Morgunblaðið - 08.06.2015, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 08.06.2015, Qupperneq 27
finnst gaman að læra það og spreyta sig á að yrkja slík ljóð. En til að fá áhugann á að raunverulega tjá sig, segja eitthvað um lífið eða sjálf sig, er betra að byrja á að skoða ljóð frá nýrri tíma og eftir margvísleg skáld.“ Veit ekki um áhrif annarra skálda á eigin ljóð Allir eiga sér uppáhaldsskáld, -kvikmynd eða -tónlistarmann. Ing- unn segist sjálf eiga sér uppáhalds- skáld en er ekki viss um að þau hafi mikil áhrif á hana. „Uppáhaldsskáld mín íslensk eru tvímælalaust Þorsteinn frá Hamri og Gyrðir. Ég hef dálæti á mörgum öðrum skáldum, Ingibjörgu Har- alds, Vilborgu Dagbjarts, Kristínu Svövu, og mörgum öðrum, en þessa tvo les ég aftur og aftur, þeir veita mér einhvern undarlegan sálarfrið. Ég veit ekki hvort ég hef orðið fyrir svo miklum áhrifum af neinu þeirra, samt. Ekki nema ómeðvitað. Tveir af uppáhaldsrithöfundunum mínum, Richard Brautigan og Raymond Carver, eiga það líka sameiginlegt að nota fá orð til að segja mikið. Mér hefur alltaf fundist geysilega flott að geta gert það.“ Þótt stórskáldin hafi ekki mikil áhrif á Ingunni er ljóst að hún hef- ur áhrif á aðra enda bækur hennar selst vel og verið tilefni til útgáfu ljóðasafns hennar. „Ljóðasafnið var gefið út núna í vor, að frumkvæði bókaútgáfunnar Bjarts. Mér þótti mér mikill heiður gerður og bókin er alveg ótrúlega falleg og vönduð hjá þeim. Ég sem ljóð eftir því sem andinn blæs mér í brjóst hverju sinni, oftast er það á kvöldin eða nóttunni, þegar ég er andvaka, en ég er líka dugleg að punkta hjá mér hugsanir sem hrökkva í kollinn á mér dags dag- lega, eitthvað sem mögulega gæti ratað í ljóð seinna. Svo safna ég þessu saman annað slagið og set í handrit. Heildarmyndin er mér mjög mikilvæg, það er alltaf ein- hver þráður í gegnum handritið, eitthvað sem tengir ljóðin saman.“ Morgunblaðið/Ómar MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015 Könnuðirnir nefnist sýning sem opn- uð var fyrir helgi í gallerí Klaustri á Skriðuklaustri. Á sýningunni gefur að líta ljósmyndir frönsku ljósmynd- aranna Anne Favret og Patrick Ma- nez og eru þær hluti af stóru verk- efni sem þau unnu á nokkrum árum í og við geimrannsóknarstöðina á Ca- lern-hásléttunni í Suður-Frakklandi. „Þau Anne og Patrick vinna saman að ljósmyndaverkefnum sínum. Meginviðfangsefni þeirra hefur ver- ið landslag og ekki síst sögulegt borgarlandslag. Þau hafa unnið ýmis stór verkefni í borgum, m.a. í Alex- andríu, Rotterdam, Montreuil, Gen- úa, Berlín og Brussel. Anne og Pat- rick líkjast hetjunum í Solaris, skáldsögu Stanislas Lem frá 1961. Þau héldu upp á Calern-hásléttuna til að skoða náið geimrannsókna- stöðina sem þar er staðsett milli himins og jarðar, líkt og geimstöð,“ segir í tilkynningu. Sýningin stendur til 27. júní og er opin kl. 10-18 alla daga. Könnuður Ein af ljósmyndum Anne Favret og Patricks Manez. Franskir ljósmyndarar sýna í gallerí Klaustri Velski söngvarinn, Grammy- verðlaunahafinn og goðsögnin Tom Jones heldur tónleika í Laugardals- höll í kvöld kl. 20. Jones hefur selt yfir 100 milljónir platna á ferli sín- um og 36 laga hans hafa komist á vinsældalista í Bretlandi og 19 í Bandaríkjunum. Af alkunnum smellum Jones má nefna „It’s Not Unusual“, „Delilah“, „Green Green Grass of Home“, „She’s a Lady“, „Kiss“, „Sex Bomb“ og „Thunder- ball“. Jones mun taka sína helstu smelli auk þess að syngja lög af nýj- ustu hljómplötum sínum, Praise & Blame og Spirit In The Room. AFP Sprækur Jones slær ekki slöku við. Hann fagnaði 75 ára afmæli í gær. Tom Jones í Laug- ardalshöll í kvöld þar sem bíllinn sunkaði gegnum ís á ánni myndarlegar húsmæður slumpa í matargerðinni en fara sparlega með annað væri ekki stefnilegt það er litið hornauga að væplast um tala nú ekki um ef menn eru að slugsast þeir eiga að vera greinilegir og haska sér þar sem aldrei hastar neitt heldur er siðlast eftir veginum það er lúði í kirkjugarðinum helvítis rússan er rúskin í kantinum og ræfill enn í fjallinu þótt komið sé langt fram á sumar ekki tjóar að vera hissugur þótt veðrið sé tyssið „Þetta er eitt af ljóðunum um heimasveitina mína. Mér finnst gaman að velta fyrir mér íslensku máli og málnotkun og hvernig ólík orð til- heyra mismunandi heimum í okkar litla landi. Það er svo margt sem er sagt fyrir austan sem ekki hljómar kunnuglega fyrir vinum mínum í Reykjavík, og öfugt. Mér finnst íslenska svo skemmtileg og leik mér gjarnan með orð.“ Jökuldalur – orðabók fyrir byrjendur hvílíkur munur væri það ef sæðið í art medica kostaði aðeins fimmhundruðsextíuogfimm krónur skammturinn og getið væri um lærastig, vöðvafylli og fas liturinn arfhreinn hvítur gæti hins vegar orkað tvímælis „Þetta er annað ljóð sem á upptök sín í sveitinni, en líka í því slítandi erfiða og rándýra ferli sem ég gekk í gegnum fyrir nokkrum árum til að reyna að eignast barn. Á einhverjum tímapunkti var komið að því að taka húmorinn á það að vera búin að eyða hálfum árslaunum í ferðir til Reykjavíkur og hverja misheppnaða frjóvgunina eftir aðra, með til- heyrandi geðsveiflum. Mér gengur svo ágætlega að höndla lífið á þenn- an hátt. Hlæja að því. Ég held að það sé betra þegar upp er staðið.“ Við lestur hrútaskrárinnar Billy Elliot (Stóra sviðið) Mið 10/6 kl. 19:00 Fös 12/6 kl. 19:00 Sun 14/6 kl. 19:00 Fim 11/6 kl. 19:00 Lau 13/6 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.