Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.07.2015, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 08.07.2015, Qupperneq 12
8. júlí 2015 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Hættur á hálfu tímabili Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, staðfesti það í samtali við fjölmiðla á mánudaginn að hann hygðist hætta á þingi í haust og leyfa Ástu Helgadóttur, varaþingmanni Pírata, að taka sæti sitt. Það er sjaldgæft að stjórnmálamenn víki sjálfviljugir til þess að veita öðrum tækifæri á að seilast til áhrifa. Það er virðingarvert að sjá einstakling sem upplifir sig ekki ómissandi og raunar upplífgandi í stjórnmálalandslagi þar sem þjóðaríþróttin er að ríghalda í þingsæti sitt eins lengi og mögulegt er. Þó hlýtur það að teljast undarlegt að þingmaður- inn hætti eftir einungis tvö ár á þingi en slíkur tími er varla teljandi til að huga að þeim verkefnum sem þingmenn sinna hverju sinni. Til þess þyrfti minnst eitt kjörtímabil. Í æfingu Ásta Helgadóttir, verðandi þingmaður Pírata, er ekki með öllu óreynd í þingstörfum en hún hefur þegar nokkrum sinnum setið á þingi á kjör- tímabilinu og hefur meðal annars mælt fyrir frumvarpi um íbúakosn- ingar í sveitarfélögum. Hún var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í gær. Þar var hún spurð hvort hún væri búin að æfa sig fyrir þingstörfin. Manni er spurn hvort miðaldra, hvítur, karlkyns tilvonandi þingmaður Sjálfstæðis- flokksins eða Samfylk- ingarinnar myndi nokkurn tíma fá álíka spurn- ingu við sama tilefni. Aldrei fleiri konur Á kjörtímabilinu hafa þrjár nýjar konur tekið sæti á Alþingi. Ásta Helgadóttir tekur við af Jóni Þóri Ólafssyni líkt og fram hefur komið. Sigríður Á. Andersen tekur sæti Péturs Blöndals eftir fráfall hans og Steinunn Árnadóttir tók sæti Árna Þórs Sigurðssonar eftir að hann var skipaður sendiherra. Þetta þýðir að konur skipa 44,4 prósent þingheims og aldrei hafa verið jafn margar konur á Alþingi, sem er einkar vel við hæfi á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Opnið freyðivínið, þetta er fagnaðarefni! stefanrafn@frettabladid.is Björt framtíð freistaði þess á dögunum að koma í veg fyrir að Alþingi lögfesti þá leið að tollkvótar á landbúnaðarvörum yrðu boðnir út. Sú aðferð leiðir til auk- innar skattheimtu og hærra vöruverðs því kostnaðurinn við kaup á tollkvóta lendir á endanum á neytendum. Neytendasamtökin, Samtök versl unar og þjónustu og Félag atvinnurekenda hafa öll bent á að útboðsleiðin vinni gegn almannahagsmunum, hækki vöruverð og hamli samkeppni. Sú aðferð brýtur jafn- framt í bága við sjálft markmið þessara tollkvóta, sem er að ýta undir verslun með landbúnaðarvörur milli landa og auka þannig samkeppni. Engu að síður ákvað meirihluti atvinnuveganefndar, skipaður fulltrúum fjögurra flokka, að leggja til að útboðs- leiðin yrði lögfest. Það þýðir að ef það er umframeftirspurn eftir tollkvóta er hann boðinn út og seldur hæstbjóðanda. Fulltrúi Bjartrar framtíðar í atvinnu- veganefnd lagði til hið gagnstæða, að ráðherra yrði skylt að úthluta tollkvóta án endurgjalds og yrði hlutkesti varp- að ef ásókn væri umfram kvóta, eins og Samkeppniseftirlitið beinlínis mælist til í nýlegri skýrslu um samkeppni á dag- vörumarkaði. Breytingartillaga í þá veru var lögð fyrir þingið. Það olli okkur vonbrigðum að ekki væri meiri stuðningur við viðskipta- frelsi og aukna samkeppni í verslun á meðal þingmanna. Aðeins tólf þingmenn greiddu atkvæði með breytingartillög- unni sem var því felld og varð því leið aukinnar skattheimtu og hærra vöru- verðs ofan á. Það getur vissulega verið vandasamt að útdeila