Fréttablaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 14
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Óli Kristján
Ármannsson
olikr@frettabladid.is
Ég á vin sem heitir Eric O’Brien. Faðir hans er írskur, móðir hans er frönsk og er hann alinn upp í Dublin á áttunda og níunda áratug síðustu
aldar. Alinn upp við reglulegar fréttir af dauðsföllum
samlanda sinna og nágranna, hvort sem það voru Írar,
Norður-Írar eða Englendingar. Ég kynntist Eric 1997
þegar ég var í spænskunámi í Málaga á suðurströnd
Spánar. Okkur varð um leið vel til vina. Einn daginn
vaknaði ég í bjarta sólskini og settist út á verönd. Þar
sat Eric í skugga með tárin í augunum og ég spurði
hann hvað amaði að. „There will be peace,“ sagði hann
og hafði þá nýverið fengið símtal frá móður sinni
sem tjáði honum að þennan dag, 19. júlí 1997, lýstu
stríðandi fylkingar yfir vopnahléi og tæplega ári síðar,
eða 10. apríl 1998, var skrifað undir friðarsamkomulag
sem Sinn Fein staðfesti mánuði síðar, þann 10. maí.
Tárin sem runnu niður vanga vinar míns voru
blönduð sorg og gleði. Við sem vorum í kringum hann
þennan dag, öll af mismunandi þjóðernum, fundum
líka fyrir því að það var eins og ósýnilegri byrði væri
lyft af okkur. Við vorum ekki nema átján ára en ég held
að hvert og eitt okkar hafi uppgötvað einn af grunn-
sannleikum lífsins: að við erum öll í þessu saman.
Nú átján árum síðar var ráðist á París, uppeldisborg
móður Erics O’Brien, og hugur minn hefur skiljanlega
verið hjá honum síðustu daga og hjá aðstandendum
hinna föllnu. Ég vona að þessir atburðir verði ekki til
þess að sundrung aukist, hin fordómafullu fái sterkari
rödd og hin valdasjúku herði tökin. Það er því miður
lítið, hrætt fólk þarna úti sem hugsar sér gott til glóðar-
innar þegar atburðir sem þessir gerast. Hrægammar
sem nýta sér ástandið og ala á ótta til að ná fram mark-
miðum sínum. Vopnaframleiðendur glotta. Aukin
vopnavæðing lögreglunnar, til dæmis, gæti hæglega
komið í kjölfarið á þessu ef við gætum okkar ekki.
Umburðarlyndi má ekki verða fórnarlamb öfga-
manna. Ég vona að við höldum áfram að vera
umburðarlynd gagnvart náunganum, gagnvart ólíkum
trúarbrögðum, gagnvart þeim sem minna mega sín og
gagnvart þeim sem neydd eru til þess að flýja stríðs-
hrjáð lönd eins og Sýrland. Það má ekki gerast að við
verðum óttanum að bráð.
Sterkari saman
Baldur V. Karls-
son
verkefnastjóri á
öryggis- og rétt-
argeðþjónustu,
Kleppi
Ég vona að
þessir
atburðir
verði ekki til
þess að
sundrung
aukist, hin
fordómafullu
fái sterkari
rödd og hin
valdasjúku
herði tökin.
Full af frábærum
uppskriftum!
Berglind Sigmars
- Heilsuréttir ölskyldunnar
og GOTT, veitingastaður
HOLLAR OG HEILLANDI
bokafelagid.is
Fagleg þjónusta Landspítalans, lækningar, hjúkrun, endurhæfing og rannsóknir byggjast á að fjárveitingar dugi fyrir því hlut-verki sem spítalanum er ætlað að gegna. Á þetta er minnt í yfirlýsingu sem læknaráð og hjúkrunarráð spítalans sendu frá sér í gær. Þá
er áréttað að hlutverk Alþingis og sérstaklega fjárlaga-
nefndar sé að tryggja að tekjustofnar ríkisins dugi fyrir
sameiginlegri grunnþörf og þjónustu samfélagsins.
Yfirlýsingin kemur ekki úr einhverju tómarúmi
heldur í kjölfar umræðu um viðbrögð forystu fjárlaga-
nefndar við kalli Landspítalans um aukið fjármagn. Á
fundi nefndarinnar fyrir helgi sagði formaður nefndar-
innar hana vera undir miklum þrýstingi frá Landspítal-
anum en hún léti ekki undan andlegu ofbeldi.
