Fréttablaðið - 02.12.2015, Side 38

Fréttablaðið - 02.12.2015, Side 38
Bækur Litlar byltingar – draumar um betri daga ★★★★★ Kristín Helga Gunnarsdóttir Mál og menning Eitt af því mikilvæga sem það að halda svona vel og rækilega upp á hundrað ára kosningaafmæli kvenna í ár leiddi af sér er áhugi og vakning um kvenna sögu og kvenna- sögur. Hundruð ef ekki þúsundir hafa hlýtt á konur segja sögur amma sinna á fyrirlestrum á vegum Rannsóknarstofnunar í jafn- réttisfræðum við Háskóla Íslands en markmiðið með fyrirlestraröðinni var að segja sögur kvenna sem lifðu þann tíma þegar nútíminn hóf innreið sína á Íslandi og varpa ljósi á framlag þeirra, stöðu og aðstæður. Í framhaldinu fór Þjóðminjasafnið að safna ömmu- sögum og Landsbókasafnið safnar nú bréfum, dagbókum og fleiru eftir konur til að bæta í rýran kost, þar sem efni eftir konur var þar að auki flokkað undir nöfnum eiginmanna þeirra og því erfitt að finna það við venjulega gagnaleit. Konur gera einnig gangskör að skrásetningu sögu kvenna í mynd- rænu formi, og má sem dæmi nefna sjónvarpsþættina Öldin hennar og heimildarmyndir Höllu Kristínar Ein- arsdóttur um rauðsokkahreyfinguna og kvennaframboðin og mynd Ölmu Ómarsdóttur um stúlkurnar á Klepp- járnsreykjum sem báðar voru frumsýndar á þessu ári. Og kvennasagan er enn að gerast, í ár hafa konur líka staðið fyrir stórum og mikilvægum byltingum sem fólust meðal annars í því að segja sögur sem allt of lengi hafa legið í þagnargildi undir merkinu #þöggun. Kvenna- sagan og kvennasögur eru því bæði í mótun og skrásetningu á þessu ári sem aldrei fyrr. Sagan Litlar byltingar eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur smell- passar í þessa kvennasögugósentíð. Þó sögurnar séu skáldskapur byggja þær á sögum raunverulegra kvenna sem höf- undur nýtir sér til að segja kvennasögu tuttugustu aldar. Í bókinni eru sögur tíu kvenna fléttaðar saman í eina heild, sögusviðið spannar allt frá torfbæ til skemmtisnekkju á Miðjarðarhafinu, með viðkomu í Reykjavík í mótun, bóhemhverfum Kaupmannahafnar og glæsivillum vestanhafs. Söguhetjurnar eru alþýðukonur sem hver á sínu tíma- bili og sinn hátt eiga það sameiginlegt að hafa kjark til að breyta lífi sínu og þeim römmum sem þeim eru settir og við fáum að vera á staðnum á þeim stundum þegar líf þeirra krefst þessara byltinga. Kristín Helga er frábær sögumaður, eins og allir krakkar á Íslandi og þeir sem lesa fyrir þau vita. Í þessari bók fá fullorðnir að njóta þess á sínum forsendum, sagan er feiknavel fléttuð og þessar tíu sögur sem flakka ólínu- lega milli tímabila byggja þannig heil- steypta frásögn sem heillar lesandann upp úr skónum á fyrstu síðu og allt til enda. Mér finnst Litlar byltingar vera sagan mín og ég er viss um að margar konur upplifa slíkt hið sama. Þetta eru sögurnar af konunum í ættinni sem við heyrðum þegar við földum okkur undir borði í saumaklúbbum hjá mömmum okkar og ömmum, við eldhúsborðið þegar frænkur komu í heimsókn, sögurnar sem við byggðum okkar sjálfsmynd að einhverju leyti á, sögurnar um það sem við máttum eiga von á í lífinu og það sem við gætum stefnt á að verða. Sagan okkar. Brynhildur Björnsdóttir Samantekt: Feiknavel skrifuð saga kvenna á tuttugustu öld og fram á þá tuttugustu og fyrstu, mikilvægt innlegg í kvennasögu, bæði skemmtileg og fróðleg. Litlar byltingar og stórar LeikhúS Þetta er grín, án djóks ★★★★★ Leikfélag akureyrar í samstarfi við menningarhúsið hof Sýnt í Hörpu Höfundar: Halldór Laxness Halldórs- son og Saga Garðarsdóttir Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson Leikarar: Halldór Laxness Halldórs- son, Saga Garðarsdóttir og Benedikt Karl Gröndal Leikmynd og búningar: Magnea Guð- mundsdóttir Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson Tónlist: Snorri