Fréttablaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 15
Setningar sem þessar hafa hljómað hvað eftir annað undanfarna daga í eyrum landsmanna: „Alþingismenn, hróflið ekki við hornsteinum íslenskrar menningar, tryggið Ríkisútvarpinu traustan fjárhags- grundvöll“, „Mér þykir vænt um Ríkisútvarpið, ég skora á alþingis- menn að skera ekki frekar niður útvarpsgjaldið“, „Stöndum vörð um Ríkisútvarpið, skerðum ekki útvarpsgjaldið“, „Alþingismenn, þjóðin reiðir sig á Ríkisútvarpið, skerðum ekki útvarpsgjaldið“. Ótalmargar þekktar raddir úr íslensku samfélagi hafa látið í sér heyra með þessu móti til að tjá hug þjóðarinnar – og komust færri að en vildu; þær eru úr öllum geirum samfélagsins, af höfuðborgarsvæðinu og utan af landi, frá leikhúsum og háskólum, jafnt frá manni sem hefur verið kallaður óskabarn þjóðarinnar og hinum óþekkta almenna borgara. Allar þessar raddir eiga eitt sameiginlegt: þær koma frá hollvinum Ríkisútvarpsins. Rík- isútvarpið er vinamargt og ríkt að þessu leyti og hér kemur glöggt fram að á örlagatímum standa allir vinir þess saman, þeir stíga fram og hrópa: „Hingað og ekki lengra, Ríkis útvarpið er okkar, það er okkar arfur og okkar fram- tíð. Hróflið ekki við því, þið sem sitjið við völd.“ Vilji þjóðarinnar Það kom fram í grein sem Svan- hildur Óskarsdóttir skrifaði í Morgunblaðið 23. nóvember sl. að áætlanir um lækkun útvarps- gjalda þýða ekki mikinn sparnað fyrir skattgreiðendur: við mund- um spara tæplega fjórar krónur á dag ef farið væri að tillögum í fjárlagafrumvarpinu um að lækka útvarpsgjöldin. En þessi „sparn- aður“ mundi greiða Ríkisút- varpinu banahögg og það þyrfti þá að skera enn frekar niður í dagskrá og segja enn og aftur upp starfsfólki, nú dagskrárgerðar- mönnum, því að ekki er lengur hægt að skera annars staðar niður – það var gert 2013. Á þessum fáu mánuðum sem ný framkvæmda- stjórn hefur setið að störfum hefur náðst mikil hagræðing og kúvending til frambúðar í rekstri Ríkisútvarpsins – sem þarf samt sem áður að burðast með ósann- gjarnar lífeyrissjóðsskuldir sem erfðust við ohf-væðinguna (eða sem mönnum „yfirsást“ við hana). Alþingismenn eru kosnir full- trúar okkar og verða að hlusta á vilja þjóðarinnar. Var einhver þeirra kosinn á þing með stefnu- yfirlýsingu um að hann eða hún vildi selja RÚV eða svelta það til bana? Þeir sem standa fyrir þess- ari aðför að Ríkisútvarpinu nú ættu að hugleiða hvort þeir hefðu verið kosnir, hefði þessi stefna falist í kosningaloforðum … „Stundum er RÚV eini vinur minn – heilu dagana“ Þetta skrifar eldri kona af lands- byggðinni við færslu á Facebook þar sem hollvinir Ríkisútvarpsins voru hvattir til að láta í sér heyra. Fyrir mörgum er „landsbyggðin“ bara hugtak sem er nauðsynlegt að hampa við hátíðleg tækifæri því að þar býr enn fólk og þar leynast atkvæði, en fólkið þar, hinn almenni borgari, fær ekki oft orðið. Hættum nú að líta á allt sem heitir menning og listir, allt sem ekki verður metið til fjár, sem það sé einskis virði. Það er eðlileg krafa að stofnun eins og Ríkisút- varpið sé rekin í góðu jafnvægi eins og aðrar stofnanir sem hafa það hlutverk að stuðla