Fréttablaðið - 08.07.2015, Side 22

Fréttablaðið - 08.07.2015, Side 22
 | 4 8. júlí 2015 | miðvikudagur Konur fögnuðu 100 ára afmæli kosn- ingaréttar kvenna á svipuðum tíma og haldið var upp á 35 ára kosn- ingaafmæli Vigdísar Finnboga- dóttur. Staða kvenna í stjórnmálum fer batnandi, þótt einhverjum kunni að fi nnast sú þróun of hæg. Til að mynda hafa aldrei verið fl eiri konur á Alþingi en nú. En er sá árangur sem hefur náðst í að jafna stöðu kynjanna minni í viðskiptalífi nu en í stjórnmálum? „Ég held að hann sé kannski aðeins öðruvísi. Í viðskiptalífinu hefur náðst sá árangur að konur eru að koma mjög sterkar inn í fyrir tækin og inn í millistjórnenda stöður og upp skalann. En þær eru ekki að komast eins mikið inn í fram- kvæmdastjórnir og við hefðum viljað sjá,“ segir Þórdís Lóa Þór- hallsdóttir, fjárfestir og formaður Félags kvenna í atvinnulífi nu. Hún bendir á að konur stundi nú háskóla- nám til jafns við karla og í sumum tilfellum í mun meiri mæli. Konur sem útskrifast til dæmis úr við- skiptafræði, lögfræði, markaðs- og auglýsingafræði og verkfræði fái góðar stöður hjá fyrirtækjunum. FKA vilji ýta á að þær fái enn betri stöðu innan þeirra. Þið hafi ð bent á að staða kvenna innan helstu hagsmunafélaga í atvinnulífi nu er ekkert sérstaklega sterk. „Nei, hún er það ekki,“ segir Þór- dís Lóa. Þegar FKA hafi skoðað hlut- föllin hafi þau komið svolítið á óvart. Í níu helstu hagsmunafélögunum er einungis ein kona framkvæmda- stjóri og tvær konur formenn. „Við lítum svolítið á að það sé okkar hlut- verk að sýna fram á þetta,“ segir Þórdís Lóa. Hún segir konur síður en svo óvelkomnar í þessi hlutverk. Hlutirnir þróist einfaldlega svona. Það snúi upp á alla að breyta þessari stöðu. Félag kvenna í atvinnulífinu, Credit info og Samtök atvinnulífs- ins réðust saman í það verkefni árið 2009 að vinna að auknum fjölbreyti- leika í stjórnum fyrirtækja. Þórdís Lóa segir að verkefnið hafi alls ekki bara snúist um kynjakvóta heldur aukna fjölbreytni í víðara samhengi. Í aldri og jafnvel búsetu líka. Málið hafi snúist um það að fá sjónarhorn allra að borðinu. Og Þórdís Lóa segir að málið snú- ist um það að búa til viðhorfsbreyt- ingu og kúltúrbreytingu í stjórnum fyrirtækjanna. Þegar hugarfars- breytingin sé orðin að veruleika inni í stjórnum ætti hún að geta dreifst inn í framkvæmdastjórnina og svo lengra inn í fyrirtækið. „En síðan setur ríkisstjórnin árið seinna lög um kynjakvóta. Þá breytist þetta verkefni og þá fara allir að vinna að því að vera réttum megin við lögin,“ segir Þórdís Lóa. Þessi lög um kynjakvóta eru dá- lítið íþyngjandi. Telurðu að það sé rétt að þau hverfi með tíð og tíma eða telurðu að þau séu komin til að vera? Í fyrsta lagi myndi ég ekki segja að þetta væri íþyngjandi fyrir fyrir- tæki. Þetta væri það ef við værum með flokka af konum sem væru ómenntaðar og með enga reynslu. En það er það ekki.“ Þórdís Lóa viðurkennir þó að lagasetningin sé kvöð, það sé verið að stýra fyrir- tækjunum. „Þetta var sett á af því að það var ekki trú íslenskra stjórn- málamanna að viðskiptalífi ð gæti gert þetta sjálft,“ segir Þórdís Lóa. Ómögulegt sé að segja hvort það hafi verið rétt mat. Hún segist upp- hafl ega ekki hafa verið fylgjandi slíkri lagasetningu en síðan breytt um skoðun. Fordæmi séu fyrir því að lögum hafi verið breytt til að ná hugafarsbreytingu. Þar nefnir Þór- dís Lóa lög um jöfn laun og lög um fæðingarorlof. „Vonandi getum við einn daginn tekið þessi lög af, en það verður ekki alveg strax,“ segir Þórdís Lóa. Það verði að breyta menningunni innan fyrirtækja og hugarfari þannig að karlar og konur eigi jöfn tækifæri. Það taki nokkur ár að breyta því. FKA er fi mmtán ára um þessar mundir. Hverjir eru stærstu sigr- arnir í starfi félagsins? „Stærsti sigurinn er kannski að við höfum náð að beina sjónum að konum í atvinnulífi nu. Við höfum náð að draga þær aðeins fram og gera þær sýnilegar,“ segir Þór- dís Lóa. Þetta hafi verið gert með ýmsum