Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.06.2015, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 2015 ÍSLENSKT TAL Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Rapptvíeykið Úlfur Úlfur, skipað Helga Sæmundi Guðmundssyni og Arnari Frey Frostasyni, sendi í byrjun mánaðar frá sér aðra hljóm- plötu sína, Tvær plánetur, en sú fyrri, Föstudagurinn langi, kom út árið 2011. Á vefnum Tónlist.is segir um Úlf Úlf að tónlist dúósins sé „forvitnileg samsuða af rappi og melódísku poppi með oft á tíðum dökku yfirbragði þótt partíið sé aldrei langt und- an“. Hljómsveitin sé „ófeimin við að ögra hinum hefð- bundna ramma rapptónlistar, blanda saman mismunandi hug- myndafræði og skapa eitthvað ein- stakt í leiðinni“. Á plötunni eru 14 lög og eru þau af ýmsu tagi, allt frá ljúfsárum ball- öðum yfir í dansvænt hipphopp. Nokkur hafa þegar notið mikilla vin- sælda og má þar nefna „Tarantúll- ur“ og „Brennum allt“ en við bæði lög hafa verið gerð frumleg og vönd- uð myndbönd. Í því síðarnefnda ríð- ur Arnar m.a. á gæðingi um Breið- holt og rapparinn Kött Grá Pje ekur um á blæjubíl með St. Bernharð- shunda slefandi í aftursætinu og hefur myndbandið vakið mikla at- hygli og lukku í netheimum. Ungir rapparar á Sauðárkróki Blaðamaður ræddi við Arnar í byrjun viku um plötuna en talið barst þó fyrst að stofnun hljómsveit- arinnar. Arnar og Helgi kynntust sem drengir á Sauðárkróki og segir Arnar að áhugi þeirra á rappi hafi tengt þá saman. „Við vorum ekki vinir fyrir en svo frétti Helgi, sem er ári eldri en ég, að ég væri byrjaður að rappa og tók mig undir sinn verndarvæng og hefur ekki sleppt af mér takinu,“ segir Arnar kíminn. Þeir hafi verið að síðan, frá því þeir voru 12 og 13 ára. Arnar og Helgi eru orðnir 27 og 28 ára og hafa því verið að í 15 ár. -Það hefur orðið töluverð þróun í rappinu hjá ykkur, ekki satt? Þetta er allt orðið miklu smurðara … „Já, er það ekki? Við leggjum okkur náttúrlega fram við að vera stöðugt að þróast. Ef þetta fer að verða of þægilegt þá ögrum við okk- ur, reynum að gera þetta öðruvísi og kaupa dýrari græjur svo þetta verði betra og allt það. Ég vil meina að þetta sé allt rosalega metnaðarfullt hjá okkur,“ svarar Arnar. -Þið eruð ekki beinlínis staðal- ímyndir rappara, engar gullkeðjur eða alltof víðar buxur. „Nei, nei, voða lítið. Upp á síð- kastið höfum við verið að skarta keðjum af því það er svo gaman en nei, við erum engar steríótýpur. Ég held að það sé líka svolítið erfitt á Íslandi að vera svona steríótýpískur rappari, Gísla Pálma tekst það reyndar ágætlega,“ segir Arnar. Þeir Helgi séu engir „gangster“- rapparar. „Við erum bara venjulegir gaurar að gera rapptónlist, erum svolítið að vinna með það. Báðir í há- skólanámi og sallarólegir.“ -Í hvaða námi eruð þið? „Ég var að klára viðskiptafræði og Helgi er í ferðamálafræði.“ Persónulegir Arnar segir að platan Tvær plán- etur hafi orðið til í fyrravor og -sum- ar og fjalli í raun um það tímabil í lífi þeirra félaga. „Við höfum alltaf ver- ið frekar persónulegir í textagerð- inni, lagt okkur mikið fram við að segja sögur sem þýða eitthvað. Þeg- ar þú ert að tala um eitthvað raun- verulegt þá tengir fólk óhjákvæmi- lega við það og þessi plata fjallar um tímabil í lífi okkar; að vaxa úr grasi, verða fullorðinn og horfast í augu við sjálfan sig. Spyrja sig að því hvort þetta sé of mikil vitleysa og kjaftæði og hvert maður eigi að beina allri þessari orku og allt það,“ segir Arnar. -Þetta er sjálfsskoðun og hún er stór hluti af rappinu? „Já, nefnilega, bæði sjálfsskoðun tónlistarlega séð og lífið sjálft.“ -Þið eruð ekki að drukkna í sjálf- umgleði eins og stundum vill gerast í rappinu? Arnar hlær. „Nei, nei, við höfum alltaf verið á jörðinni og mér finnst það mjög mikilvægt. Að vera ekki erfiður þó vel gangi.