Helgason Hljóðmynd: Einar Karl Valmundsson Neðsta hæð Eldborgar í Hörpu var þéttsetin síðastliðinn laugardag, áhorfendur hljóta að hafa talið tæplega átta hundruð. Tilefnið var Þetta er grín, án djóks í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar í samstarfi við Menningarhúsið Hof með Halldóri Laxness Halldórssyni og Sögu Garð- arsdóttur í aðalhlutverkum. Í stuttu máli fjallar verkið um parið Dóra og Sögu sem takast á við tilhugalífið, til- gang grínsins og viðbrögð samfélags- ins við óhefluðum húmor. Halldór Laxness Halldórsson hefur einstaka sviðsframkomu og spyrja má hvort hann ætti ekki að spreyta sig oftar í leikritum. Radd- og líkamsbeiting hans er í háklassa, eftir- hermurnar hans eru bráðfyndnar og tímasetningin hans flott. Samleikur hans og Sögu Garðarsdóttur er fínn og tímasetningar hennar sömu- leiðis góðar. Hún kemst alveg á flug í flottu atriði þar sem klámfenginn og mögulega óviðeigandi brandari um Andabæ er til umræðu. Benedikt Karl Gröndal leikur mis- heppnaða, taugastrekkta og vanhæfa umboðsmann parsins. Karakterinn hans er fram settur sem mótvægi fyrir parið en spyrja má hvort honum sé ofaukið þrátt fyrir góða gríntakta frá Benedikt. Margir þjóðþekktir einstaklingar fá rækilega á baukinn sem vekur mikla kæti. Saga setur fram einstak- lega fyndnar getgátur um ímynd- unaraflið, fyrrverandi ráðherra og lekamálið, sem á eftir að sitja lengi í minninu. Hugmyndirnar um tilgang og ritskoðun gríns eru mjög athyglis- verðar og mikilvægar í nútímasam- félagi. Leikstjórn Jón Páls Eyjólfssonar er einnig áhugaverð en parið brýtur fjórða vegginn stöðugt þannig að uppistands- og leikritaformið bland- ast ágætlega saman. Vandamálið liggur þá helst í ramma sýningarinnar. Þrátt fyrir góða spretti þá missir sýningin oft kraft á milli atriða. Hún hefði mátt vera markvissari. Að lokum fjarar sýningin eiginlega út, mörg atriði gera það líka, og er jafnvel aðeins of löng þó að hún sé aldrei þreytandi. En eftir hlé á Halldór fyndnustu innkomu sem sést hefur á þessu leik- ári. Ómögulegt er að segja frá henni án þess eyðileggja augnablikið en Halldór, í ógleymanlegum búningi með gerviyfirvaraskegg, gjörsamlega negldi atriðið þannig að áhorfendur gátu lítið annað gert heldur en að emja úr hlátri og taka andköf í senn. Algjörlega óviðeigandi og algjör- lega ómótstæðileg þar sem andi Mel Brooks sveif yfir salnum. Bæði leikmynd og búningar eru í höndum Magneu Guðmundsdóttur en ekki er hægt að segja að þetta hafi verið sérstaklega vel heppnað. Bak- veggurinn er málaður eins og íþrótta- völlur og íþróttaþema áberandi. Þó að brekkan virki vel fyrir innkomur þá rímar sviðsmyndin ekki nægilega vel við innihaldið. Ekki búningarnir held- ur sem saman standa af furðulegum samsetningum og parið eyðir miklum tíma á nærfötunum. Aftur á móti voru dýragrímurnar vel heppnaðar og skemmtilega notaðar. Lítið fór fyrir tónlist Snorra Helgasonar. Fyrir heitin um nýjar útgáfur af gömlum grínlögum hurfu í lágstemmd stef sem hljómuðu í bakgrunninum og á milli atriða. Halldór og Saga dansa viljandi á siðgæðismörkunum, stíga yfir þau, draga í land og njóta þess í botn. Áhorfendur einnig. Hlátrasköllin voru fjölmörg en sýningin líður fyrir ómarkvisst handrit og óskýra svið- setningu. Sigríður Jónsdóttir niðurStaða: Þrátt fyrir óborganleg atriði, og góðar hugmyndir, þá vantar herslumuninn. Gott grín um spaug og FréTTaBLaðið/auðunn níeLSSon Nýtt NÚ Í HEIMILISP AKKNINGU PI PA R\ TB W A - SÍ A tjáningarfrelsið 2 . d e S e m B e r 2 0 1 5 m i ð V i k u d a G u r22 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð menning 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 4 9 -2 2 6 8 1 7 4 9 -2 1 2 C 1 7 4 9 -1 F F 0 1 7 4 9 -1 E B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.