að velferð almennra borgara og velmegun þeirra. En seljum ekki vin okkar, menningararfinn og framtíð okkar, markaðsöflum sem hafa einungis efnis leg verðmæti og ábata að markmiði. Stöndum vörð um Ríkisútvarpið, skerðum ekki frekar útvarpsgjaldið! Ekki skerða enn frekar útvarpsgjaldið! Ef eitt álver leggst skyndilega af á Íslandi er hætta á miklu efnahagslegu og samfélags- legu tjóni. Bæði eru álverin horn- steinn atvinnulífs í sínu byggðar- lagi en einnig afar mikilvæg stoð útflutnings. Því skyldi ekki tala af léttúð um möguleikann á skyndi- legu brotthvarfi eða lokun álvera. Hundruð starfa, milljarðar í útflutning, afkoma heimila, annarra fyrirtækja og sveitarfé- laga er í húfi. Það er til mikils að vinna að tryggja starfsumhverfi og samkeppnishæfni þessara mikilvægu fyrirtækja. Þetta eru líka ríkir hagsmunir þess fjölbreytta iðnaðar sem þrífst í kringum álverin og Samtök iðnaðarins standa vörð um. Álverin á Íslandi hafa lagt mikið til efnahagslífsins. Árlega streyma til landsins um 200 milljarðar króna og eftir sitja um 80-100 milljarðar í íslensku efnahags- lífi. Um 40 milljarðar fara í kaup fyrirtækjanna á raf- orku, um 25 milljarðar í kaup á vöru og þjónustu og 14 milljarðar í laun og opinber gjöld. Í Hafnarfirði einum og sér nema fasteigna- og hafn- argjöld álversins um hálfum milljarði króna á ári auk þess sem 400-500 manns vinna í tengslum við álverið. Í heild sinni má ætla að eitt álver skapi um 1.000 störf til viðbótar við þá sem starfa beint í álverunum. Yfir 100 fyrirtæki bara í Hafnarfirði þjónusta álverið og vandséð hvernig hægt væri að fylla það skarð sem lokun heils álvers skildi eftir sig. Það munar um eitt álver. Það munar um eitt álver Ef eitt álver leggst skyndilega af á Íslandi er hætta á miklu efnahagslegu og sam- félagslegu tjóni. Það er eðlileg krafa að stofnun eins og Ríkisút- varpið sé rekin í góðu jafnvægi eins og aðrar stofnanir sem hafa það hlutverk að stuðla að vel- ferð almennra borgara og velmegun þeirra. Dominique Plédel Jónsson formaður Hollvina Ríkisútvarpsins Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Samtaka iðnaðarins • R-Line ytra útlit og 18” álfelgur • Litað gler • Alcantara áklæði • Webasto bílahitari með fjarstýringu • Hraðastillir • Bluetooth fyrir farsíma og tónlist • Climatronic - 3ja svæða loftkæling • Bílastæðaaðstoð • Aðfellanlegt dráttarbeisli • Bakkmyndavél • Leiðsögukerfi fyrir Ísland • Panorama sólþak Staðalbúnaður í Tiguan R-Line 4Motion 2.0 TDI dísil, fjórhjóladrifnum og sjálfskiptum Er ekki kominn tími á Tiguan? VW Tiguan R-Line er vel útbúinn með öllu því helsta sem gerir bíl að sportjeppa. Taktu skrefið til fulls og fáðu þér Tiguan. Góða skemmtun! HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirðiwww.volkswagen.is 5.990.000 kr. Sjálfskiptur og fjórhjóla drifinn Tiguan R-Li ne: s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15M i ð V i k u D A G u R 2 . D e s e M B e R 2 0 1 5 0 2 -1 2 -2 0 1 5 1 0 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 4 9 -3 B 1 8 1 7 4 9 -3 9 D C 1 7 4 9 -3 8 A 0 1 7 4 9 -3 7 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.