Fréttablaðið - 13.07.2015, Side 15

Fréttablaðið - 13.07.2015, Side 15
VALDIMAR OG STELLA Samhent í fjársjóðsleitinni. Stella Vestmann og Valdimar Gunnar Hjartarson stækkuðu við sig fyrir ári og fluttu í rúmbetri íbúð með bílskúr. Þar með var komið pláss fyrir aðal- áhugamálið, sem er að gera upp húsgögn. „Við höfum alltaf verið að dútla við að gera upp hluti og húsgögn en mest fyrir okkur sjálf því við vorum ekki með neitt pláss til að standa í svona vinnu. Svo þeg- ar við fluttum í stærra húsnæði vantaði okkur hús- gögn og höfðum tækifæri til að prófa okkur áfram án þess að vera endilega viss um hvað við ætluðum að gera við hlutinn. Sumu höldum við en annað höfum við selt áfram og þannig höfum við getað fjármagn- að tækjakaup svo við getum lagt í fleiri og flóknari verkefni,“ segir Stella og bætir því við að þau skipti þannig með sér verkum að hún velji og ákveði hvað skuli gera en Valdimar sjái um framkvæmdahliðina. FJÁRSJÓÐSLEITARI „Valdi hefur alltaf haft gaman af smíðavinnu og handverki og ég er meira í því að finna húsgögnin og hafa skoðun á því hvað er hægt að gera fyrir þau.“ Stella hefur haft áhuga á því að gera upp hús- gögn síðan hún var unglingur. „Ég hef stundað markaði frá því ég bjó í Brussel þegar ég var sextán ára og byrjaði fljótt að safna í búið. Eins og ég elska IKEA þá finnst mér samt skipta máli að hafa sér- staka og einstaka hluti í kringum mig og svo er enn þá skemmtilegra þegar maður hefur sjálfur lagt vinnu í þá og gert að sínum. Svo er ég líka fjársjóðs- leitari og safnari í mér og finnst gaman að sjá mögu- leikana í hlutum sem einhver annar hefur kannski hent. FJÁRSJÓÐIR BAK VIÐ MÁLNINGU LAGHENT Stella Vestmann og Valdimar Gunnar Hjartarson stækkuðu við sig fyrir ári og fluttu í rúmbetri íbúð – með bílskúr. Þar með var komið pláss fyrir aðaláhugamálið, en það er að gera upp húsgögn. SKEMMTILEGT LEIKFANGASAFN Í Hafnarfirði er skemmtilegt leikfangasafn á efstu hæð Pakkhússins sem er sérstaklega ætlað börnum. Munum er reglulega skipt út en safnið á mikið af dýrgripum sem gaman er að skoða. Pakkhúsið er við hlið elsta húss Hafnarfjarðar, Sívertsens, við Strandgötu. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 2 -0 A 4 C 1 7 5 2 -0 9 1 0 1 7 5 2 -0 7 D 4 1 7 5 2 -0 6 9 8 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.