Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015 Hjólaskautadrottningar Þessar fótfimu stúlkur renndu sér á hjólaskautum af mikilli list við Hljómskálagarðinn í hægviðrinu sem hefur verið í höfuðborginni og verður áfram næstu daga. Árni Sæberg Það er ánægjuleg tilbreyting að rífa sig upp frá daglegu amstri í höf- uðstaðnum og verja vikutíma í heimsókn um kunnuglegar slóð- ir nyrðra og eystra. Landið skartaði sínu fegursta í bjartviðri alla leiðina norður, fjöll snævikrýnd, út- hagi grár eftir kalt vor og lambfé enn á túnum. Þjóðveg- urinn kemur betur undan vetri en búast mátti við, ólíkt götunum í höf- uðstaðnum. Blönduóslögreglan er á sínum stað við umferðareftirlit og þyrfti að eiga sér fleiri bandamenn á hringveginum. Tilefni ferðar okkar var að þessu sinni skólaslit við Menntaskólann á Akureyri, sem ég kvaddi fyrir 60 árum ásamt 43 bekkjarfélögum vorið 1955. Þriðj- ungur hópsins er horfinn yfir móð- una miklu, ámóta margir áttu ekki heimangengt, en síðasti þriðjung- urinn var hér samankominn og sam- fagnaði ungum og eldri árgöngum sem vitjuðu síns gamla skóla. Skólabærinn Akureyri Akureyri er vaxandi skólabær. Fyrir tíu árum heimsóttum við Verkmenntaskólann á Akureyri, og sá skóli hefur dafnað og stækkað síð- an, nemendafjöldinn um 1.200 síð- asta skólaár. Nú lögðum við leið okk- ar í Háskólann á Akureyri og fengum góðar móttökur hjá Eyjólfi Guðmundssyni rektor sem kynnti stofnun sína af bjartsýni, enda skól- inn vaxandi að nemendafjölda og námsframboði, konur sem víðar í drjúgum meirihluta. Einnig heim- sóttum við Stofnun Vilhjálms Stef- ánssonar í Borgum þar sem for- stöðumaðurinn Níels Einarsson tók á móti hópnum og greindi frá starfi þessa norðurslóðaseturs sem gegnir mikilvægu hlutverki innanlands og alþjóðlega. Því tengist prófess- orsstaða í norðurslóðafræðum við háskólann. Megintilefnið var síðan hátíðarhöld og skólaslit Mennta- skólans eins og löng hefð er orðin fyrir með sam- komum í Íþróttahöllinni. Þar er skipst á kveðjum og gamanmálum og fram fór hátíðleg útskrift 152 nýstúdenta að morgni þjóðhátíðardags. Ekki færri en 900 manns hlýddu á efnismikla skólaslitaræðu Jóns Más Héðinssonar skólameist- ara. Okkur gamlingum þótti miður að heyra að latínunám væri nú aflagt í MA, hefðum heldur vilj- að sjá það aukið en kastað fyrir róða. Boðskapur skólameistara Í útskriftarræðu sinni fjallaði skólameistari MA meðal annars um brotthvarf nemenda úr skóla og or- sakir þess og nauðsynleg viðbrögð. (Sjá heimsíðu skólans www.ma.is) Tækniheimurinn og sölumennska honum tengd tæki athygli nemend- anna og við því þyrfti að bregðast með því að skólarnir kenndu nem- endum að nýta sér tækin til gagns. Meginhugsjónin ætti að vera að efla öryggi og sjálfsvitund nemenda með ráðgjöf og fyrirbyggjandi aðgerðum. Hins vegar væri eitt helsta vanda- mál nemenda æfingarleysi í lestri, og það þyrfti að bæta, helst með samstarfi skóla og heimila. Eins þyrfti að efla forvarnir gegn kvíða og vaxandi vanlíðan skólanemenda. Hafin væri í skólanum rannsókn nokkurra kennara með nemendum, sem stefndi að því að nemendur rannsaki eigin feril og finni leiðir til að bæta árangur sinn í skóla. Skólinn ætti skv. námskrá að vera skapandi lærdómsstofnun. „Við setjum okkur það markmið að mennta nemendur sem sjálfstæða borgara með sterka siðferðisvitund,“ sagði Jón Már. – Ónóg lestrarfærni og dreifing hug- ans vegna áreitis fjölmiðlunar og tækninýjunga er örugglega orðin al- mennt vandamál í skólastarfi sem bregðast þarf við á öllum náms- stigum. Möðrudalur á Efra-Fjalli Frá Akureyri lá leiðin til gistingar í Möðrudal á Fjöllum, sem nú er hæst byggðra bóla yfir sjó hérlendis. Bærinn var í alfaraleið fram um síð- ustu aldamót og liggur nú sem fyrr við gömlu fjallgarðaleiðina um 8 km frá þjóðvegi 1. Hvergi á Íslandi njóta menn viðlíka útsýnis suðvestur um Ódáðahraun, til Herðubreiðar og inn til Kverkfjalla. Hér gerðu Jón Stef- ánsson (1919-1971) og Þórunn Vil- hjálmsdóttir Oddsen garðinn frægan á öldinni sem leið, m.a. með kirkju- byggingu á eigin vegum. Möðrudal- ur var prestssetur fram til 1716 og sérstök sókn við hann kennd á mið- öldum og náði til býla á Efra- Jökuldal. Nú er fjárbú og vaxandi ferðamannabýli í Möðrudal, hvort tveggja byggt á gömlum hefðum en með öllum nútímaþægindum. Hús- ráðendur eru ung hjón, Vilhjálmur Vernharðsson af Möðrudalsætt og Elísabet Svava Kristjánsdóttir, leið- sögumaður og flugmaður. Héðan liggur hálendisslóð inn á austur- svæði Vatnajökulsþjóðgarðs, í Hvannalindir og Kverkfjöll. Skógardagurinn mikli Með þessari fyrirsögn hefur verið endurvakin fjölskylduhátíð skóg- arbænda og tengdra stofnana eystra, nú haldin í 11. sinn um síð- ustu helgi í Mörkinni á Hallorms- stað. Sú spilda var friðuð fyrir sauðfé fyrst reita á staðnum 1902 og er nú lögð undir vinsælt Trjásafn Skógræktar ríkisins. Samkomulag skógarunnenda og fjárbænda er nú orðið svo náið og gott að samtök þeirra síðarnefndu lögðu til sérstaka dagskrá og dilkakjöt á aðfarakvöldi hátíðarinnar. Allt fór þetta fram að viðstöddum 1.200 manns og með fjöl- breyttri dagskrá í einmunablíðu, sem sagt er að fylgt hafi þessari samkomu frá upphafi. Munurinn á þessari skemmtun og Atlavíkur- samkomum fyrri tíðar felst m.a. í að enginn ber það við að vökva hér sálartetrið með áfengi og stjórn- málamenn hafa hægt um sig. Á þess- ari sólstöðuhátíð ríkti því friðsældin ein. Eftir Hjörleif Guttormsson » Skólameistari: Efla þarf öryggi og sjálfs- vitund nemenda með ráð- gjöf og fyrirbyggjandi aðgerðum. Æfingarleysi í lestri er eitt helsta vandamál nemenda. Útskriftarnemar Hluti nýstúdenta frá Menntaskólanum á Akureyri 17. júní sl. ásamt skólameistara. Höfundur er náttúrufræðingur. Á ferð um landið á sumarsólstöðum Hallormsstaður Frá Skógardeginum mikla í Mörkinni á Hallormsstað 20. júní sl. Fólk fylgist með dagskrá og nýtur veðurblíðunnar. Hjörleifur Guttormsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.