Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 6
SVIÐSLJÓS Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Æ fleiri ferðamenn flykkjast til landsins með hverju árinu, hvaðanæva úr heim- inum, og láta fé af hendi rakna í hvers kyns skoðunarferðir, minjagripi og ann- an varning sem mun minna þá á land og þjóð um ókomna tíð. Vakið hefur athygli sá mikli fjöldi minjagripaverslana í miðbæ Reykjavík- ur sem virðast spretta upp hver á fætur annarri í því augnamiði að anna eftir- spurn ferðamannanna. Gjafir frá Íslandi „Það er straumur af fólki hingað inn daglega og það er auðvitað frábært því það þýðir að fólk sækir hingað frá öðr- um löndum,“ segir starfsmaður minja- gripaverslunar á Skólavörðustíg. Bætir hún við að mjög misjafnt sé í hvað ferða- mennirnir sæki hverju sinni en ullarvör- urnar séu ávallt vinsælar. „Ullarpeysurnar, aðallega þær sem eru úr léttlopanum og með hefðbundnu munstri, eru sígildar og renna út,“ segir hún. Þá vekja bolirnir frá Dogma mikla lukku en þeir eru með fyndnum áletr- unum á ensku sem hafa íslenska skír- skotun. „Fólk virðist vera að kaupa mik- ið fyrir vini sína, enda alltaf gaman að fá gjöf frá Íslandi sem þú færð ekki neins staðar annars staðar.“ Ullarvörurnar sem seldar eru í minja- gripaverslununum eru þó ekki allar framleiddar á Íslandi. Fyrir vikið eru vörurnar misdýrar og geta við- skiptavinir ákveðið hvort þeir vilja ís- lenska framleiðslu úr íslenskri ull, ís- lenska ullarvöru sem framleidd er erlendis eða vöru sem er útlitslega svip- uð en úr ullarblöndu og framleidd er- lendis. „Það er þá eitthvað fyrir alla,“ segir starfsmaður minjagripaverslunar á Laugavegi en ferðamennirnir spyrjast jafnan fyrir um uppruna vörunnar telji þeir það mikilvægan eiginleika. „Þær vörur sem framleiddar eru á Íslandi eru merktar sem slíkar,“ segir hann. Aðrir setji ekki uppruna vörunnar fyrir sig og kjósi ávallt ódýrari kostinn. Nógu margir ferðamenn Starfsmaður þriðju verslunarinnar á Skólavörðustíg tekur í sama streng. „Mjög margir sækja í húfur og vettlinga úr ullinni þegar kalt er í veðri. Það er eins og margir ferðamenn átti sig ekki á því hve kalt getur orðið hér á landi og þurfi skyndilega að búa sig betur,“ segir hún létt í lund. Aðspurð um lundabangsa sem sjást í miklu magni í minjagripaverslunum al- mennt segir hún þá seljast mjög vel. „Mér heyrist þeir oftast keyptir fyrir börn í heimalandinu.“ Hún hefur ekki áhyggjur af fjölda minjagripaverslana á litlu svæði miðbæjarins og segist ekki hafa tekið eftir því á þeim tveimur árum sem hún hefur starfað í versluninni að dregið hafi úr fjölda viðskiptavina vegna fjölgunar verslananna. „Ég held að það séu nógu margir ferðamenn til að þeir dreifist ágætlega á búðirnar.“ Ullarpeysurnar vinsælastar  Ferðamenn segjast helst festa kaup á ullarvörum í minjagripa- verslunum í miðbænum  Starfsmenn verslana taka undir það Morgunblaðið/Styrmir Kári Uppgangur Ferðamönnum hefur fjölgað um rúm 16% milli ára. Þeir setja svip á mannlífið í miðborg Reykjavíkur og um allt land á fjölförnum áningarstöðum. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015 Geyma lopann til síðasta dags „Við ætlum að bíða fram á síðasta daginn okkar hér til að kíkja í verslanir og velja okkur eitthvað fallegt,“ segir Tanja sem kom hingað frá Þýskalandi og hyggst ferðast um landið með manninum sínum, Toby. Hafa þau bæði augastað á lopapeysunum en segjast minna fyrir smádótið. „Við tökum þó kannski segla fyrir vinina.