tollkvótum á rétt- látan hátt enda um takmörkuð gæði að ræða. Það er þó skoðun Bjartrar framtíð- ar að hér hafi versta leiðin verið farin. Við teljum að auka þurfi frelsi í við- skiptum með landbúnaðarvörur og að sú verndarstefna sem nú er við lýði sé ekki til hagsbóta fyrir neytendur. Þau lög sem voru samþykkt um útboð á tollkvótum og þær álögur á neytendur sem sú leið hefur í för með sér eru svo sannarlega ekki skref í rétta átt. Meiri álögur, hærra vöruverð GLÆSILEG MATAR- STELL KÍKTU Á ÚRVALIÐ ➜ Við teljum að auka þurfi frelsi í viðskiptum með landbúnaðarvörur og að sú verndarstefna sem nú er við lýði sé ekki til hagsbóta fyrir neytendur. TOLLAR Eldar Ástþórsson Brynhildur Pétursdóttir þingmenn Bjartrar framtíðar S kömmu eftir fall Sovétríkjanna fór prófessor í sagn- fræði við Háskóla Íslands í heimsókn til ónefnds fyrrverandi Sovétlýðveldis. Leiðin lá í háskóla hátt uppi í fjöllum hins nýfrjálsa ríkis, og alla leið inn á skrifstofu rektors. Þar settust þeir niður við skrif- borðið og skröfuðu sín á milli, en heldur truflaði það inni- legar samræður að á borðinu á milli þeirra stóð risastór nýtísku ljósritunarvél. Þar sem þeir reyndu að ná augnsam- bandi á milli skúffanna í vélinni, eða til hliðar við hana, kom í ljós að um var að ræða gjöf frá bandarískum háskóla. Rektor var býsna stoltur af vélinni og lét það ekkert á sig fá að ekkert rafmagn var í skólanum og allsendis óvíst hvenær það yrði lagt. Þessi saga kemur reglulega upp í hugann á mér þegar fylgst er með umræðum um virkjanamál hér á landi. Þar er nefnilega stundum eins og byrjað sé á öfugum enda. Þannig heyrum við af því trekk í trekk að búið sé að skrifa undir samninga um uppbyggingu stóriðju án þess að orka hafi verði tryggð í fabrikkurnar. Og þegar gagnrýnisraddir hljóma um að ekki sé rétt staðið að málum er viðkvæðið oftar en ekki það að búið sé að eyða svo miklum fjármunum í undirbúning að það sé spurning um þjóðarhag að útvega orkuna. Það má velta því fyrir sér hvort stjórnendur sem eyða miklum fjármunum í verkefni upp á þá von og óvon að orka fáist í þau séu sérstaklega góðir stjórnendur. Ef í ljós kemur síðan að orkan liggur ekki á lausu eru fjármunirnir fyrir bí og það getur varla talist góð stjórnun, eða hvað? En kannski er það einmitt góð stjórnun. Kannski er þetta hluti af því sem á ensku kallast að vera passive agressive. Farið er af stað með undirbúning verkefna undir því yfir- skyni að ekkert sé nú ákveðið. Varla er fólk á móti því að hlutirnir séu skoðaðir? En síðan kemur að því að það næst saman um uppbyggingu og þá kemur annað hljóð í strokk- inn. Öllum þessum fjármunum hefur verið eytt í undirbún- ing verkefnisins og þess vegna er engin hæfa að vera á móti því að virkjað sé til að standa undir herlegheitunum. Ætlar fólk að vera á móti framförum? Við höfum landið okkar að láni og ef við ákveðum að ganga á það þarf sú ákvörðun að vera vel ígrunduð. Hún má ekki vera tekin eingöngu út frá forsendum þeirra sem unnið hafa að einhverju verkefni um hríð. Þeirra rödd hefur ekk- ert meira vægi en annarra og ef þeir hafa eytt peningum án þess að orka sé tryggð er það einfaldlega þeirra mál. Virkjanir eru mál okkar allra og ákvarðanir um þær eiga ekki að vera afgangsstærð í samningum sveitarstjórnar- manna, sem vilja iðnað í umdæmi sín, og forsvarsmanna iðnfyrirtækjanna, sem leita að hentugu plássi fyrir verk- smiðjur sínar. Það þarf nýja hugsun í virkjanamálum: Að byrja verkið á öfugum enda 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 3 -A 4 1 C 1 7 5 3 -A 2 E 0 1 7 5 3 -A 1 A 4 1 7 5 3 -A 0 6 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.