Fréttablaðið - 02.12.2015, Side 25

Fréttablaðið - 02.12.2015, Side 25
|Fólkmatur Það er orðinn fastur liður í jólaundirbúningi margra að fara í Smáralind og virða fyrir sér hin margvíslegu og skemmtilegu piparköku- hús sem borist hafa í piparkökuhúsakeppni Kötlu. Iðulega berst á þriðja tug húsa í keppnina sem haldin hefur verið í hart nær þrjátíu ár, en keppt er í tveimur flokkum, fullorðins- og barnaflokki. „Keppnin er ekki síður fyrir börn en fullorðna,“ segir Tryggvi Magnússon, forstjóri Kötlu, sem finnst skemmtilegast við keppnina að þar geti fjöl- skyldan sameinast um að föndra saman fallegt hús. „Við leggjum ekki mikið upp úr íburðarmiklum eftirlíkingum af þekktum byggingum. Mér finnst lang skemmtilegast að sjá skökk og skæld hús með fingraförum lítilla putta,“ segir hann brosandi. Það hús sem er Tryggva minnisstæðast er til dæmis hellirinn hennar Grýlu. SíðaSti Skiladagur Piparkökuhúsunum á að skila inn í Smáralind fimmtudaginn 3. desember milli kl. 17 og 20. Tryggvi segir ekki þörf á að skrá sig sérstaklega til leiks, einungis að þurfi að baka, skreyta, skemmta sér og mæta með piparkökuhúsin. Verðlaun verða vegleg að vanda. Til dæmis glæsilegir vinningar frá 66°Norð- ur, Hagkaup, Líf&List og Debenhams. Þrír dómarar munu dæma hvert hús fyrir sig en verðlaun fyrir bestu húsin verða veitt laugar- daginn 5. desember kl.15. Piparkökuhúsin verða til sýnis í Smáralind frá 3. desember til og með 17. desember. PiParkökuhúSaleikur kötlu – Skiladagur á morgun katla kynnir Piparkökuhúsaleikur Kötlu hefur verið haldinn í hátt í þrjátíu ár við góðan orðstír. Hann fer fram í Smáralind í desember líkt og undanfarin ár en síðasti skiladagur piparkökuhúsa er á morgun, fimmtudag. raSPtertan góða Botnar: 4 eggjarauður 3/4 bolli sykur 1 1/2 bolli Kötlu rasp 2 msk. brætt smjör 2 tsk. Kötlu lyftiduft 1 tsk. Kötlu vanilludropar 1/2 tsk. salt 3 msk. kalt vatn 4 eggjahvítur 2 pelar rjómi 2 bananar Þeytið vel saman eggjarauður og sykur. Setjið rasp, lyftiduft, vanillu- dropa, salt og smjör saman við og hrærið áfram um stund. Stífþeytið eggjahvítur og blandið þeim var- lega saman við. Setjið í tvö 20 cm smurð form. Bakið í u.b.b. 15 til 12 mín. við 200°C (eða þangað til botnarnir eru gylltir að ofan). Látið botnana kólna. Stífþeytið rjómann, geymið u.b.b. helminginn af honum til að skreyta hliðarnar með. Setjið hluta af rjóm- anum sem eftir er á annan botninn. Skerið banana í þunnar sneiðar og raðið ofan á rjómann. Setjið þá rjóma ofan á bananana og svo hinn botninn yfir. krem 150 g gott súkkulaði 2 msk. góð matarolía Setjið súkkulaðið og matarolíuna saman í glerskál og bræðið við lágan hita í vatnsbaði. Hellið yfir tertuna. raSPkakan Sem allir tala um uPPSkrift Kokkar og bakarar Kötlu leita fanga víða. Fyrir nokkru fundu þeir uppskrift á vefsíðunni www.alberteldar.com að raspköku. Þeir fengu hug- myndina lánaða, aðlöguðu uppskriftina að hráefnum frá Kötlu og úr varð fyrirtakskaka sem er létt og skemmtileg auk þess sem hún er ekki dísæt. gómSæt Tryggvi Magnússon, forstjóri kötlu, gæðir sér á girnilegri raspkökunni sem hann segir frábæra á bragðið. Mynd/GVA auðvelt er að leika sér með þær fjölbreyttu vörur sem Katla framleiðir. Ein skemmtileg útfærsla eru svokall- aðar smákökusamlokur. Það eina sem þarf er tilbúna smáköku- deigið frá Kötlu, sem fæst í sex mismunandi bragðtegundum, glassúr í brúsum sem til eru í fimm litum og svo hinir þjóð- þekktu Kötlu-dropar. Svona er farið að: Smáköku- deigið er skorið niður og skellt í ofninn í átta til tíu mínútur. Glassúrbrúsi er tæmdur niður að miða og í brúsann settar þrjár til fjórar teskeiðar af dropum að eigin vali. Notað er handfang af teskeið til að hræra í blönd- unni og þar með er komið fyrir- taks bragðbætt krem. Síðan er kreminu sprautað á milli tveggja smákaka svo úr verður smáköku- samloka. Hægt er að gera ýmsar út- færslur en hér eru nokkrar hug- myndir: Sítrónudropum er blandað í hvítan glassúr og kreminu spraut- að á milli tveggja engiferkaka. Appelsínudropum er blandað í gulan glassúr og kreminu spraut- að á milli hvítra súkkulaðikaka. Rommdropum er blandað í rauð- an glassúr og blöndunni spraut- að á milli lakkrísbitakaka. Piparmintudropum er blandað í grænan glassúr og blöndunni sprautað á milli dökkra súkkul- aðibitakaka. í konfektgerð Nú hefst tími konfektgerðar á mörgum heimilum. Tilvalið er að nota vörurnar frá Kötlu til að auðvelda sér leikinn. Með því að blanda Kötlu-dropum í glassúr- inn líkt og gert er hér að ofan verður til fyrirtaks fylling inn í konfektmolana. Frumlegar smá- kökusamlokur Búa má til ýmsar skemmtilegar nýjungar úr hrá- efni frá Kötlu. Þar má til dæmis nefna skemmtilegar smákökusamlokur. Einnig má blanda saman Kötlu- glassúr og -dropum svo úr verður bragðgóð fylling í jólakonfektið. 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 4 9 -2 7 5 8 1 7 4 9 -2 6 1 C 1 7 4 9 -2 4 E 0 1 7 4 9 -2 3 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.