Fréttablaðið - 13.07.2015, Blaðsíða 2
13. júlí 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
r á
sk
ilj
a
sé
r r
ét
t t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
.
Costa del Sol
Frá kr. 139.900
m/allt innifalið
Torremolinos á
Netverð á mann frá kr. 139.900 m.v. 2-3 í herbergi
Roc Costa Park – 16. júlí í 11 nætur
eeeeeeeeeveveeeeeeeeeeeveeeeeeeeeeeveveveveveveeeeeeeveeveveveeeeeeveeveveveveveveveeeveveeeveeeeevevevevevevevevevevevevevvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvv
eeeeeeee
g
eeeee
rð
g
eeeee
g
ee
g
rð
g
e
ð
g
e
ð
g
e
ð
g
ee
rð
g
e
rð
g
e
ð
g
e
gg
e
rð
g
e
rð
g
e
ð
g
e
ð
g
e
g
rð
g
e
g
e
ð
g
e
ð
g
e
rð
g
e
g
rð
g
e
g
ð
g
e
gggggggg
rð
gg
rð
g
rð
gggð
ggggggggg
rð
ð ð rð
ð rð
rððrðððððrðððððrððððrðrðrðððððrððrððððððrðrðððrðrðððrðrðrðrðrðrðrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
ttuutuuuuttuuuuutuuuuuuuuuuttttttttttttttttttttttttttttttt
vvvvrvrvrvr
yr
iri
yr
i
ar
a.
ar
a.a.a....aaraaar
a
ar
aaara
SÉ
RT
IL
BO
Ð
NÁLGUNARBANN OG AUSTURÍSKA
LEIÐIN Á SUÐURNESJUM
2013 2014 2015* 2013 2014 2015*
■ Samþykktar beiðnir ■ Heildarfjöldi beiðna
*Það sem af er ári 2015 ** Brottvísun að beiðni brotaþola hefur alltaf verið hafnað.
12
10
8
6
4
2
0
8
6
4
2
0
Nálgunarbönn Brottvísun af heimilum
9
2 2 1**
12
4
7
5
1
7
LÖGREGLUMÁL Fórnarlömb heimilis-
ofbeldis á Suðurnesjum hafa síður
fengið samþykkt nálgunarbann eða
brottvísun ofbeldismanns af heimili
eftir að nýr lögreglustjóri tók við um
síðustu áramót. Tölur sýna að þegar
Sigríður Björk Guðjónsdóttir starf-
aði sem lögreglustjóri á Suðurnesj-
um var meirihluti beiðna brotaþola
um slíkar aðgerðir samþykktur.
Það sem af er ári hafa beiðnir
brotaþola um brottvísun ofbeldis-
manns af heimili, hina svokölluðu
austurrísku leið, aldrei verið sam-
þykktar. Þá hefur nálgunarbann
aðeins tvisvar verið samþykkt.
Fimm sinnum hefur því verið hafn-
að.
Árið 2013, í tíð fyrri lögreglu-
stjóra, voru níu nálgunarbönn sam-
þykkt en þremur hafnað. Þá var
alltaf samþykkt að fjarlægja of-
beldis mann af heimili ef brotaþoli
óskaði þess.
Ólafur Helgi Kjartansson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, segir
að þeim aðgerðum sem ráðist var í
í tíð fyrri lögreglustjóra hafi verið
áfram haldið í hans tíð. „Verklag og
reglur hafa ekki breyst. Það hefur
ekki verið slakað á þeim kröfum
sem gerðar eru til þess að heimilis-
ofbeldismálum sé fylgt eftir.“
Undir þetta tekur Jóhannes Jens-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn á
Suðurnesjum. Hann segir ýmsar
skýringar geti verið á því að nú séu
hlutfallslega færri nálgunarbönn og
brottvísanir samþykktar.
„Þar á meðal er ein skýring sú að
við höfum verið að læra á þetta kerfi
og rákum okkur á það í upphafi að
ef menn brjóta bannið þá þarf brota-
þolinn að kæra það. Fólk áttaði sig
á því að ef við vorum að standa í
þessu þvert á vilja brotaþolans þá
var úrræðið ónýtt, þá var ekki hægt
að fylgja því eftir.“
Jóhannes segir að hluta af skýr-
ingunni megi rekja til þess að brota-
þolar dragi stundum til baka beiðnir
um nálgunarbönn eða brottvísanir.
