Guðmundur A. Sigurðsson
Gunnar Þór Jónsson
Júlíus Heimir Ólafsson
Katrín Dóra Þorsteinsdóttir
Kristín Jóhannsdóttir
Linda Jóhannsdóttir
Madis Maeekalle
40 ára
Anna Sigríður Arnardóttir
Anna Sigríður
Gunnarsdóttir
Gunnhildur Sunna
Albertsdóttir
Heiðrún Erika
Guðmundsdóttir
Helga Dögg Siemsen
Hlynur Sigurðsson
Kolbrún Heiða
Valbergsdóttir
Sigrún Ragna Rafnsdóttir
30 ára
Brynjar Ásmundsson
Daniel Hryniewicki
Eggert Sigurður
Kristjánsson
Ingibjörg Markúsdóttir
Magnús Pálsson
Peter Koelbæk Johansen
Sonja Gísladóttir
Þuríður Elísa Harðardóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Brynjar er Njarð-
víkingur og býr þar og er
neyðarvörður hjá Neyðar-
línunni.
Maki: Hanna Birna Valdi-
marsdóttir, f. 1992, vinnur
í öryggisgæslunni á Kefla-
víkurflugvelli og er nemi í
uppeldis- og menntunar-
fræði við HÍ.
Dóttir: Harpa Sóley, f.
2012.
Foreldrar: Ásmundur S.
Jónsson, f. 1946, og Bryn-
dís Sveinsdóttir, f. 1948.
Brynjar
Ásmundsson
30 ára Ingibjörg er fædd
og uppalin á Vorsabæjar-
hóli í Flóa og er nýflutt
aftur heim. Hún er
íþróttakennari og heilsu-
nuddari að mennt en er í
fæðingarorlofi.
Maki: Benedikt Rafnsson,
f. 1985, framleiðslustjóri
hjá RST Net í Hafnarfirði.
Sonur: Baldur Logi, f.
2014.
Foreldrar: Markús Ívars-
son, f. 1947, og Helga M.
Bjarnadóttir, f. 1955.
Ingibjörg
Markúsdóttir
30 ára Þuríður er fædd á
Akureyri, býr í Reykjavík
og er fornleifafræðingur.
Maki: Rúnar Matthíasson,
f. 1980, húsasmíða-
meistari.
Börn: Matthías Máni, f.
2008, og Aron Freyr, f.
2014.
Foreldrar: Hörður Hin-
riksson, f. 1960, kennari í
Foldaskóla, og Inga Þór-
halla Njálsdóttir, f. 1964,
læknaritari. Þau eru bú-
sett í Reykjavík.
Þuríður Elísa
Harðardóttir
mbl.is/islendingar