Fréttablaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 8
Ísland Noregur England/Wales
BOSCH
Spanhelluborð
PIE 645F17E
Með stálramma.
Fullt verð: 99.900 kr.
Jólaverð:
79.900 kr.
BOSCH
Bakstursofn
HBA 74R252E
Orkuflokkur A.
Átta ofnaðgerðir.
Brennslusjálfhreinsun.
Fullt verð: 139.900 kr.
Jólaverð:
99.900 kr.
BOSCH
Þurrkari
WTW 86197SN
Tekur mest 7 kg.
Orkuflokkur A++.
Sjálfhreinsandi
rakaþéttir.
Með íslensku
stjórnborði.
Fullt verð: 139.900 kr.
Jólaverð:
99.900 kr.
Glæsileg Bosch heimilistæki á jólaverði.
Jólabæklingurinn er kominn út. Sjá nánar á bosch.is.
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Hlíðasmára 3 . Sími 520 3090
www.bosch.is
BOSCH
Þvottavél
WAP 28397SN
Tekur mest 7 kg.
Orkuflokkur A+++.
Kolalaus, hljóðlátur
mótor með 10
ára ábyrgð.
Með íslensku
stjórnborði.
Fullt verð: 139.900 kr.
Jólaverð:
99.900 kr.
Óvopnuð lögregla
Danmörk Svíþjóð
Vopnuð lögregla
Bandaríkin
✿ Vopnuð lögregla og dánartíðni 1996-2006
0,13
LögregLumáL „Íslenska lögreglan er
ekki að vopnast. Þetta er bara spurn-
ing um aðgengi,“ segir Eyþór Víðisson
löggæslufræðingur þegar hann er
beðinn um álit á þeirri breytingu að
skammbyssur verði í læstum hólfum
í sex lögreglubílum.
Eyþór segir lögregluna í langflestum
löndum vopnaða og þróunin sé í þá
átt. Þetta skref íslensku lögreglunnar
sé lítið en þetta sé bara fyrsta skrefið.
„Þróun á lögum og vinnuvernd
hefur aukið ábyrgð vinnuveitenda.
Vinnuveitendur eiga að gera allt til
að tryggja öryggi starfsmanna sinna.
Aukið aðgengi að vopnum snýst að
miklum hluta til um öryggi lögreglu-
manna. Að vera lögreglumaður er bara
starf, fólk gleymir því.“
Eyþór bendir á að lögreglan sé í
erfiðustu aðstæðum sem koma upp.
Á meðan almenningur hlaupi burt frá
hættu, hlaupi lögreglan að henni.
„Hvernig ætlum við að réttlæta það
ef manneskja með átta haglabyssur
byrjar að skjóta í Kringlunni að lög-
reglan geti ekki gert neitt? Hvernig
á lögreglustjóri að horfa framan í
almenning daginn eftir? Nei, við
gátum ekkert gert því við vorum
hrædd við virka í athugasemdum. Það
svar er ekki í boði.“
Eyþór viðurkennir að vissulega séu
vopn dregin oftar upp og fleiri falli
þegar lögreglan er vopnuð.
„En við verðum líka að spyrja okkur
hversu mörgum skotárásum lögreglan
Telur vopnaburð hluta af vinnuvernd
Löggæslufræðingur segir skammbyssur í lögreglubílum snúast um vinnuvernd og eðlisfræði. Tryggja þurfi öryggi lögreglumanna og að
eingöngu byssur geti mætt byssum. Það sé ekki í boði að gera ekki neitt vegna þess að lögreglan sé hrædd við virka í „athugasemdum“.
23
slysaskot
þegar norska
lögreglan
vopnaðist
Hvernig ætlum við að
réttlæta það ef mann-
eskja með átta haglabyssur byrjar
að skjóta í Kringlunni að lög-
reglan hafi ekki getað gert neitt?