„Í einhverjum tilvikum var bara
fallist á það hreinlega. Við getum
ekki verið inni á heimilum fólks til
að athuga öllum stundum hver er
þar. Við lentum í ákveðnum vanda
þarna. Núna erum við hreinlega ekki
að fara fram með kröfur og höfnum
kröfum í þeim tilvikum þar sem
brotaþolinn er ekki alveg með sitt á
hreinu,“ segir Jóhannes Jensson.
snaeros@frettabladid.is
Færri nálgunarbönn
veitt á Suðurnesjum
Á þessu ári hafa fórnarlömb heimilisofbeldis á Suðurnesjum aldrei fengið ósk sína
um brottvísun ofbeldismanns af heimili uppfyllta. Einungis tvö nálgunarbönn
hafa verið veitt á sama tíma. Lögreglustjóri segir að enn sé sömu skilyrðum fylgt.
NÝR STJÓRI Ólafur Helgi Kjartansson
hóf störf um áramót. Áður hafði hann
verið sýslumaður á Selfossi.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fólk
áttaði sig á því
að ef við
vorum að
standa í þessu
þvert á vilja
brotaþolans
þá var úrræðið ónýtt, þá
var ekki hægt að fylgja því
eftir.
Jóhannes Jensson yfirlögregluþjónn.
Hjálparsveit skáta í Garðabæ stendur nú fyrir áheitagöngu fyrir þau
Eddu Björk Gunnarsdóttur og Eyþór Fannberg heitinn, sem hafa bæði
barist hetjulega við krabbamein síðastliðið ár. Eyþór tapaði baráttunni
í janúar á þessu ári.
Gangan fer fram dagana 6.-26. júlí og er gengið frá Skógum til Siglu-
fjarðar, eða þvert yfir landið.
Hægt er að fylgjast með gönguferðinni á heimasíðu hjálparsveitar-
innar og á fréttaveitu Facebook-síðu hjálparsveitarinnar.
Myndin er tekin síðastliðið laugardagskvöld þegar Rakel Ósk Snorra-
dóttir og Eiríkur Finnur Sigursteinsson voru nýkomin í skálann Versali
á Sprengisandi eftir 31 kílómetra langa dagleið. - ngy
Hjálparsveit skáta í Garðabæ stendur fyrir áheitagöngu:
Gengið þvert yfir landið til góðs
SPRENGISANDUR Rakel Ósk Snorradóttir og Eiríkur Finnur Sigursteinsson komin á
Sprengisand eftir 31 kílómetra langa leið. MYND/AÐSEND
ÍÞRÓTTIR María Ögn Guðmunds-
dóttir vann hjólamótið Kia Gull-
hringinn í kvennaflokki í fjórða
skipti. Keppnin var haldin í fjórða
skipti á Laugarvatni síðastliðinn
laugardag.
Elvar Örn Reynisson sigraði í
karlaflokki.
700 keppendur tóku þátt í keppn-
inni, sem er metfjöldi þátttakenda
frá upphafi mótsins.
Hjólað var samtals um 106 kíló-
metrar og nutu keppendur veður-
blíðunnar.
Allir keppendur komu heilir í
mark fyrir utan nokkrar minni-
háttar skrámur. - ngy
700 keppendur tóku þátt:
Vann hjólamót
í fjórða skipti
LÖGREGLUMÁL Þrír ungir menn
reyndu að brjóta sér leið inn í hús
í Laugardal aðfaranótt sunnu-
dags. Mennirnir voru 16 og 17 ára
gamlir og handteknir skömmu
síðar. Málið var afgreitt með
aðkomu foreldra piltanna.
Þá var ungur maður stöðvað-
ur í annarlegu ástandi á Banka-
stræti og vistaður í fangaklefa
vegna ástands en ætluð fíkniefni
fundust í vösum hans.
Þá var ræktun fíkniefna stöðv-
uð í austurhluta höfuðborgar-
svæðisins og einn vistaður í
fangageymslu í tengslum við
rannsókn málsins. - sój
Annasamt hjá lögreglunni:
Ungir brutust
inn í Laugardal
Ögmundi Jónassyni, þingmanni
Vinstri grænna, líst illa á fyrir-
huguð þjónustugjöld í þjóðgarðinum
á Þingvöllum og segir að slík gjöld
geti breytt ásýnd Íslands sem ferða-
mannalands.