“ „Ég fer ekki í þessar minja- gripaverslanir,“ segir Shelley frá Kanada. „Það er bara ekki pláss í farangrinum.“ Hún segist frekar vilja kynnast fólkinu, menningunni og stemningunni í hverju landi en að eyða tímanum í verslunum og koma heim með dót sem engin not séu fyrir. „Ég vil eiga minningar um upplifun mína af landi og þjóð, ekki eitthvert smádót.“ Góðar minningar umfram smádót „Við munum alveg pottþétt kaupa ullarhúfurnar og -vett- lingana áður en við förum heim,“ segir Brittany sem gekk í fyrsta skipti niður Laugaveginn, komin alla leið frá Banda- ríkjunum með vinkonu sinni, Önnu. „Ég mun örugglega líka kaupa einn lundabangsa fyrir litlu frænku mína og segla og annað fyrir fjölskylduna að gjöf.“ Lundabangsar, seglar og vettlingar Morgunblaðið/Styrmir Kári Markus frá Svíþjóð hafði verulega takmarkaðan áhuga á því að sjá hvað minjagripa- verslanirnar hefðu upp á að bjóða. „Ef eitthvað er finnst mér hönnunarbúðirnar meira spennandi en ég kaupi samt ekki mikið af vörum,“ segir hann. Kýs hann frekar að eyða tímanum í ferðalög um nátt- úru landsins, sem hann hefur gert síðustu daga. Enginn áhugi á minjagripum „Við erum að kaupa póstkort núna, bæði til að eiga og senda til vina okkar. Mörg þeirra eru með mjög fallegum og skemmtilegum landslagsmyndum,“ segir Anita, sem er komin til Íslands í annað sinn með manninum sínum, Juho. „Þegar við komum í fyrra skiptið keyptum við fullt af ullarvörum eins og lopapeysurnar,“ segir hún ánægð. Komin aftur með lopapeysurnar „Ég fór strax og keypti mér harðfisk,“ segir hinn franski Laurel, sigri hrósandi. Sækir hann Ísland heim um þessar mundir með Lenju, vinkonu sinni, sem er frá Portúgal. Segjast þau hvorugt hafa áhuga á minjagripaverslunum og vilja frekar eyða tímanum í að ferðast og heimsækja veitinga- staðina. „Svo viljum við frekar versla á flóamörkuðum.“ Ferðast um landið með harðfisk Vinirnir Jay og Pen frá Taílandi höfðu ekki ákveðið hvað kaupa skyldi af minjagripum á meðan á dvöl þeirra á Íslandi stæði. „Við ætlum að athuga hvað við sjáum í búðunum áður en við förum heim og taka kannski með okkur eitthvað sniðugt,“ segir Jay. Aðspurðir segjast þeir hafa tekið eftir fjölda minjagripa- verslana í bænum en þær séu þó ekki of margar. Ekki of margar minjagripaverslanir „Mig langar mikið í ullarpeysu frá Íslandi og stefni á að kaupa mér eina,“ sagði Alice frá Bandaríkjunum spurð um fyrirætl- anir sínar í minjagripaverslunum í Reykjavík. Voru þau hjónin, Alice og John, sammála um að peysurnar væru fallegar og ein- stakar. Þá fannst þeim ólíklegt að þau keyptu lundabangsa eða annað smálegt. „Ekki nema þá fyrir barnabörnin.“ „Ullarpeysurnar eru einstakar“ „Ég er að leita að fyndnum hlutum fyrir vini mína og póstkortum líka, til að senda heim,“ segir hin franska Charlotte. Vinir hennar eru hins veg- ar á höttunum eftir ullar- peysum, -treflum og -húfum. „Við höfum nú farið í nokkr- ar minjagripaverslanir til að átta okkur á úrvalinu og hvað við viljum kaupa og taka með heim.“ „Er að leita að fyndnum hlutum“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.