“ -Verjið þið miklum tíma í texta- gerð? „Stundum er þetta skrifað á augnabliki, verið að fanga einhverja tilfinningu en sum vers þarna voru skrifuð á einum mánuði, jafnvel, vers sem við vorum að koma að reglulega. Ég settist niður, skrifaði tvær línur og leit svo ekki á þetta í nokkra daga, þar til mér datt eitt- hvað meira í hug.“ Gestasöngvarar og -rapparar á plötunni eru Edda Borg, Kött Grá Pje, Gísli Pálmi, Emmsjé Gauti og Arnór Dan og Arnar segir hljóð- færaleikara úr hljómsveit Arnórs, Agent Fresco, leika í flestum lögum plötunnar. „Það er mikið af „live“ bassa og trommum og Tóti gítar- leikari spilar á gítar og samdi þrett- ánda lagið á plötunni,“ segir Arnar. Helgi hafi séð um allar útsetningar á lögum að undanskildum tveimur sem samin voru af Redd Lights. „Redd Lights-strákarnir mixuðu alla plötuna og Friðfinnur Oculus,“ segir Arnar. Grafíski hönnuðurinn Bobby Breiðholt hannaði umslag plötunnar sem er einkar glæsilegt og segir Arnar að hann hafi lengi verið aðdá- andi hans. Það hafi því verið einkar gleðilegt að ráða hann í verkið. „Við komum með mjög einfalda hugmynd um hvað við vildum en gáfum honum algjört listrænt frelsi, treystum hon- um 100% fyrir þessu og ég vil meina að þetta sé eins flott og það hefði mögulega getað orðið,“ segir Arnar. Ekkert mál að vera á hestbaki í Breiðholti Talið berst að lokum að nýjasta myndbandi Úlfs Úlfs, við lagið „Brennum allt“. Í því má finna loft- myndir af Breiðholti, hest, hunda og eðalvagn og vandað mjög til verka. Arnar er spurður að því hvort þetta sé ekki flóknasta og dýrasta mynd- band hljómsveitarinnar til þessa. „Jú, jú, þetta var dýrasta mynd- bandið okkar. Það kom okkur á óvart að þetta var ekki flókið. Við fengum hugmyndir sem virkuðu það absúrd að erfitt væri að framkvæma þær en þetta voru tveir tökudagar, ekki lengri tími en það, frá tíu að morgni til klukkan sex og allt gekk upp. Það komu svo margir að þessu og voru svo góðir á því. Þegar við vorum í Breiðholti á hrossinu áttum við alltaf von á því að löggan myndi koma og banna okkur þetta en það tóku okkur allir vel, fólki fannst þetta svo sniðugt,“ segir Arnar. Þá hafi ekki verið síður skemmtilegt að mynda Kött Grá Pje, þ.e. Atla Sig- þórsson, í blæjubíl með þremur slef- andi St. Bernharðshundum. „Þetta eru svo stórar skepnur og það var svo heitt þennan dag og þeir slefuðu í hárið á Atla allan tímann,“ segir Arnar og hlær. „Höfum alltaf verið á jörðinni“  Tvær plánetur nefnist önnur hljómplata tvíeykisins Úlfur Úlfur  „Ef þetta fer að verða of þægilegt þá ögrum við okkur,“ segir Arnar Freyr um listsköpun þeirra Helga Sæmundar Morgunblaðið/Eggert Æskuvinir Arnar Freyr Frostason og Helgi Sæmundur Guðmundsson skipa hljómsveitina Úlfur Úlfur. Bergljót Leifsdóttir og Hrafnhildur Schram, sýningarstjóri sýning- arinnar Júlíana Sveinsdóttir og Ruth Smith: Tvær sterkar, ræða við gesti um líf og list Júlíönu Sveins- dóttur á Kjarvalsstöðum í dag, fimmtudag, kl. 15. „Bergljót tengist listakonunni nánum fjölskylduböndum en Júl- íana var afasystir hennar. Bergljót áformar jafnframt að stofna safn um Júlíönu að Tjarnargötu í Reykjavík á næsta ári,“ segir m.a. í tilkynningu. Ræða við gesti um Júlíönu Sterk sýn Hluti sjálfsmyndar eftir Júlíönu Sveinsdóttur frá árinu 1925. Rapparinn Gísli Pálmi og Ghostface Killah, einn af liðsmönnum Wu-Tang Clan, munu hafa farið í hljóðver saman í fyrrakvöld og tekið upp tón- list, skv. heimildum vefjarins Iceland Monitor. Gísli og Wu-Tang Clan komu fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sl. helgi og birti Gísli mynd af starfs- bróður sínum, Ghostface Killah, á fa- cebooksíðu sinni í fyrrakvöld. Þá segir á Iceland Monitor að Gísli hafi sent snapchat-myndskeið af upp- tökum þeirra Ghostface Killah. Gísli og Ghostface í hljóðveri Frægur Ghostface Killah er einn þekktasti rapplistamaður heims.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.