Orðaval formannsins er vissulega óheppilegt,
en mætti svo sem skrifa á klaufaskap og fljótfærni í
framsetningu. Líklegast les Páll Matthíasson, forstjóri
spítalans, þó rétt í spilin, þegar hann í fréttum um
helgina sagðist undrast viðhorf fulltrúa ríkisstjórnar-
innar í fjárlaganefnd en þeir virtust líta á spítalann sem
botnlaust gímald sem stöðugt væli um meiri peninga.
Mat Páls er að spítalann vanti tvo og hálfan til þrjá
milljarða til viðbótar á næsta ári. Vissulega hafi verið
bætt í framlög, en það komi eftir vanáætlun til áratuga
og tíma taki að leiðrétta hallann til að ná yfirlýstum
markmiðum stjórnvalda um að útgjöld til heilbrigðis-
mála nái meðaltali Norðurlandanna.
Læknaráð og hjúkrunarráð benda á að fjárveitingar til
innviða heilbrigðisþjónustunnar hér á landi (til endur-
nýjunar og viðhalds á húsnæði, tækjakaupa og framþró-
unar) hafi undanfarin ár verið með því allra lægsta sem
um getur í OECD-löndum. Þau verji að meðaltali til
þessa 0,5 prósentum af vergri landsframleiðslu, sem hér
myndi samsvara 10 milljörðum á ári hverju.
„Ef miðað er við Norðurlöndin, til dæmis Danmörku,
væru um 14 milljarðar eyrnamerktir þessum lið,“ segir í
ályktuninni.
Íslensk stjórnvöld hafi hins vegar varið sem svarar
0,1 prósenti af vergri landsframleiðslu í fjárfestingar í
innviðum heilbrigðisþjónustunnar, sem er þá líklega
nálægt tveimur milljörðum króna, og séu þar í næst
neðsta sæti OECD-landanna. Það er ekki góður staður
og óþægilega oft sem Ísland lendir orðið í slóðasæti
þegar kemur að samanburði við önnur lönd.
Læknaráð og hjúkrunarráð Landspítalans segjast
leggja traust sitt á að nefndarmenn í fjárlaganefnd og
Alþingi allt hlutist til um að fjárveitingar komandi árs
tryggi að hægt sé að reka spítalann í samræmi við þær
kröfur og hlutverk sem honum er ætlað. Undir það
má taka og sé eitthvað að marka yfirlýst markmið um
hvernig staðið skuli að útgjöldum til heilbrigðismála
hér má væntanlega ætla að kveða taki við nýjan tón hjá
forystu fjárlaganefndar.
Eftirbátar
í samanburði
Orðaval
formanns
nefndarinnar
á fundinum
er vissulega
óheppilegt, en
mætti svo sem
með góðum
vilja skrifa á
klaufaskap
og fljótfærni í
framsetningu.
Óheppileg ummæli
Ummæli Þóru Tómasdóttur,
verðandi ritstjóra á Fréttatím-
anum, um Ólaf Ragnar Gríms-
son, forseta Íslands, hafa fallið í
grýttan jarðveg víða. Þóra, sem
virðist ekki ýkja hrifin af Ólafi
Ragnari Grímssyni í embætti,
kallaði hann „karl á sjötugsaldri“
í viðtali á Eyjunni á Stöð 2 á
sunnudaginn. Blaðamaðurinn
Trausti Hafliðason segir á fés-
bókarsíðu sinni að þetta sé
hugsanlega það besta sem hafi
komið fyrir Ólaf Ragnar. Nú sitji
forsetinn bara heima, slakur að
horfa á Wallander, á meðan ótrú-
legasta fólk verji málstað hans
með kjafti og klóm.
Öfug áhrif
Og sé það svo að Ólafur Ragnar
ætli að gefa kost á sér í fjögur ár í
viðbót, þá skyldu þeir, sem hafa
eitthvað við áframhaldandi setu
hans í embætti að athuga, vara
sig á því hvað þeir segja um hann
opinberlega. Menn skyldu minn-
ast þess að þegar Ólafur Ragnar
bauð sig fram til forseta árið 1996
voru birtar níðauglýsingar um
hann í fjölmiðlum. Í þeim auglýs-
ingum var meðal annars fundið
að ummælum sem forsetinn lét
falla um einræðisherrann Nicolae
CeauseȘcu eftir fund þeirra árið
1984. Auglýsingarnar virkuðu
ekki sem skyldi fyrir þá sem að
þeim stóðu. Þvert á móti er jafnan
talið að þær hafi fremur fært for-
setanum aukið fylgi óákveðinna
kjósenda. jonhakon@frettabladid.is
2 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K U d A G U r14 s K o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
4
9
-2
C
4
8
1
7
4
9
-2
B
0
C
1
7
4
9
-2
9
D
0
1
7
4
9
-2
8
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
_
1
2
_
2
0
1
5
C
M
Y
K