Næstu ár verða fréttir af fleiri
bílum með byssur. Síðan af
löggu að halda á byssu og löggu að
skjóta sig í fótinn. Og það verða læti og
dramatík.
Heimild: Rannsókn dönsku lögreglunnar á árunum 1996-
2006 og heimasíður ríkislögreglunnar í hverju landi.
miðað við
milljón íbúa
0,04
Fjöldi
látinna
11
miðað við
milljón íbúa
0,19
↓
Undanfarið ár hefur norska lögreglan verið vopnuð vegna
hryðjuverkaógnar. Á þessu eina ári hafa orðið 23 slysa-
skot. Ekki hafa orðið alvarleg slys á fólki. Yfirleitt hafa skotin
hlaupið af þegar gengið er frá byssunum, þær tæmdar eða
við æfingar. Lögreglan verður vopnuð til 10. desember en þá
verður staðan tekin. Umræða hefur verið um að vopna lög-
regluna til frambúðar.
Fjöldi látinna
10.000*
miðað við milljón íbúa
35,5
Fjöldi
látinna
13
miðað við
milljón íbúa
Skammbyssur verða í sex lögreglubílum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fréttablaðið/SteFán
Fjöldi
látinna
3
Meirihluti lögreglumanna er
óvopnaður. Hluti lögreglumanna
hefur aðgang að vopnum.
miðað við
milljón íbúa
0
Fjöldi
látinna
0
miðað við
milljón íbúa
Fjöldi
látinna
3 0,06
Sjálfvirkar byssur geymdar
í læstu hólfi í bílum.
Aðeins einu sinni frá stofnun
lýðveldisins hefur íslensk lögregla
banað manni. Það gerðist árið 2013
í skotárás í Árbænum.
*skv. úttekt Los Angeles Daily News, apríl 2015.
Vinnuvernd lögreglu-
manna óviðunandi
Fréttablaðið hefur fjallað ítarlega
um starfsaðstæður lögreglunnar.
Vinnueftirlit ríkisins hefur á skrá
tæplega 400 vinnuslys hjá lög-
reglumönnum á fjögurra ára tíma-
bili. Vinnueftirlitið hefur frá hruni
endurtekið beint því til Stjórnar-
ráðsins að gera átak í vinnuvernd
en fálega hefur verið tekið í erindi
þess.
Eyþór Víðisson
löggæslufræðingur
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@365.is
afstýrir með því að vera vopnuð. Eða
hversu margir hætta við að fremja
glæp því löggan er vopnuð. Þetta eru
upplýsingar sem við fáum ekki fram.“
Lögreglan er búin kylfum og pipar-
spreyi. Einnig hefur verið umræða
um rafmagnsbyssur. „Maður stoppar
ekki brjálaða manneskju með þessum
vopnum. Þegar allt kemur til alls er
þetta einföld eðlisfræði. Maður mætir
byssu með byssu og það er óviðunandi
að lögreglan hafi ekki bestu tólin til að
takast á við slíkar aðstæður.“
Eyþór segist vita að þetta hljómi
ofbeldisfullt og ógnvekjandi en bendir
á að byssur hafi verið til í þrjú hundruð
ár og það sé veruleiki lögreglumanna.
„Um sextíu þúsund byssur eru
skráðar á Íslandi. Ekki skammbyssur,
en haglabyssur og rifflar. Næstu ár
verða fréttir af fleiri bílum með byssur.
Síðan af löggu að halda á byssu og
löggu að skjóta sig í fótinn. Og það
verða læti og dramatík. En það er
eðlilegt að það taki almenning tíma
að venjast þessu.“
2 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K u d A g u r8 F r é t t I r ∙ F r é t t A b L A Ð I Ð
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
4
9
-4
4
F
8
1
7
4
9
-4
3
B
C
1
7
4
9
-4
2
8
0
1
7
4
9
-4
1
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
1
2
_
2
0
1
5
C
M
Y
K