Fréttablaðið - 08.07.2015, Side 27
5 | 8. júlí 2015 | miðvikudagur
Papco stefnir að því að reisa milli
þrjú og fjögur þúsund fermetra
verksmiðju við Bæjarflöt 19 í
Grafar vogi.
Borgarráð Reykjavíkur hefur
veitt fyrirtækinu vilyrði fyrir lóð-
inni með fyrirvara um samþykki
deiliskipulags.
Þórður Kárason, framkvæmda-
stjóri Papco, segir fyrirtækið hafa
stækkað hratt að undanförnu. Með
nýju og stærra húsnæði verði hægt
að auka framleiðslugetu fyrirtæk-
isins og þar með auka þjónustu við
viðskiptavini.
Papco, sem framleiðir klósett-
pappír, eldhúsrúllur og servíett-
ur, hefur fram til þessa leigt 2.200
fermetra húsnæði við Stórhöfða.
„Núverandi húsnæði er orðið allt
of lítið,“ segir hann.
Þórður vonast til að kostnaður
við fl utningana verði á milli 500 og
600 milljónir króna. Hann segir að
áhersla verði lögð á að byggja hag-
kvæmt til að halda kostnaði niðri.
Gangi allt að óskum er stefnt að
því að fyrirtækið verði fl utt í nýtt
húsnæði innan tveggja ára.
- ih
Papco hyggst flytja starfsemi sína í Bæjarflöt í Grafarvogi:
Reisir þrjú þúsund
fermetra verksmiðju
Davíð Ólafur Ingimarsson hefur
verið ráðinn fjármálastjóri hjá
GreenQloud. Davíð er með B.Sc. og
meistaragráðu í hagfræði og einnig
meistaragráðu í fjármálum fyrir-
tækja. Að auki er hann löggiltur
verðbréfamiðlari. Hann lærði hér
heima en fékk rannsóknarstyrk og
fór til Japans og Ástralíu.
„Það var mjög skrítið að búa í
Ástralíu,“ segir Davíð Ólafur. Það
hafi allir verið sofandi þegar hann
sjálfur var vakandi. „Sérstaklega
fannst mér skrítið yfi r sumartím-
ann þegar það voru vetrarútsölur í
öllum búðum. Í júlí á ekki að vera
vetrarútsala. Það er eitthvað rangt
við það,“ bætir Davíð við í léttum
dúr.
GreenQloud er nokkurra ára
gamalt íslenskt fyrirtæki. Það
er fyrst og fremst hugbúnaðar-
fyrirtæki og hefur lagt sífellt meiri
áherslu á búnað sem heitir Qstat.
Það er heildarskýjalausn til að
stýra skýjaumhverfum fyrir tækja
og sameina kosti sýndar umhverfa,
hefðbundinna netþjóna og sjálf-
virkni tölvuskýja. Fyrirtækið er
því hugbúnaðarfyrirtæki en ekki
skýjaþjónusta. „Þetta hefur bara
gengið nokkuð vel undan farið,“
segir Davíð Ólafur og bætir því
við að fyrirtækið hafi gert samn-
inga við erlenda og innlenda endur-
söluaðila. Fjörutíu manns vinna
hjá fyrirtækinu, sem er með skrif-
stofur í Reykjavík og Seattle og fer
ört stækkandi.
Umhverfið sem Davíð Ólafur
kemur úr er töluvert frá brugðið
tölvugeiranum. Hann vann hjá
Landsvirkjun í átta ár og segist
kveðja það fyrirtæki með söknuði.
Bjó í Ástralíu og fór á
vetrarútsölur í júlí
Davíð Ólafur Ingimarsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Green-
Qloud eftir langt starf hjá Landsvirkjun. Hann lærði hagfræði og
fjármál fyrirtækja í HÍ en fór í skiptinám til annarra heimsálfa.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn-
aði í gær íslenska ríkið af kröf-
um Þórðar Más Jóhannessonar,
fyrrverandi forstjóra Straums.
Þórður Már stefndi ríkinu vegna
ákvörðunar ríkisskattstjóra og
staðfestingar yfi rskattanefndar
á þeirri ákvörðun. Ákvörðun-
in snerist um það að tekjur sem
Þórður Már hafði af söluhagnaði
og arði bréfa, sem hann keypti í
gegnum hlutafélag sitt Brekku
ehf., skyldu teljast launatekjur,
en Þórður Már hafði talið þær
fram sem fjármagnstekjur.
Á árunum 2004 og 2005 gerði
Þórður Már, í nafni einkahluta-
félagsins Brekku ehf., tvo samn-
inga um kaup á hlutabréfum í
Straumi, annars vegar fyrir 328
milljónir króna og hins vegar
fyrir 1.350 milljónir króna.
Hinn 21. júní 2006 var stefn-
anda sagt upp störfum sem fram-
kvæmdastjóra hjá Straumi hf.
Sex dögum síðar seldi Brekka
öll hlutabréf sín í Straumi fyrir
alls 2.835 milljónir króna og
innleysti þannig söluhagnað af
hlutabréfunum sem nam 1.158
milljónum króna. Nettótekjur
Brekku af viðskiptunum (arðs-
tekjur og söluhagnaður að frá-
dregnum fjármagnskostnaði)
námu rúmum milljarði króna.
