Fréttablaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 18
Skjóðan markaðurinn Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301 Umsjón Jón Hákon Halldórsson jonhakon@365.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir | Forsíðumynd andri Marinó Karlsson Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is miðvikudagur 2. desember ÞJóðsKrá Íslands - Fasteignamarkað- urinn í mánuðinum eftir landshlutum. Föstudagur 3. desember Hagstofa Íslands - Gistinætur og gestakomur á hótelum í október. Hagstofa Íslands - Vöruskipti við útlönd í nóvember 2015. lánaMál rÍKisins- Útboð ríkisbréfa. mánudagur 7. desember ÞJóðsKrá Íslands - Íslyklar og inn- skráningarþjónusta Ísland.is. Þriðjudagur 8. desember Hagstofa Íslands - Landsframleiðsla á þriðja ársfjórðungi 2015. ÞJóðsKrá Íslands - Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðahúsnæði eftir landshlutum. miðvikudagur 9. desember seðlabanKi Íslands - Vaxtaákvörð- unardagur. lánaMál rÍKisins - Mánaðarlega markaðsupplýsingar í desember. Fimmtudagur 10. desember Hagstofa Íslands - Efnahagslegar skammtímatölur í desember. dagatal viðskiptalífsinsÁ döfinni allar markaðsupplýsingar Vikan sem leið saMKeppniseftirlitið hefur sýnt fram á að fákeppni á eldsneytis- markaði kostar íslenska neyt- endur 4-4,5 milljarða á ári hverju. Íslenski eldsneytismarkaðurinn er kennslubókardæmi um fákeppnis- markað, en eitt einkenni fákeppni er að fyrirtæki velta kostnaði yfir á viðskiptavini þar sem engin þörf er á að halda honum í lágmarki til að standast samkeppni. eldsneytisMarKaðurinn er ekki eini fákeppnismarkaðurinn hér á landi. Bankamarkaðurinn er fákeppnismarkaður. Enda snýst markaðsstarf banka helst um ímyndarauglýsingar fremur en að keppt sé um að bjóða viðskipta- vinum hagstæðust kjör hverju sinni. saMKeppniseftirlitið hefur hingað til látið sig fákeppni á bankamarkaði litlu varða. Ný- fundinn áhugi á eldsneytismark- aði er vonandi vísbending um að nú verði skorin upp herör gegn fá- keppni hvar sem hana er að finna enda fátt sem skaðar neytendur og hagkerfið í heild sinni meira en fákeppni með því beina og óbeina samráði milli aðila á markaði sem er órjúfanlegur hluti hennar. VirK saMKeppni er lykill að hag- sæld samfélaga. Velmegun er tak- mörkuð auðlind, sem verður ekki dreift til fjöldans nema með því að löggjafinn og eftirlitsaðilar tryggi virka samkeppni og grípi til mark- vissra ráðstafana gegn fákeppni og samráði sterkra aðila á markaði. ÍslensKur sjávarútvegur er dæmi um atvinnugrein sem býr við sam- þjöppun og samkeppnisskekkju sem bitnar ekki aðeins á neyt- endum heldur skerðir útflutnings- tekjur þjóðarinnar. ÍslensKur sjávarútvegur skiptist í þrennt. Klassískar íslenskar útgerðir einbeita sér að veiðum á bolfiski og selja gjarnan á mark- aði. Fiskframleiðendur kaupa sinn fisk á fiskmarkaði. Svo er það stórútgerðin, sem gín yfir öllu. Stórútgerðin á þorra kvótans bæði í bolfiski og uppsjávarstofnum. stórÚtgerðin veiðir aflann og flytur hann til eigin vinnslu á sér- stöku verði sem er að jafnaði langt undir markaðsverði. Útgerðin situr sjálf við borðið þar sem af- sláttarverðið er ákvarðað. Síðan keppir stórútgerðin á erlendum mörkuðum við íslenska fiskfram- leiðendur, sem kaupa sitt hráefni á markaði og búa þar af leiðandi við mun hærra hráefnisverð. stórÚtgerðin selur lítið inn á innlenda fiskmarkaði sem leiðir til þess að þeir eru skortmarkaðir þar sem seljendur ráða verðinu. Fisk- kaupmenn, sem þjóna íslenskum neytendum, kaupa sinn fisk að mestu á fiskmarkaði og því leiðir fákeppnin í sjávarútvegi til hærra verðs til íslenskra neytenda en nauðsynlegt er. ÞingMenn hafa lýst áhyggjum sínum af fákeppni á eldsneytis- markaði en hvenær skal taka á fákeppninni á bankamarkaði, sem hagnast á hverju ári um meira en heildarveltu olíufélaganna? Hve- nær kemur að því að þingmenn taki