Fréttablaðið - 08.07.2015, Síða 36

Fréttablaðið - 08.07.2015, Síða 36
8. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 24 „Þessi hátíð byrjaði 2004 þegar það var einhver fádæma sköpunar- kraftur í veðrinu hérna fyrir vest- an því Aldrei fór ég suður var líka hleypt af stokkunum á þessu sama ári,“ segir Elfar Logi Hannes- son, leikari og forsvarsmaður Act Alone einleikshátíðarinnar á Suður eyri, sem verður haldin dag- ana 5.-9. ágúst næstkomandi. Vex og dafnar „Hátíðin var fyrst haldin á Ísafirði og gekk alveg ljómandi vel. En árið 2012 var haft samband frá Suður- eyri og okkur boðið að koma með hátíðina alla til þorpsins og við það varð algjör sprenging. Ég held að ástæðan fyrir því hafi verið að á Suðureyri þéttist þetta allt saman. Eitt félagsheimili tók inn alla við- burðina, einn bar tók við gestum sem vildu koma saman og spjalla og fólk fór meira að kynnast og njóta hátíðarinnar í heild. Allt síðan Act Alone var haldin í fyrsta sinn hefur hátíðin vaxið og dafnað frá ári til árs. Viðburð- um hefur fjölgað en þeir eru nú tuttugu talsins og að sama skapi hefur áhorfendafjöldi margfald- ast. Á síðasta ári komu um 3.000 gestir til okkar og það var alveg rosalega gaman. Við erum að fá til okkar gesti alls staðar af landinu og þar af koma vissulega margir frá höfuð borgarsvæðinu. Það er enn hægt að fá einhverja gistingu inni á Suðureyri og svo er líka stutt á Ísafjörð, Flateyri og fleiri staði. Auk þess er alveg frábært tjaldstæði á Suðureyri og það er náttúrulega afskaplega gaman að gista þar.“ Kenneth Máni og landsliðið Elfar Logi segir að þegar hátíðin komst fyrst á laggirnar á sínum tíma hafi hún verið bundin við einleiksform leiklistarinnar en það hafi þó breyst og þróast að undan- förnu. „Eftir því sem hátíðin hefur stækkað hefur fjölbreytnin auk- ist. Hátíðin í sumar verður sú fjöl- breyttasta enn sem komið er. Auk leiklistarinnar fórum við að horfa til fleiri listgreina þar sem listamennirnir eru einmitt mikið að vinna einir. Á hátíðinni í ár verða því ritlist, tónlist, mynd- list, gjörningur, dans og alls konar skemmtilegheit. Það verður eigin- lega landsliðið sem sér um þetta í ár því þarna verða m.a. Þórarinn Eldjárn, KK, Lára Rúnars, Edda Björgvins að ógleymdri stjörnunni Kenneth Mána, sem ætlar að koma vestur og vera með okkur. Act Alone gleymir ekki heldur börn- unum því við höfum alltaf lagt áherslu á að hafa eitthvað fyrir þau og í ár ætlar Ævar vísinda- maður að koma og skemmta krökk- unum með alls konar tilraunum og uppátækjum. Það verður algjör sprengja.“ Fyrirtækin og fólkið Eitt af aðalsmerkjum hátíð arinnar Act Alone er að allt frá upphafi hefur verið frítt inn á alla við- burði. Elfar Logi segir að það hafi alla tíð verið lykilatriði að allir sem vilja koma og njóta viðburð- anna geti átt þess kost óháð efna- hag. „Ég er sjálfur listamaður og því geri ég mér líka grein fyrir mikilvægi þess að listamenn fái greitt fyrir sína vinnu sem þeir fá að sjálfsögðu hér. Við eigum öflugan bakhjarl í Fisherman- ferðaþjónustunni á Suðureyri og svo hafa bæði uppbygginga sjóður Vestfjarða og fjölmörg fyrirtæki á svæðinu stutt vel við bakið á okkur. En það er mikilvægt að það komi fram að ekkert af þessu væri mögulegt nema fyrir fólkið í þorp- inu sem hefur tekið alveg gríðar- lega vel á móti okkur. Fólk tekur virkan þátt í hátíðinni, vinnur mikið sjálfboðastarf og er meira að segja orðið vant því að það sé bankað upp á hjá því af því að það vantar bláan bolla eða gulan disk eða einhverja aðra leikmuni. Suður eyri er meira að segja alveg frábært props-þorp svo það er ekki hægt að biðja um meira.