Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015
» Stuðsveitin Stuðmenn fagnaði 40ára útgáfuafmæli sígildrar breið-
skífu sinnar Sumars á Sýrlandi með
glæsilegum tónleikum í Eldborg í
Hörpu föstudagskvöldið 5. júní. Voru
það veglegustu tónleikar Stuðmanna
frá upphafi og fengu þeir til sín góða
gesti úr íslensku tónlistarlífi. Platan
var kjarni tónleikanna og þeir krydd-
aðir og skreyttir með viðeigandi lögum
sem falla að megininntakinu, eins og
stuðmaðurinn Jakob Frímann Magn-
ússon orðaði það í viðtali við Morg-
unblaðið á dögunum.
Stuðmenn fögnuðu fertugsafmæli breiðskífu sinnar Sumars á Sýrlandi í Eldborg
Sumar á Sýrlandi Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og Valgeir Guðjónsson hafa löngum þótt frumlegir í tónlistarsköpun sinni eins og breiðskífan Sumar á Śýrlandi ber vitni um.
Leikur Eggert Þorleifsson var ógleymanlegur sem gömul kona.
Tilþrif Ágústa Eva Erlendsdóttir og Egill Ólafsson sungu saman.
Söngvari Valgeir Guðjónsson þenur ranndböndin af krafti. Gulir Félagarnir voru að venju flottir í klæðaburði.
Upp með hendur Áhorfendur settu hendur upp í loft.
Morgunblaðið/Golli
Tónskáldið Emily Hall hefur bæst í
hóp þeirra sem gefa út verk sín hjá
Bedroom Community og eru lista-
menn útgáfunnar nú orðnir tíu.
Bedroom Community gefur út tón-
verk Hall, Folie à Deux, 20. júlí nk.
en það var pantað af Mahogany
Opera Group á Englandi. Emily
Hall er listrænn stjórnandi Sound
Among Sounds, viðburðar sem fór
fram um helgina, 6. og 7. júní, og er
hluti af Spitalfields-tónlistarhátíð-
inni í Lundúnum. Folie à Deux var
flutt á hátíðinni og á henni komu
fram fleiri listamenn sem eru á
mála hjá Bedroom Community, þeir
Puzzle Muteson og James McVinn-
ie. Í tilkynningu er haft eftir Hall
að það sé frelsandi að vera hluti af
samfélagi þar sem tónlistartegund
sé ekki það sem máli skiptir. „Það
er eins og mér opnist hér með dyr
að herbergi fullu af skapandi og
einstökum listamönnum … lætur
mér líða eins og ég vilji helst bara
skapa, skapa, skapa,“ segir Hall.
10. Emily Hall á umslagi Folie á Deux sem Bedroom Community gefur út.
Tíundi listamaður Bedroom Community
POWERSÝNING
KL. 10:30
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus