Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015 Viðskiptablaðið segir frá því aðenn hafi birst leyniskjöl sem sýndu að bandaríska leyniþjónustan hleraði helstu bandamenn landsins, að þessu sinni Francois Hollande:    Forseti Frakklandshefur kallað bandaríska sendiherr- ann í Frakklandi á fund sinn vegna gagna sem birtust í gær um að bandarísk stjórnvöld hefðu hlerað síma Frakklandsforseta á árunum 2006 til 2012. Wall Street Journal greinir frá þessu.    Hollande segir aðhinar meintu njósnir séu óá- sættanlegar og krefst upplýsinga frá sendiherranum um þær. „Frakkland mun ekki sætta sig við athafnir sem ógna öryggi landsins,“ sagði forsetinn meðal annars.    Í gögnum Wikileaks kemur framað NSA, þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, hafi hlerað símtöl Hollandes og forsetanna fyrrver- andi Nicolas Sarkozy og Jacques Chirac.    Eftir að gögnin voru birt sendiHvíta húsið í Bandaríkjunum frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að engar njósnir stæðu nú yfir gegn Hollande, en því var hins veg- ar ekki neitað að slíkar njósnir hefðu áður átt sér stað.“    Gantast er með að einungis einnþjóðarleiðtogi á Vesturlöndum hafi á áruum 2009-2013 náð að leika á hlerunarmenn NSA. Sú hafi haft þann hátt á að hringja aldrei í neinn og taka aldrei síma.    En NSA-menn héldu að sinn full-komni búnaður virkaði ekki. Hollande NSA með hlustarverk STAKSTEINAR Obama Veður víða um heim 24.6., kl. 18.00 Reykjavík 10 skýjað Bolungarvík 15 skýjað Akureyri 10 heiðskírt Nuuk 12 léttskýjað Þórshöfn 8 alskýjað Ósló 15 skýjað Kaupmannahöfn 13 skýjað Stokkhólmur 17 léttskýjað Helsinki 13 skúrir Lúxemborg 20 heiðskírt Brussel 20 heiðskírt Dublin 18 skýjað Glasgow 17 skýjað London 22 heiðskírt París 23 heiðskírt Amsterdam 20 heiðskírt Hamborg 16 skúrir Berlín 15 skýjað Vín 20 skýjað Moskva 25 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Madríd 31 léttskýjað Barcelona 23 heiðskírt Mallorca 28 léttskýjað Róm 23 léttskýjað Aþena 27 heiðskírt Winnipeg 22 léttskýjað Montreal 20 léttskýjað New York 27 heiðskírt Chicago 23 alskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 25. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:58 24:04 ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36 SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19 DJÚPIVOGUR 2:12 23:48 Tillaga bæjarráðs Kópavogs um flutning bæjarskrifstofa í Norð- urturn við Smáralind, sem rædd var á bæjarstjórnarfundi í fyrradag, verður aftur á dagskrá bæjar- stjórnar Kópavogs hinn 21. júlí næstkomandi. Í lok bæjarstjórnarfundarins dró Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri til- lögu um sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og ágúst til baka. Í byrjun fundarins í fyrradag samþykkti meirihluti bæjarstjórnar tillögu Ásu Richardsdóttur bæj- arfulltrúa um að fresta umræðu um húsnæðismálin fram yfir sumarleyfi. Vill taka umræðuna um turninn Að sögn Ármanns er brýnt að til- lagan verði rædd til að fullkanna möguleika á flutningum í Norður- turninn. Hann bætir við að tillagan sem lögð var fram sé ekki endanleg ákvörðun í málinu. „Tillagan snýr ekki að því að sam- þykkja kaupsamning, heldur ganga til samninga og hefja söluferli á nú- verandi húsnæði,“ segir Ármann. Bæjarstjórn taki svo endanlega ákvörðun um kaup og sölu fast- eignanna. Ármann segir Norðurturninn hagkvæmasta kostinn í stöðunni fyr- ir bæinn, en hann gefi einnig kost á aukinni þjónustu við bæjarbúa. jbe@mbl.is Umræða um Norðurturn tekin í júlí  Bæjarstjóri vill samtal um málið í sumar  Segir turninn auka þjónustustigið Morgunblaðið/Þórður Kópavogur Norðurturninn rís. Birkifrjókorn eru seinna á ferðinni í ár en síðustu ár, eða um tveimur vik- um seinna. Því hafa þeir sem glíma við frjókornaofnæmi fundið seinna fyrir einkennum en áður, þegar of- næmistímabilið hefur hafist í maí og verið lokið um miðjan júní. Þetta segir Ellý Guðjohnsen, líffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. „Ég held það sé óhætt að segja að frjókornaofnæmi hafi seinkað um tvær vikur. Vorið var kaldara í ár og það seinkaði gróðrinum. Ég á ekki von á að það hafi áhrif á grassprett- una, hún er að byrja núna,“ segir Ellý. Búist er við að gras- og súru- frjókorn komi á réttum tíma en það fer þó eftir veðri. brynjadogg@mbl.is Birkifrjó- korn seinna á ferðinni Frjó Birkifrjó var seinna á ferðinni í ár vegna kuldans í vor. Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911 www.facebook.com/spennandi Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16 Mama B - ítölsk hönnun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.