Ríkisskattstjóri ákvað með
endurákvörðun í október 2012
að umræddar tekjur væru launa-
tekjur og stofn Þórðar Más til
tekjuskatts og útsvars vegna
gjaldársins 2007 var hækkaður
um 944 milljónir króna. Í lok árs
2013 staðfesti yfirskattanefnd
þá ákvörðun ríkisskattstjóra í
megin atriðum, en lækkaði stofn
til útsvars og tekjuskatts um 348
milljónir króna.
Ýtrustu kröfur Þórðar Más
voru að úrskurður yfirskatta-
nefndar og úrskurður ríkis-
skattstjóra yrðu felldir úr gildi
og tekjuskatts- og útsvarsstofn
stefnanda gjaldárið 2007 yrði
lækkaður um 596 milljónir
króna. Héraðsdómur Reykjavík-
ur komst aftur á móti að þeirri
niðurstöðu að ákvarða hefði átt
tekjur Þórðar Más sem skatt-
skyld hlunnindi og sýknaði
íslenska ríkið af öllum kröfum
Þórðar. Var Þórður Már dæmdur
til að greiða íslenska ríkinu 900
þúsund krónur í málskostnað.
jonhakon@frettabladid.is
Þórður Már fær ekki
596 milljónir til baka
Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri Straums, stefndi
ríkinu vegna endurákvörðunar skatta í tengslum við hlutabréfa-
kaup í Straumi. Ríkið var sýknað og Þórður greiðir málskostnað.
ÞÓRÐUR MÁR JÓHANNESSON Héraðsdómur
Reykjavíkur féllst ekki á málatilbúnað fyrr-
verandi forstjóra Straums. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KANNAR AÐSTÆÐUR Þórður tekur út nýju lóðina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MYNDI SVIPA TIL HULK
Davíð Ólafur bendir á að allt
gerist hraðar í tölvugeiranum en í
orkugeiranum. „Verkefni mín eru
kannski svipuð að því leytinu til
að fjármál eru kannski ekkert að
breytast. Hjá Landsvirkjun var ég
í erlendri og innlendri fjármögnun,
sjóðastýringu og hjá Green Qloud
verð ég í fjármögnun. Að passa
upp á peningana og sjóðina,“ segir
Davíð. Hann bætir því við að það sé
því aðallega umhverfi ð sem breyt-
ist en ekki verkefnin. „Nema það er
kannski meiri ábyrgð að vera fjár-
málastjóri.“
Helstu áhugamál Davíðs eru
líkams rækt og útivist og svo kenn-
ir hann í Háskóla Íslands. „Kennsla
er eitthvað sem ég hef mikinn
áhuga á,“ segir Davíð ,en bætir við
að maður fari ekki í kennslu í HÍ
fyrir peninga. „Ég stofnaði fyr-
irtæki með vini mínum, Bjarna
Ingimar Júlíussyni, og við erum
að þróa rafrænar kennslubækur á
spjaldtölvur,“ segir Davíð. Upphaf-
lega átti fyrsta útgáfan að koma út
í sumar en Davíð segir það allt eins
geta breyst vegna nýju vinnunnar.
jonhakon@frettabladid.is
Davíð Ólafur er frábær vinur og samstarfsfélagi. Hann tekur
rosalega á því í ræktinni, er duglegur að rækta líkama og
sál. Ef hann væri í Avengers þá myndi honum svipa til The
Incredible Hulk eða þrumuguðsins Þórs. Svo er eitt sem ekki
allir vita: Hann er ósigraður skákmeistari Landsvirkjunar frá
árinu 2010. Þannig að skákmennirnir í GreenQloud geta farið
að vara sig. Svo er hann nefnilega líka lunkinn dansari, þótt fáir viti af
því. Það hefur sést af honum á árshátíðum. Við munu sakna hans mikið í
Landsvirkjun. Hann er duglegur við að hjálpa fólki við það sem það þarf á
að halda og eflir liðsheild.
Daði Sverrisson, sérfræðingur hjá Landsvirkjun.
Á meðal okkar í vinahópnum er Davíð Ólafur kallaður Clark
Kent eða Súperman og fátt fer jafn illa með sjálfstraust okkar
og að horfa máttlitlir á hann lyfta lóðum í World Class. Sam-
hliða vöðvasöfnun safnar hann háskólagráðum og til að ná
okkur niður á honum uppnefnum við hann gjarnan Georg
Bjarnfreðarson. Davíð er líka fyrirmyndarfaðir og til að bæta
gráu ofan á svart er hann dverghagur smiður. Hann lagði parketið heima
hjá sér svo listavel að mörg ár liðu fram að innflutningspartíi fyrir okkur
strákana. En umfram allt er Davíð einlægur og góður vinur sem alltaf er
hægt að treysta á. Allir vita hversu dýrmætt er að eiga slíkan vin.
Bolli Thoroddsen verkfræðingur.
Kennsla er
eitthvað sem
ég hef mikinn
áhuga á.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
4
-C
2
7
C
1
7
5
4
-C
1
4
0
1
7
5
4
-C
0
0
4
1
7
5
4
-B
E
C
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K