Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 10
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leiðbeinendurnir Trausti Ólafsson, leiklistarfræðingur, og Maria Lumsden Rieder, sálfræðingur, hafa hvort í
sínu lagi sem og í sameiningu leitt ráðstefnur og vinnustofur í psychodrama, bæði á Bretlandi og Íslandi.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
T
rausti Ólafsson, leiklist-
arfræðingur, og Maria
Lumsden Rieder, sál-
fræðingur, við Háskól-
ann í Basel í Sviss, út-
skrifuðst samtímis frá The
Northern School of Psychodrama í
Bretlandi laust upp úr aldamót-
unum síðustu. Síðan þá hafa þau oft-
sinnis í sameiningu leitt ráðstefnur
á vegum bresku Psychodrama-
samtakanna í Bretlandi. Einnig hef-
ur Maria þrívegis komið hingað til
lands og ásamt Trausta leitt vinnu-
stofur í Hlutverkasetri, en hann hef-
ur leiðbeint á nokkrum slíkum allt
frá árinu 2009 auk þess að kenna
þar leiklist.
Í tilefni af tíu ára afmæli Hlut-
verkaseturs voru þessi gömlu skóla-
systkini leidd saman á ný til að
kynna psychodrama-meðferðina á
fundi fyrir fagfólk, halda opnar
vinnustofur fyrir lærða og leika og
kynningarfund fyrir áhugasama í
Gerðubergi.
„Kynningarfundurinn í dag
verður á fræðilegum grunni. Við
ætlum að kynna fyrir fagfólki aðferð
sem rúmenski/bandaríski geðlækn-
irinn J.L. Moreno þróaði á fyrri
hluta tuttugustu aldar, og útskýra
hvaða hugmyndafræði býr að baki.
Moreno var brautryðjandi í hóp-
meðferð í geðlækningum og sótti
hugmyndir sínar til leikhússins og
Neikvæðri orku veitt
í jákvæðan farveg
Psychodrama-meðferðin er viðfangsefni á nokkrum viðburðum sem Hlutverka-
setur efnir til dagana 25. til 27. júní í tilefni af tíu ára afmæli sínu. Haldinn
verður kynningarfundur fyrir fagfólk um aðferðina og hugmyndafræðina, þrjár
vinnustofur fyrir lærða og leika og opinn kynningarfundur í Gerðubergi.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
Raftæknivörur
Mótorvarrofar
og spólurofar
Það borgar sig að nota það besta!
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Skynjarar Töfluskápar
Hraðabreytar Öryggisliðar
Aflrofar Iðntölvur
Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is
Í kvöld ætla Björn Unnar og Einar
Björn, starfsmenn Borgra-
bókasafnsins, að leiða gesti í
göngu þar sem leiðarstefið verður
dætur Reykjavíkur og hvernig þær
birtast í bókmenntum kvenna. Vís-
ar leiðarstefið í samnefnda bók
Þórunnar Elfu Magnúsdóttur frá
árinu 1933 en hún var vinsæll rit-
höfundur um miðja síðustu öld og
fyrsta skáldið sem skrifaði um ís-
lenskar borgarkonur. Því hefur oft
verið haldið fram að Vögguvísa eft-
ir Elías Mar, sem kom út árið 1950,
hafi verið fyrsta eiginlega
Reykjavíkursagan, en það má alveg
færa fyrir því rök að Dætur Reykja-
víkur sé sú fyrsta. Í göngunni
verða lesnir textar frá því Reykja-
vík fór að fá einkenni borgar á
fyrri hluta síðustu aldar fram til
dagsins í dag og í gegnum þá verð-
ur reynt að sjá hvernig konur upp-
lifa borgina í gegnum skáldskap.
Ókeypis og allir velkomnir. Lagt
upp frá Borgarbókasafninu Gróf-
inni kl. 20.
Vefsíðan www.borgarbokasafn.is
Leiða gönguna Björn Unnar og Einar Björn ætla að segja frá konum í borginni.
Dætur Reykjavíkur í bókum
Íslenska sumarið er svo sorglega
stutt og flýgur svo hratt og því er um
að gera að njóta þess rétt á meðan
það staldrar við. Ótal margt
skemmtilegt er hægt að gera utan-
dyra, hlaupa, hjóla, fara á línuskauta,
ganga á fjöll, liggja í grasinu og glápa
upp í himininn, sitja og horfa á sól-
arlagið, bara hvað sem er þar sem
hægt er að svelgja ferska útliloftið.
Það bætir jú bæði geð og kropp. Og
fyrir þá sem kunna vel við að rífa sig
úr leppunum og baða sig, þá er um að
gera að leita uppi læki og vötn til að
dýfa sér ofan í. Unaðslegt alveg
hreint og sérlega hressandi.
Endilega …
… dýfið ykkur
í læki og vötn
Morgunblaðið/Eggert
Gaman Buslað í Elliðaánni.
Litka myndlist-
arfélag var stofn-
að árið 2009 og
eru félagar þess
yfir hundrað og
fimmtíu. Tilgangur
félagsins er að
stuðla að sam-
vinnu myndlist-
arfólks og vinna
að hagsmunum fé-
lagsmanna, t.d.
með því að halda
sýningar, standa
fyrir fyrirlestrum,
námskeiðum og
kynningum. Litka
opnar sýningu í
Gerðubergi í
Breiðholti í dag kl.
17, en á sýning-
unni eru fjölbreytt
myndverk eftir
þrjátíu og þrjá
listamenn. Í tilefni
af alþjóðlegu ári
ljóssins árið 2015
er þema sýning-
arinnar ljósið. Túlk-
un félagsmanna er margbreytileg enda er viðfangsefnið óþrjótandi uppspretta
myndefnis svo sem birtingarmyndir ljóssins í náttúrunni og landslaginu og
samspili ljóss og skugga. Flest verkin eru unnin í olíu eða akrýl á striga en
einnig vatnsliti og með blandaðri tækni.
Þátttakendur í sýningunni hafa ólíkan bakgrunn og eru á öllum aldri, sumir
hafa málað frá unga aldri en aðrir byrjuðu seint að mála. Einhverjir mála sér til
ánægju í frístundum en aðrir starfa sem listmálarar. Samsetning sýnenda ger-
ir sýningar Litku spennandi og áhugaverðar.
Ljósið er þemað hjá myndlistarfélaginu Litku
Margbreytileg túlkun
á óþrjótandi viðfangsefni
Reykjanesviti Mynd eftir Jóhannes Kristjánsson.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.