Fréttablaðið - 08.07.2015, Blaðsíða 23
Ég labbaði Laugaveginn þegar ég var 12 ára, með mömmu og Ferðafélagi Ís-
lands. Það var dálítið erfitt en ég
var mjög ánægður eftir á,“ segir
Aron Freyr Stefánsson, 14 ára
göngugarpur, en hann stundar
fjallgöngur af miklum móð. Frá
síðustu áramótum hefur hann
gengið á eitt fjall í hverjum
mánuði.
„Ég gekk á Kerhólakamb síð-
asta laugardag og þar á undan
fórum við á Hengil og Þríhyrn-
ing og fleiri fjöll. Ég er yngstur
í hópnum og eini krakkinn.
Mamma er líka í ferðunum en
hún eltir mig bara,“ segir hann
sposkur.
Áttu þér uppáhaldsfjall?
„Það var svolítið gaman að
labba á Þríhyrning, það var svo
flott útsýni. Við höfum alltaf
verið mjög heppin með veðrið í
gönguferðunum. Ég fékk mynda-
vél í fermingargjöf sem ég tek
með mér og mynda umhverfið.“
Aron hefur ferðast um allt Ís-
land með fjölskyldunni og þá er
tíkin Glóð jafnan með í för.
„Ég og mamma og Jón bróðir
minn förum stundum í útilegur
og fjallgöngur. Við förum á hús-
bílnum okkar um Ísland og tök-
um Glóð með í gönguferðir. Hún
fór til dæmis með okkur á Hengil
á laugardaginn. Það eru samt
aðallega við mamma sem erum
í fjallgöngunum,“ segir Aron og
bætir við að þau mæðginin séu
þegar búin að skipuleggja næstu
ferðir.
„Við ætlum á Fimmvörðuháls
í sumar og svo á Snæfellsjökul
næsta sumar.“
Milli þess sem Aron þvælist
um fjöll og firnindi sinnir hann
öðru áhugamáli sínu sem er
keramik.
„Ég var alltaf að fylgjast með
mömmu vinna í keramik og
fékk sjálfur áhuga. Síðan fór ég í
Myndlistaskóla Reykjavíkur og
bjó til hluti úr leir. Ég bý til gifs-
mót af alls konar hlutum og helli
síðan í þau. Svo glerja ég hlutina
með því að dýfa þeim ofan í gler-
unginn og mamma brennir þá
fyrir mig. Ég hef gert Volkswagen-
bjöllu og gerði líka húsbíl en við
vorum að safna leikfangahús-
bílum og ég fékk að gera mót af
einum,“ segir Aron en gripirnir
hans hafa vakið athygli.
„Á sjómannadaginn var ég að
prófa að selja með mömmu í Ís-
húsi Hafnarfjarðar og var sá sem
seldi flesta hlutina á markaðn-
um. Það gekk rosa vel. Ég held
örugglega áfram að gera leir-
hluti og verð kannski listamaður
en annars er ég ekkert búinn að
ákveða hvað ég ætla að gera í
framtíðinni.“
GÖNGUGARPUR
FJALLGANGA Aron Freyr Stefánsson gengur á fjöll í frístundum. Hann hefur
þegar lagt Laugaveginn að baki og tekur nú fyrir eitt fjall í hverjum mánuði.
Milli fjallganga steypir hann leirmuni sem vakið hafa eftirtekt.
MYNDAÐ Á ÞRÍHYRNINGI Aron fékk myndavél í fermingargjöf og grípur hana með
sér í fjallgöngurnar. MYNDIR/HANNA GRÉTA PÁLSDÓTTIR
KERAMIKER Leirmunir Arons fengu
góðar undirtektir á Sjómannadaginn í
Íshúsi Hafnarfjarðar.
NÁKVÆMNISVERK Aron býr til gifsmót
utan um ýmsa hluti og hellir svo í þau.
Hann glerjar munina sjálfur og fær að
brenna þá í ofninum á vinnustofu móður
sinnar.
PARÍS HEILLAR
Ertu á leið til Parísar? Hér færðu góð ráð áður
en þú leggur í hann. Það er nefnilega eitt og
annað sem er ókeypis í París, að minnsta kosti
stundum.
Síða 2
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
4
-2
9
6
C
1
7
5
4
-2
8
3
0
1
7
5
4
-2
6
F
4
1
7
5
4
-2
5
B
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K