Fréttablaðið - 08.07.2015, Qupperneq 22
| 4 8. júlí 2015 | miðvikudagur
Konur fögnuðu 100 ára afmæli kosn-
ingaréttar kvenna á svipuðum tíma
og haldið var upp á 35 ára kosn-
ingaafmæli Vigdísar Finnboga-
dóttur. Staða kvenna í stjórnmálum
fer batnandi, þótt einhverjum kunni
að fi nnast sú þróun of hæg. Til að
mynda hafa aldrei verið fl eiri konur
á Alþingi en nú. En er sá árangur
sem hefur náðst í að jafna stöðu
kynjanna minni í viðskiptalífi nu en
í stjórnmálum?
„Ég held að hann sé kannski aðeins
öðruvísi. Í viðskiptalífinu hefur
náðst sá árangur að konur eru að
koma mjög sterkar inn í fyrir tækin
og inn í millistjórnenda stöður
og upp skalann. En þær eru ekki
að komast eins mikið inn í fram-
kvæmdastjórnir og við hefðum
viljað sjá,“ segir Þórdís Lóa Þór-
hallsdóttir, fjárfestir og formaður
Félags kvenna í atvinnulífi nu. Hún
bendir á að konur stundi nú háskóla-
nám til jafns við karla og í sumum
tilfellum í mun meiri mæli. Konur
sem útskrifast til dæmis úr við-
skiptafræði, lögfræði, markaðs- og
auglýsingafræði og verkfræði fái
góðar stöður hjá fyrirtækjunum.
FKA vilji ýta á að þær fái enn betri
stöðu innan þeirra.
Þið hafi ð bent á að staða kvenna
innan helstu hagsmunafélaga í
atvinnulífi nu er ekkert sérstaklega
sterk.
„Nei, hún er það ekki,“ segir Þór-
dís Lóa. Þegar FKA hafi skoðað hlut-
föllin hafi þau komið svolítið á óvart.
Í níu helstu hagsmunafélögunum er
einungis ein kona framkvæmda-
stjóri og tvær konur formenn. „Við
lítum svolítið á að það sé okkar hlut-
verk að sýna fram á þetta,“ segir
Þórdís Lóa. Hún segir konur síður
en svo óvelkomnar í þessi hlutverk.
Hlutirnir þróist einfaldlega svona.
Það snúi upp á alla að breyta þessari
stöðu.
Félag kvenna í atvinnulífinu,
Credit info og Samtök atvinnulífs-
ins réðust saman í það verkefni árið
2009 að vinna að auknum fjölbreyti-
leika í stjórnum fyrirtækja. Þórdís
Lóa segir að verkefnið hafi alls ekki
bara snúist um kynjakvóta heldur
aukna fjölbreytni í víðara samhengi.
Í aldri og jafnvel búsetu líka. Málið
hafi snúist um það að fá sjónarhorn
allra að borðinu.
Og Þórdís Lóa segir að málið snú-
ist um það að búa til viðhorfsbreyt-
ingu og kúltúrbreytingu í stjórnum
fyrirtækjanna. Þegar hugarfars-
breytingin sé orðin að veruleika inni
í stjórnum ætti hún að geta dreifst
inn í framkvæmdastjórnina og svo
lengra inn í fyrirtækið. „En síðan
setur ríkisstjórnin árið seinna lög
um kynjakvóta. Þá breytist þetta
verkefni og þá fara allir að vinna að
því að vera réttum megin við lögin,“
segir Þórdís Lóa.
Þessi lög um kynjakvóta eru dá-
lítið íþyngjandi. Telurðu að það sé
rétt að þau hverfi með tíð og tíma
eða telurðu að þau séu komin til að
vera?
Í fyrsta lagi myndi ég ekki segja
að þetta væri íþyngjandi fyrir fyrir-
tæki. Þetta væri það ef við værum
með flokka af konum sem væru
ómenntaðar og með enga reynslu.
En það er það ekki.“ Þórdís Lóa
viðurkennir þó að lagasetningin sé
kvöð, það sé verið að stýra fyrir-
tækjunum. „Þetta var sett á af því
að það var ekki trú íslenskra stjórn-
málamanna að viðskiptalífi ð gæti
gert þetta sjálft,“ segir Þórdís Lóa.
Ómögulegt sé að segja hvort það
hafi verið rétt mat. Hún segist upp-
hafl ega ekki hafa verið fylgjandi
slíkri lagasetningu en síðan breytt
um skoðun. Fordæmi séu fyrir því
að lögum hafi verið breytt til að ná
hugafarsbreytingu. Þar nefnir Þór-
dís Lóa lög um jöfn laun og lög um
fæðingarorlof. „Vonandi getum við
einn daginn tekið þessi lög af, en
það verður ekki alveg strax,“ segir
Þórdís Lóa. Það verði að breyta
menningunni innan fyrirtækja og
hugarfari þannig að karlar og konur
eigi jöfn tækifæri. Það taki nokkur
ár að breyta því.
FKA er fi mmtán ára um þessar
mundir. Hverjir eru stærstu sigr-
arnir í starfi félagsins?
