Fréttablaðið - 08.07.2015, Qupperneq 38
8. júlí 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 26
„Þetta er algjörlega nýtt Eistna-
flug, við erum búnir að setja
saman flottasta Eistnaflugið hing-
að til, það er alveg klárt,“ segir
Stefán Magnússon, forsprakki
tónlistarhátíðarinnar Eistnaflug.
Hátíðin hefst í dag í Neskaupstað
og stendur til 11. júlí.
Eistnaflug hefur hingað til farið
fram í félagsheimili kaupstað-
arins, Egilsbúð, en í ár fer hún
fram í íþróttahúsi kaupstaðarins.
„Þetta verður allt miklu stærra
og flottara. Það er um tvö til þrjú
hundruð manna aukning á milli
ára hjá okkur. Nú þegar hafa yfir
500 útlendingar meldað sig, sem er
um 40 prósenta aukning á útlend-
ingum á milli ára,“ segir Stefán.
Íþróttahúsið rúmar í það
minnsta 1.500 manns, líklega tals-
vert fleiri, en Egilsbúð gat aðeins
tekið á móti um 1.000 gestum.
Það vakti athygli að hátíð-
in fékk ekki styrk frá Uppbygg-
ingarsjóði Austurlands og var
Stefán augljóslega ekki sáttur við
það. „Ég er búinn að velta þessu
fyrir mér í nokkra daga og reyna
að skilja þessa ákvörðun. Er það
þessi straumur af fólki sem kemur
austur þegar Eistnaflug er sem
veldur þessu, en við reiknum með
að minnsta kosti 2.000 manns á
Eistnafluginu í sumar? Nú þegar
eru um 500 erlendir gestir búnir
að bóka sig og eru þeir að koma
austur að skoða allt sem er í boði.
Ég er að fá um 60 ljósmyndara og
blaðamenn á Eistnaflug sem fjalla
um Austfirði, land og þjóð og jú
Eistnaflug. Eistnaflug eykur sölu
í verslunum um milljón prósent
þessa fimm daga í Fjarðabyggð og
það ætti að skipta máli þegar við
skoðum hversu margir fá vinnu út
af Eistnaflugi. Öll hótel eru upp-
bókuð og ekki bara í Neskaup-
stað heldur eru gestir Eistnaflugs
farnir að bóka sig á Eskifjörð og
Reyðarfjörð líka. Það sem ég er að
benda á hér er það að það er eng-
inn menningarviðburður á Austur-
landi sem hefur önnur eins áhrif á
Austurland og Eistnaflug,“ skrif-
aði Stefán á Facebook-síðu sína
þegar hann fékk þessar fregnir.
Alcoa Fjarðaál veitti þó skipu-
leggjendum tónlistarhátíðarinnar
Eistnaflugs á Neskaupstað hæsta
einstaka styrkinn við árlega vor-
úthlutun Samfélagssjóðs Alcoa
Fjarðaáls eða eina milljón króna.
„Ég reikna aldrei með neinum
styrkjum og sæki bara um. Þetta
snýst bara um að hátíðin gangi vel
og allir fari af henni brosandi. Við
viljum lenda hátíðinni réttu megin
við núllið og því skiptir það máli að
fá styrki. Undanfarin ár höfum við
komið út réttum megin við núllið,
málið snýst um það. Það eru sjálf-
boðaliðar sem vinna að hátíðinni í
heilt ár. Fólk sér bara Neskaupstað
fullan af fólki en það er rosalegur
kostnaður og vinna að baki svona
hátíð sem fólk áttar sig stundum
ekki á.“
Fjöldi þekktra hljómsveita
kemur fram í ár. Skálmöld, Sól-
stafir, Ham, Agent Fresco og
Brain Police eru á meðal þeirra
sveita sem fram koma.
gunnarleo@frettabladid.is
Stærsta Eistnafl ugið hingað til
Stefán Magnússon, forsprakki hátíðarinnar, segir að um 40 prósentum fl eiri
erlendir gestir hafi boðað komu sína á hátíðina í ár. Hátíðin er með nýju sniði.