Þingvallanefnd ætlar að taka upp
bílastæðagjald í Þjóðgarðinum og er
vonast til þess að gjaldið skili fjöru-
tíu til fimmtíu milljónum króna á
ári. Þjóðgarðsvörðurinn á Þingvöll-
um segir ákvörðun um þjónustu-
gjöld á Þingvöllum gefa ákveðið for-
dæmi fyrir því að rukkað verði gjald
fyrir þjónustu á ferðamannasvæð-
um, ekki bara á opinberum friðlýst-
um svæðum heldur líka stöðum í
eigu einkaaðila.
„Alls staðar er verið að rukka,
setja upp stöðumæla og eftirlit og
gjaldtöku. En það er ekki bara að
yfirbragðið breytist heldur verður
okkur gert torveldara að njóta lands-
ins því að ég hef grun um að þarna
verði ekki látið staðar numið. Þing-
vellir, svo koma Gullfoss og Geysir
og Jökulsárlón og svo framvegis.
Þannig að viljum við hafa þetta yfir-
bragð á landinu? Ég held ekki,” segir
Ögmundur. - þká
Þingvallanefnd ætlar að taka upp bílastæðagjald í Þjóðgarðinum á Þingvöllum:
Líst illa á gjöld á Þingvöllum
ÞINGVELLIR „Þessi notendagjöld, þau
fara illa í mig,“ segir Ögmundur Jónas-
son þingmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AFGANISTAN Að minnsta kosti
tuttugu og fimm létust og tíu
særðust er bílsprengja sprakk við
bandaríska herstöð í suðaustur-
hluta Afganistan í dag. Talið er
að um sjálfsmorðsárás hafi verið
að ræða en enginn hefur lýst til-
ræðinu á hendur sér.
Árásin átti sér stað í námunda
við eftirlitsstöð í útjaðri borgar-
innar Khost. Engan starfsmann
Bandaríkjahers sakaði, en allir
þeir sem létust voru almennir
borgarar. - sks
Sjálfsmorðsárás í Afganistan:
Bílsprengja
felldi 25 manns
KÍNA, BLOOMBERG 27 ríkustu viðskiptajöfrar Kína og
Hong Kong hafa tapað tæplega hundrað milljörðum
Bandaríkjadala, um þrettán billjónum króna, á
einum mánuði. Kínverskir markaðir byrjuðu að
hrapa þann tólfta síðasta mánaðar. Þriðjungur taps-
ins átti sér stað fyrri hluta síðustu viku áður en
stjórnvöld gripu inn í.
Markaðir tóku kipp í kjölfar þess að stjórnvöld
stöðvuðu öll viðskipti með verðbréf næsta hálfa
árið. Frá því í júní höfðu markaðir fallið um þriðj-
ung og ekki sá fyrir endann á því.
Kína er það land sem á flesta milljarðamæringa
á eftir Bandaríkjunum. Til að mynda ná 27 þeirra
inn á lista yfir 400 ríkustu menn heimsins. Eign-
ir þeirra nema um 262 milljörðum dala, tæpum 35
billjónum íslenskra króna, en sú upphæð nemur um
sex prósentum af samanlögðum eignum þeirra 400
ríkustu.
„Ég ætla rétt að vona að þessir menn átti sig á því
að þetta voru allan tímann hálfgerðir platpeningar,“
segir Niklas Hageback, sem starfar í Hong Kong.
„Það er nauðsynlegt ætli þeir að halda geðheilsu.“
Síðan í júní hafa markaðir fallið um þrjár billjónir
dala. Til samanburðar er rétt að nefna að það er um
tuttuguföld sú upphæð sem áætlað er að afskriftir
gríska ríkisins muni nema þegar upp er staðið.
- jóe
Fall kínverskra fjármálamarkaða hefur leikið þarlenda milljarðamæringa grátt:
Fjögurra billjóna tap á tæpri viku
SPILAÐ Á SPIL Kínverskir fjárfestar stytta sér stundir í höfuð-
borg Kína, Beijing. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEÐUR
Í dag er gert ráð fyrir norðaustlægri eða
breytilegri átt, víða 3 til 8 metrum á
sekúndu. Skýjað og rigning eða skúrir, en
úrkomulítið á Vesturlandi fram eftir degi.
Hiti að 16 stigum vestanlands, en 7 til 12
stig á Norður- og Austurlandi.
SJÁ SÍÐU 36
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
1
-1
3
6
C
1
7
5
1
-1
2
3
0
1
7
5
1
-1
0
F
4
1
7
5
1
-0
F
B
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K