“ magnus@frettabladid.is Bankað upp á til þess að propsa Einleikslistahátíðin Act Alone verður haldin á Suðureyri í ágúst og hefur aldrei verið fj ölbreyttari að sögn Elfars Loga Hannessonar. Sýning Ástu er sú fyrsta í röð fimm sýninga sem G.ERLA, Guðrún Erla Geirsdóttir, skipuleggur í samvinnu við Gallerí Gest og Menningarhúsið Iðnó í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Sýningaröðin nefnist Argintætur í íslenskri myndlist. Í stuttri útgáfu er sagan um Argintætu svona: Kerling nokkur, svarkur og orðhákur, var kölluð Argintæta. Umkomulaus stúlka laðaðist að henni og Argintæta arfleiddi hana að öllu sínu. Arfurinn nægði til að koma stúlkunni til mennta og naut hún síðar hylli fólks. Argintætur í íslenskri myndlist Miðvikudagur 5. ágúst Fiskismakk og upphafsstef Act alone. Þórarinn Eldjárn rithöfundur. Barry and his Guitar, leikari og höfundur Bragi Árnason. Fimmtudagur 6. ágúst Án titils– sellóeinleikur, Kristín Lárusdóttir. Hringferðin, leikari og höfundur Kristín G. Magnúsdóttir. Act alone– heimildarmynd, leikstjóri Baldur Páll Hólmgeirsson, Kvik- myndafélagið Gláma. Föstudagur 7. ágúst Doría, leiklestur. Leikari: Ársæll Níelsson. Höfundar: Eyrún Ósk Jónsdóttir, Helgi Sverrisson. Leikstjórn: Eyrún Ósk Jónsdóttir. Húmor er dauðans alvara með Eddu Björgvins. Leikari/höfundur: Edda Björgvinsdóttir. Lára Rúnars, tónleikar. Saving History, danssýning. Dansari/Höfundur: Katrín Gunnarsdóttir. Laugardagur 8. ágúst Vísindanámskeið Ævars. Flytjandi: Ævar Þór Benediktsson. Blaðrari– blöðrulistamaður. Hertu þig upp, gjörningur. Flytjandi: Kolbrún Elma Schmidt. Fiskiréttaveisla Fisherman. Ein stakur markaður. Út að leika með Ísgerði. Ísgerður Gunnarsdóttir hefur skemmt börnum á öllum aldri síðustu ár. Þú kemst þinn veg. Leikari/Höfundur: Finnbogi Þorkell Jónsson. Leik- stjórn: Árni Kristjánsson. Kenneth Máni. Leikari: Björn Thors. Höfundar: Björn Thors, Saga Garðars- dóttir, Jóhann Ævar Grímsson. Leikstjórn: Bergur Þór Ingólfsson. KK, tónleikar. Karl Örvarsson eftirherma. Ásta Fanney rithöfundur. Dagskrá Act Alone 2015 EINLEIKARI Elfar Logi Hannesson er forsprakki hátíðarinnar.ACT ALONE Um 3.000 manns mættu á hátíðina í fyrra og stemningin var frábær. „Verkin í einni stofunni í Iðnó eru gerð í kringum rokkinn hennar ömmu og þá hugmynd að konur sátu á rúmstokkunum með bogin bök og spunnu á rokka langtímum saman. En upp úr því að þær fengu kosn- ingarétt fóru þær aðeins að rétta úr sér því smám saman fengu þær meira val í lífinu og hófu að spinna öðruvísi þræði.“ Þannig lýsir Ásta Ólafsdóttir myndlistarkona inntaki nýjustu verkanna á sýningunni í Iðnó um þessar mundir. Hún er líka með sýningu í Galleríi Gesti en það er taska sem dr. Magnús Gestsson hefur alltaf með sér og opnar þar sem hann stingur niður fæti. Óhlutbundnar vatnslita- og gvass- myndir eru meðal verka Ástu, hún kveðst hafa mikla ánægju af að mála með gvassi sem er tegund af vatnslitum. „Það er eitthvað sem ég fæst við meðfram öðru í myndlist- inni og mér finnst auðvelt að bregða fyrir mig á ferðalögum. Svo eru líka olíumálverk í einni stofunni,“ lýsir hún. Ásta vinnur í ýmsa miðla og var meðal fyrstu Íslendinga til að gera myndbandsverk. „Ég var svo hepp- in að vera við nám í Jan van Eyck akademíunni í Hollandi frá 1981 til 1984 þegar þar var mikil vídeó- vakning. Ég hef samt ekki einbeitt mér að þeirri tækni í seinni tíð,“ útskýrir hún og segir að sér hafi fundist vídeólistin meira spennandi meðan fáir fengust við hana. „Ég hef alltaf haft gaman af tilrauna- kraftinum og að leita nýrra mögu- leika með nýrri tækni eða nýju efnis vali. Það er í mínu eðli,“ segir hún. „Þegar ég er fyllilega búin að ná tökum á einhverju finnst mér ég geta farið að framleiða og þá hætti ég í því. Þarf alltaf að vera í ein- hverri baráttu.“ gun@frettabladid.is Hef alltaf haft gaman af tilraunakraft inum Verk Ástu Ólafsdóttur myndlistarkonu í Iðnó eru sum hver unnin út frá hugmyndinni um spunakonur fortíðar. ARGINTÆTA Ásta Ólafsdóttir myndlistarmaður og verk hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MENNING 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 3 -F C F C 1 7 5 3 -F B C 0 1 7 5 3 -F A 8 4 1 7 5 3 -F 9 4 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 4 8 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.