upp hanskann fyrir íslenska neytendur og leggi sitt af mörkun til hámörkunar þjóðartekna með því að útrýma samkeppnismis- munun í sjávarútvegi? Fákeppni er rauður þráður í viðskipta- og atvinnulífi Tap var af rekstri hönnunarfyrir- tækisins JÖR á árinu 2014 að fjár- hæð 43,2 milljónir króna. Tap jókst milli ára, en árið 2013 nam það 15 milljónum króna. Eignir námu 54,5 milljónum króna í lok árs og hækkuðu um tæpar þrjár milljónir milli ára. Skuldir námu 82,4 milljónum króna og hækkuðu milli ára. Í árslok var eigið fé félagsins neikvætt um 27,9 milljónir króna. Árið 2013 var það hins vegar neikvætt um 13,8 millj- ónir króna. Hlutafé félagsins var 1,3 milljónir króna í árslok 2014. Í ársbyrjun voru tveir hluthafar en í árslok voru þeir þrír. Ekki var greiddur út arður til hluthafa á árinu 2015 vegna ársins 2014. Guðmundur Jörundsson, fram- kvæmdastjóri JÖR, segir að lagt hafi verið upp með að þetta yrði svona. „Félagið óx frekar hratt og við vorum í fjármögnun árið 2014, sem við kláruðum í lok árs.“ Hann segir að árið 2015 verði rekstrarniður- staðan mjög breytt. „Við búumst við mun minna tapi en árið 2014. Árið í ár hefur farið í það að rétta okkur svolítið af og greiða niður skuldir og koma öllum ferlum betur af stað. Við erum að horfa til þess að árið 2016 verði félagið svo arðbært," segir Guðmundur. „Við erum að rétta þetta allt af, það er fókusinn í ár. Við erum að plana vöxt, bæði á netinu og erlend- is. Það eru mjög stór plön með merkið, það voru taktískir fjárfestar fengnir til að fjárfesta í félaginu og það er til að komast inn á erlenda markaði. Þegar félag er stofnað er alltaf lagt upp með það að fara út. Í svona rekstri er yfirbyggingin svo stór alveg frá byrjun, en svo stækkar hún ekki rosalega mikið. Þegar þú ert með hönnunarteymi kostar jafn mikið að hanna fyrir eina búð og þrjú hundruð," segir Guðmundur. JÖR var stofnað á árinu 2012, en rekstur hófst ekki fyrr en verslunin var opnuð í apríl 2013. Guðmundur segir að verið sé skoða það að fjölga verslunum hér á landi. saeunn@frettabladid.is Bjartsýnn á framtíðina eftir 43 milljóna tap Tap JÖR jókst milli ára. Framkvæmdastjóri félagsins segist eiga von á arðbærum rekstri árið 2016. Hann segir mikinn vöxt vera framundan hjá fyrirtækinu. Guðmundur Jörundsson segir að félagið hafi verið í fjármögnun 2014. Fréttablaðið/ValGarður Við búumst við mun minna tapi en árið 2014. Árið í ár hefur farið í það að rétta okkur svolítið af og greiða niður skuldir og koma öllum ferl- um betur af stað. Við erum að horfa til þess að árið 2016 verði félagið svo arðbært Guðmundur Jörundsson framkv. stj. Aflaverðmæti íslenskra skipa í ágúst nam tæpum 12,2 milljörðum króna samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þetta er um 3% aukning samanborið við sama mánuð í fyrra. Aflaverð- mæti botnfisks jókst um 27,3%, en verðmæti uppsjávarafla dróst saman um 24,1%. 12,2 milljarða króna aflaverðmæti Atvinnuleysi í október mældist 10,7 prósent á evrusvæðinu og hefur ekki verið lægra í þrjú ár. Atvinnuleysi var örlítið undir því sem búist var við, en gert var ráð fyrir 10,8 prósentum. At- vinnulausum fækkaði um 13 þúsund á svæðinu og nam fjöldi atvinnu- lausra 17,24 milljónum í október. 10,7 prósenta at- vinnuleysi á evrusvæðinu Mesta velta ársins var í Kauphöllinni í gær, en hún nam 48,8 milljörðum króna. Velta með skuldabréf var sú mesta á árinu og nam 48,2 milljörðum króna. Velta með hlutabréf nam 660 milljónum króna. Veltumet frá því í byrjun nóvember var slegið. 48,8 milljarða króna velta í Kauphöllinni 2 . d e s e M b e r 2 0 1 5 M i ð V i K u d a g u r2 markaðurinn 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K _ n y .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 4 9 -5 3 C 8 1 7 4 9 -5 2 8 C 1 7 4 9 -5 1 5 0 1 7 4 9 -5 0 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.