„Stærsti sigurinn er kannski að
við höfum náð að beina sjónum að
konum í atvinnulífi nu. Við höfum
náð að draga þær aðeins fram og
gera þær sýnilegar,“ segir Þór-
dís Lóa. Þetta hafi verið gert með
ýmsum hætti, til dæmis með viður-
kenningarhátíð félagsins einu sinni
á ári. Konum í FKA hafi fjölg-
að og tekist hafi að tengja saman
konur úr ólíkum geirum atvinnu-
lífsins. „Og við höfum náð að inn-
leiða tengslanetið í kúltúr kvenna,“
segir Þórdís Lóa. Þetta sé mikil-
vægt skref sem hafi verið stigið á
síðustu 20 árum. Konur séu orðn-
ar miklu meðvitaðri um mikilvægi
tengslanetsins á atvinnumarkaði.
Þá bendir Þórdís Lóa á að síðan
2013 hafi félagið verið í samstarfi
við Kauphöllina, VÍB og Naskar
investment sem kallast Fjölbreytni
á markaði. „Þar erum við að beina
sjónum að konum sem fjárfestum,“
segir Þórdís Lóa. Hún bendir á að
könnun sem Viðskiptablaðið lét
gera hafi sýnt að eftir hrun treystu
98 prósent kvenna ekki fjárfest-
ingum í hlutabréfum eða því að
setja peningana sína í einhverja
fjárfestingu. „Við höfum verið að
beina sjónum okkar að því og að
konurnar sjálfar taki af skarið og
fjárfesti, taki þátt í fjárfestingum,“
segir Þórdís Lóa. Ekkert þurfi að
stöðva konur, frekar en karla, í að
fjárfesta.
Hvað á félagið ógert?
„Það sem er ógert og við þurfum
að gera núna er að skoða hvernig
ásýnd kvenna er í fjölmiðlum.
Bæði hvernig fjölmiðlarnir eru, við
hverja er verið að taka viðtöl og um
hvað er verið að fjalla. Af hverju
eru þessar fréttir harðar fréttir en
aðrar fréttir mjúkar fréttir og hver
ákveður það,“ segir Þórdís Lóa.
Hún segir að því fleiri konur
sem eru í stjórnmálum og því fl eiri
konur sem fara fyrir félagasam-
tökum, þeim mun auðveldara verði
fyrir fjölmiðla að ná í þær. Þar með
sé sagan ekki öll sögð. Fjölmiðlar
verði líka að breyta vali sínu á við-
mælendum þannig að fréttirnar
endurspegli viðhorf alls samfélags-
ins en ekki bara valdastrúktúrsins í
samfélaginu. Þetta sé verkefni sem
félagið vinni að núna og fái góðan
hljómgrunn.
Hafa fjölmiðlar meiri áhuga á því
að tala við karla en konur?
„Við erum ekkert sérstaklega
að taka út konur í atvinnulífi nu,“
segir Þórdís Lóa. Hún bendir jafn-
framt á að staðan hafi verið þannig
undanfarin ár að í 25-30 prósent-
um tilvika sé talað við konur í ljós-
vakamiðlum. Prentmiðlarnir séu
öðruvísi þar sem eru dálkar tengd-
ir dægurmálum eins og Smartland
sem skekki myndina. Þórdís Lóa
segir að þetta misvægi í vali á við-
mælendum sé vegna ómeðvitaðrar
skekkju í hugarfari fólks og þess-
ari skekkju þurfi að eyða. „Ég sem
bisnesskona hef verið að spyrja þá
sem eiga og stjórna fjölmiðlafyr-
irtækjunum hvort þeir séu nokk-
uð að tapa viðskiptum á því að láta
fjölmiðlana endurspegla viðfangs-
efnið svona út í samfélagið. Eru
ekki tekjumöguleikar í því að
vera með bæði kynin miklu betur
representeruð í fjölmiðlum?“ spyr
Þórdís Lóa.
Og við höfum
náð að innleiða
tengslanetið í kúltúr
kvenna.
VIÐTAL
Jón Hákon Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
Konur verði óhræddari við að fjárfesta
Í níu hagsmunasamtökum í atvinnulífinu er einungis ein kona framkvæmdastjóri og tvær stjórnarformenn.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir fjárfestir vill að konur fjárfesti meira. Staða kvenna getur styrkst enn frekar.
FORMAÐUR OG FJÁRFESTIR Þórdís Lóa rak Pizza Hut ásamt eiginmanni sínum og rak einnig slíka veitingastaði í Finnlandi. Hún seldi Helga Vilhjálmssyni í Góu matsölustaðinn hér á Íslandi fyrr á árinu. Þórdís Lóa segir að tengslanet
kvenna í atvinnulífinu sé mjög mikilvægt og að þær séu að verða meðvitaðri um það. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Stjórnarformenn og framkvæmdastjórar nokk-
urra hagsmunasamtaka í íslensku atvinnulífi
Samtök Framkvæmdastjóri Formaður
Samtök atvinnulífsins
Samtök iðnaðarins
Félag atvinnurekenda
Samtök verslunar og þjónustu
Samtök ferðaþjónustunnar
Samtök fjármálafyrirtækja
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
Samtök álfyrirtækja
Samtök orku- og veltufyrirtækja
Karl
Kona
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
4
-C
2
7
C
1
7
5
4
-C
1
4
0
1
7
5
4
-C
0
0
4
1
7
5
4
-B
E
C
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K