Fréttablaðið - 13.07.2015, Blaðsíða 46
13. júlí 2015 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 26
MÁNUDAGSLAGIÐ
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
– fyrir lifandi heimili –
R e y k j a v í k o g A k u r e y r i
E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
w w w . h u s g a g n a h o l l i n . i s
NÝTT
TWIST
ÓTRÚLEGA
ÞÆGILEGUR
TWIST
hægindastóll
Tilboð: 59.990
Fullt verð: 69.990
TWIST skemill
Tilboð: 24.990
Fullt verð: 29.990
ASTRO hægindastóll, Dökkgrár, kakí,
appelsínugulur og dökkrauður.
Verð: 59.990. Tilboðsverð: 49.990.
ASTRO
NÝTT
Í HÖLLINNI
Þeir Kjartan Þórisson, Hörður Guð-
mundsson og Kristján Ingi Geirsson
mynda teymið Study Cake. Það var
valið af Start-up Reykjavík sem eitt
tíu sprotafyrirtækja í árlegan sprota-
hraðal Arion banka og Klaks Innovit.
Strákarnir eru allir nýútskrifaðir
úr menntaskóla en þeir telja mörgu
ábótavant hvað heimavinnuna varðar.
„Við erum allir nýútskrifaðir og
höfum lengi talað um mikla galla
í núverandi menntakerfi, sama
hvort það er hér heima á Íslandi eða
erlendis. Okkur langaði að leggja
okkar af mörkum og smáforritið
Study Cake er fyrsta skrefið í áttina
að því,“ segir Kjartan. Þeir Hörður
stunduðu nám við Verzlunarskólann
en Kristján var í Tækniskólanum.
„Okkur langaði að leikjavæða
heimavinnuna og gera hana meira
spennandi. Þessu eiga nemendur og
kennarar eftir að hagnast á. Það verð-
ur líkt því sem nemendur þekkja nú
þegar í símaleikjum. Þeir sem spila fá
stig fyrir að svara rétt og svokallaðar
heilasellur fyrir að klára verkefnið,
sem eru síðan notaðar til þess að gera
heimavinnuna auðveldari í framtíð-
inni. Kennarinn fær upplýsingar um
svör nemenda sinna og sér auðveld-
lega hvaða nemendur eru eftir á og
gætu jafnvel þurft meiri hjálp. “
Strákarnir áætla að gefa út lokað-
an prufuaðgang fyrir íslenska kenn-
ara í næstu viku en í framtíðinni ætla
þeir að reyna fyrir sér utan landstein-
anna og leyfa erlendum kennurum að
prufukeyra smáforritið. Þeir hafa nú
þegar fengið sína fyrstu fjárfestingu
frá Arion banka og hafa skrifað undir
árssamning við KPMG. - gj
Heimanámið ætti að verða leikur einn
Þrír ungir menn hafa þróað smáforrit til þess að leikjavæða heimanám barna. Stefna á erlendan markað.
STUDY CAKE Kristján Ingi, Kjartan og
Hörður ætla sér stóra hluti.
MYND/START UP REYKJAVÍK
Litagleðinni virðast engar hömlur settar en nú má sjá hár íslenskra kvenna í
öllum regnbogans litum. Fréttablaðið tók snúning á trendinu og fékk nokkr-
ar hárprúðar til að veita innsýn í litríku kollana, og virðast þær litaglöðu
alls óhræddar við að prófa sig áfram heima við með dyggri aðstoð frá hug-
myndabankanum Pinterest. gudrun@frettabladid.is / gydaloa@frettabladid.is
Litagleði regnbogans
endurspegluð í hárinu
ALLIR REGNBOGANS LITIR
„Ég er búin að vera með alla regn-
bogans liti og hef líka verið með alla
regnbogans liti í öllu hárinu á sama
tíma. Ég lita það yfirleitt bara sjálf en
fer á stofu ef ég þarf að aflita á milli,“
segir Helga Lilja sem segist finna fyrir
auknum vinsældum þess að vera með
litað hár í hressandi litum og segir að
hún hafi sérstaklega tekið eftir pastel-
litunum. Síðast var hún með blátt hár
og er núna að velta því fyrir sér hvernig
hún á að lita hárið næst. „Ég er að spá
í hvort ég eigi að lita það fjólublátt eða
hvernig það á að vera næst.“
LEIÐ Á AÐ VERA BASIC
„Það er eiginlega ár síðan ég litaði hárið
mitt fyrst og þá litaði ég það bleikt,“
segir Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir
sem skartar núna fjólubláum lokkum.
„Ég fékk leið á að vera alltaf ljóshærð
og basic og við systir mín keyptum liti á
netinu.“ Hún litar hárið sjálft og hefur
einnig verið með túrkísblátt hár. Næst
á dagskrá er að lita hárið silfur. „Ég hef
eiginlega sett algjört bann á grænan
og appelsínugulan en það fer bara eftir
smekknum,“ segir hún og hlær.
LANGAÐI AÐ PRÓFA EITTHVAÐ NÝTT
„Ég byrjaði að lita mig í janúar og er
búin að halda þessu við síðan,“ segir
Tinna Sigurðardóttir en hún er með
djúpfjólubláa lokka og hvítt litað hár
efst. Hún segist hafa fengið mikið af
jákvæðum viðbrögðum frá fólki yfir
hárinu, frá ungum jafnt sem öldnum.
Hárið litar hún á stofu og er mjög
ánægð með litinn í hárinu. „Mig
langaði til að prófa eitthvað nýtt og
fór inn á Pinterest. Ég ætlaði fyrst að
fá mér pastelljósfjólublátt,“ segir hún
en hárgreiðslukonan kynnti hana fyrir
þessum lit og hún varð stórhrifin. „Mér
fannst hann svo flottur og það eru allir
svo hrifnir af þessu lit þannig ég ákvað
bara að halda honum svona.“
BÚIN AÐ GLEYMA
NÁTTÚRULEGA
LITNUM „Ég man varla
hvernig hárið á mér
er á litinn, sennilega
eitthvað í líkingu
við þennan íslenska
músagráa,“ segir hin
franska Catherine
Côté, sem hefur litað
á sér hárið oftar en
hún gæti talið. „Ég
myndi segja að ég liti
það á mánaðarfresti,
og hef gert undan-
farin tíu ár,“ útskýrir
Catherine. „Ég byrjaði
að lita það þegar ég
var þrettán, en fékk
þá bara að setja smá
liti í endana,“ segir
Catherine. Hún segist
sennilega hafa prófað
flestar tegundir hárlita
og geta iðulega ráðlagt
vinkonum sínum. „Ég
á samt eftir að prófa
að vera með rautt hár,
og brúnt,“ segir hún og
skellir upp úr.
„Ég hlusta mikið á Drake að staðaldri, hlusta
mikið á nýjustu lögin hans. Upp á síðkastið
hef ég líka hlustað mikið á lagið Liquor með
Chris Brown og R.I.C.O. með Meek Mill og
Drake. Ég get eiginlega ekki gert upp á milli
þeirra, bæði góð á mánudegi.“
Kristófer Acox, landsliðsmaður
í körfuknattleik.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
1
-A
7
8
C
1
7
5
1
-A
6
5
0
1
7
5
1
-A
5
1
4
1
7
5
1
-A
3
D
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K