STEFÁN MAGNÚSSON Forsprakki
Eistnaflugs. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
GÓÐ STEMNING Tónleikarnir fara fram í íþróttahúsinu, sem rúmar í það minnsta 1.500 manns, líklega talsvert fleiri. Egilsbúð
gat aðeins tekið á móti um 1.000 gestum. MYND/GUÐNÝ LÁRA THORARENSEN
Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem Kiddi Rokk, fékk á dögunum
afhenta heiðursviðurkenningu Eistnaflugs sem kallast Grjótið. „Ég er
ferlega stoltur af þessu, sérstaklega því maður fær þetta frá fólkinu í
bransanum. Það er gaman að fá klapp á bakið frá bransafólkinu,“ segir
Kiddi alsæll með viðurkenninguna. Hann hefur verið í bransanum í um 25
ár og lengst af starfað fyrir Smekkleysu. Honum var komið á óvart þegar
hann var boðaður í viðtal á Rás 2. „Ég var kallaður í viðtal til að ræða tón-
listarmarkaðinn. Í miðju viðtali segja þeir að þeir hafi ekki verið að biðja
mig um að koma í viðtal heldur vildu þeir bara koma mér á óvart,“ segir
Kiddi léttur í lundu.
„Kiddi er bara algjör perla, þessi einlægni og áhugi hjá honum að bera
orðspor rokktónlistar á borð fyrir alla er svo fallegt. Það er alveg sama
hvernig staðan er með rokk og ról, hann heldur alltaf áfram,“ segir Stefán
um Kidda. Sex manna nefnd skipuð fólki úr bransanum velur heiðurs-
verðlaunahafann. Í fyrra fékk Sigvaldi Jónsson, betur þekktur sem Valli
Dordingull, viðurkenninguna.
Kiddi rokk fékk heiðursviðurkenninguna í ár
SÁTTUR Kristján Kristjánsson, betur
þekktur sem Kiddi Rokk, hlaut Grjótið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á sumrin er iðulega mikið að gera og vilja
margir nýta þessi björtu síðdegi og kvöld í
eitthvað allt annað en að standa við elda-
vélina. Þá er gráupplagt að henda í ferskt
salat og eyða svo restinni af tímanum í að
hendast upp Helgafellið eða hjóla Ægi-
síðuna.
Uppskrift fyrir fjóra
1-2 msk. ólífuolía
2 hvítlauksrif, pressuð
3-4 kjúklingabringur
3-4 msk. rautt pestó
1 poki blandað salat
1 agúrka
1 mangó
1 meðalstór rauðlaukur
1 askja kirsuberjatómatar
Fetaostur, magn eftir smekk
Balsamikedik, magn eftir smekk
Salt og nýmalaður pipar
Radísur
Graskersfræ, ristuð
Aðferð:
1. Hitið olíu við vægan hita og steikið kjúklinginn
í olíu, bætið hvítlauknum saman við á pönnu,
kryddið með pipar og einhverju góðu kryddi, val-
frjálst. Bætið pestóinu saman við og örlitlu vatni,
leyfið þessu að malla í smá stund.
2. Skolið grænmetið vel og skerið smátt, skellið í
skál og balsamikedik yfir. Smá fetaostur, geitaostur
eða camembert sett út í.
3. Setjið kjúklinginn saman við og hrærið vel,
kryddið til með salti og pipar. Sáldrið nokkrum
ristuðum graskersfræjum yfir salatið að lokum.
Tryllt tímasparandi pestókjúklingasalat
GIRNILEGT Lauflétt og gott sumarsalat. Fengið af
evalaufey.com.
7. - 11. JÚLÍ Í FAXA
FENI 7
FYRSTUR
KEMUR
FYRSTUR
FÆR!
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN
FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200
VERSLAÐU Á
WWW.GÁP.IS
ALLT AÐ50%
AFSLÁTTUR
AÐEINS Í NOKKRA D
AGA!
GÁMA-
SALA
FULLUR GÁMUR AF
MONGOOSE HJÓLUM
SEM VIÐ ÞURFUM A
Ð LOSNA VIÐ - STR
AX!
SÖLUMENN OKKA
R VERÐA Í SAMNIN
GSSTUÐI!
LÍFIÐ
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
3
-D
0
8
C
1
7
5
3
-C
F
5
0
1
7
5
3
-C
E
1
4
1
7
5
3
-C
C
D
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
_
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K