hætti, til dæmis með viður- kenningarhátíð félagsins einu sinni á ári. Konum í FKA hafi fjölg- að og tekist hafi að tengja saman konur úr ólíkum geirum atvinnu- lífsins. „Og við höfum náð að inn- leiða tengslanetið í kúltúr kvenna,“ segir Þórdís Lóa. Þetta sé mikil- vægt skref sem hafi verið stigið á síðustu 20 árum. Konur séu orðn- ar miklu meðvitaðri um mikilvægi tengslanetsins á atvinnumarkaði. Þá bendir Þórdís Lóa á að síðan 2013 hafi félagið verið í samstarfi við Kauphöllina, VÍB og Naskar investment sem kallast Fjölbreytni á markaði. „Þar erum við að beina sjónum að konum sem fjárfestum,“ segir Þórdís Lóa. Hún bendir á að könnun sem Viðskiptablaðið lét gera hafi sýnt að eftir hrun treystu 98 prósent kvenna ekki fjárfest- ingum í hlutabréfum eða því að setja peningana sína í einhverja fjárfestingu. „Við höfum verið að beina sjónum okkar að því og að konurnar sjálfar taki af skarið og fjárfesti, taki þátt í fjárfestingum,“ segir Þórdís Lóa. Ekkert þurfi að stöðva konur, frekar en karla, í að fjárfesta. Hvað á félagið ógert? „Það sem er ógert og við þurfum að gera núna er að skoða hvernig ásýnd kvenna er í fjölmiðlum. Bæði hvernig fjölmiðlarnir eru, við hverja er verið að taka viðtöl og um hvað er verið að fjalla. Af hverju eru þessar fréttir harðar fréttir en aðrar fréttir mjúkar fréttir og hver ákveður það,“ segir Þórdís Lóa. Hún segir að því fleiri konur sem eru í stjórnmálum og því fl eiri konur sem fara fyrir félagasam- tökum, þeim mun auðveldara verði fyrir fjölmiðla að ná í þær. Þar með sé sagan ekki öll sögð. Fjölmiðlar verði líka að breyta vali sínu á við- mælendum þannig að fréttirnar endurspegli viðhorf alls samfélags- ins en ekki bara valdastrúktúrsins í samfélaginu. Þetta sé verkefni sem félagið vinni að núna og fái góðan hljómgrunn. Hafa fjölmiðlar meiri áhuga á því að tala við karla en konur? „Við erum ekkert sérstaklega að taka út konur í atvinnulífi nu,“ segir Þórdís Lóa. Hún bendir jafn- framt á að staðan hafi verið þannig undanfarin ár að í 25-30 prósent- um tilvika sé talað við konur í ljós- vakamiðlum. Prentmiðlarnir séu öðruvísi þar sem eru dálkar tengd- ir dægurmálum eins og Smartland sem skekki myndina. Þórdís Lóa segir að þetta misvægi í vali á við- mælendum sé vegna ómeðvitaðrar skekkju í hugarfari fólks og þess- ari skekkju þurfi að eyða. „Ég sem bisnesskona hef verið að spyrja þá sem eiga og stjórna fjölmiðlafyr- irtækjunum hvort þeir séu nokk- uð að tapa viðskiptum á því að láta fjölmiðlana endurspegla viðfangs- efnið svona út í samfélagið. Eru ekki tekjumöguleikar í því að vera með bæði kynin miklu betur representeruð í fjölmiðlum?“ spyr Þórdís Lóa. Og við höfum náð að innleiða tengslanetið í kúltúr kvenna. VIÐTAL Jón Hákon Halldórsson jonhakon@frettabladid.is Konur verði óhræddari við að fjárfesta Í níu hagsmunasamtökum í atvinnulífinu er einungis ein kona framkvæmdastjóri og tvær stjórnarformenn. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir fjárfestir vill að konur fjárfesti meira. Staða kvenna getur styrkst enn frekar. FORMAÐUR OG FJÁRFESTIR Þórdís Lóa rak Pizza Hut ásamt eiginmanni sínum og rak einnig slíka veitingastaði í Finnlandi. Hún seldi Helga Vilhjálmssyni í Góu matsölustaðinn hér á Íslandi fyrr á árinu. Þórdís Lóa segir að tengslanet kvenna í atvinnulífinu sé mjög mikilvægt og að þær séu að verða meðvitaðri um það. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Stjórnarformenn og framkvæmdastjórar nokk- urra hagsmunasamtaka í íslensku atvinnulífi Samtök Framkvæmdastjóri Formaður Samtök atvinnulífsins Samtök iðnaðarins Félag atvinnurekenda Samtök verslunar og þjónustu Samtök ferðaþjónustunnar Samtök fjármálafyrirtækja Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi Samtök álfyrirtækja Samtök orku- og veltufyrirtækja Karl Kona 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 4 -C 2 7 C 1 7 5 4 -C 1 4 0 1 7 5 4 -C 0 0 4 1 7 5 4 -B E C 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.