Fréttablaðið - 02.12.2015, Qupperneq 15
Setningar sem þessar hafa hljómað hvað eftir annað undanfarna daga í eyrum
landsmanna: „Alþingismenn,
hróflið ekki við hornsteinum
íslenskrar menningar, tryggið
Ríkisútvarpinu traustan fjárhags-
grundvöll“, „Mér þykir vænt um
Ríkisútvarpið, ég skora á alþingis-
menn að skera ekki frekar niður
útvarpsgjaldið“, „Stöndum vörð
um Ríkisútvarpið, skerðum ekki
útvarpsgjaldið“, „Alþingismenn,
þjóðin reiðir sig á Ríkisútvarpið,
skerðum ekki útvarpsgjaldið“.
Ótalmargar þekktar raddir úr
íslensku samfélagi hafa látið í
sér heyra með þessu móti til að
tjá hug þjóðarinnar – og komust
færri að en vildu; þær eru úr
öllum geirum samfélagsins, af
höfuðborgarsvæðinu og utan af
landi, frá leikhúsum og háskólum,
jafnt frá manni sem hefur verið
kallaður óskabarn þjóðarinnar
og hinum óþekkta almenna
borgara. Allar þessar raddir eiga
eitt sameiginlegt: þær koma frá
hollvinum Ríkisútvarpsins. Rík-
isútvarpið er vinamargt og ríkt að
þessu leyti og hér kemur glöggt
fram að á örlagatímum standa
allir vinir þess saman, þeir stíga
fram og hrópa: „Hingað og ekki
lengra, Ríkis útvarpið er okkar,
það er okkar arfur og okkar fram-
tíð. Hróflið ekki við því, þið sem
sitjið við völd.“
Vilji þjóðarinnar
Það kom fram í grein sem Svan-
hildur Óskarsdóttir skrifaði í
Morgunblaðið 23. nóvember sl.
að áætlanir um lækkun útvarps-
gjalda þýða ekki mikinn sparnað
fyrir skattgreiðendur: við mund-
um spara tæplega fjórar krónur
á dag ef farið væri að tillögum í
fjárlagafrumvarpinu um að lækka
útvarpsgjöldin. En þessi „sparn-
aður“ mundi greiða Ríkisút-
varpinu banahögg og það þyrfti
þá að skera enn frekar niður í
dagskrá og segja enn og aftur upp
starfsfólki, nú dagskrárgerðar-
mönnum, því að ekki er lengur
hægt að skera annars staðar niður
– það var gert 2013. Á þessum fáu
mánuðum sem ný framkvæmda-
stjórn hefur setið að störfum
hefur náðst mikil hagræðing og
kúvending til frambúðar í rekstri
Ríkisútvarpsins – sem þarf samt
sem áður að burðast með ósann-
gjarnar lífeyrissjóðsskuldir sem
erfðust við ohf-væðinguna (eða
sem mönnum „yfirsást“ við hana).
Alþingismenn eru kosnir full-
trúar okkar og verða að hlusta
á vilja þjóðarinnar. Var einhver
þeirra kosinn á þing með stefnu-
yfirlýsingu um að hann eða hún
vildi selja RÚV eða svelta það til
bana? Þeir sem standa fyrir þess-
ari aðför að Ríkisútvarpinu nú
ættu að hugleiða hvort þeir hefðu
verið kosnir, hefði þessi stefna
falist í kosningaloforðum …
„Stundum er RÚV eini vinur
minn – heilu dagana“
Þetta skrifar eldri kona af lands-
byggðinni við færslu á Facebook
þar sem hollvinir Ríkisútvarpsins
voru hvattir til að láta í sér heyra.
Fyrir mörgum er „landsbyggðin“
bara hugtak sem er nauðsynlegt
að hampa við hátíðleg tækifæri
því að þar býr enn fólk og þar
leynast atkvæði, en fólkið þar,
hinn almenni borgari, fær ekki
oft orðið.
Hættum nú að líta á allt sem
heitir menning og listir, allt sem
ekki verður metið til fjár, sem
það sé einskis virði. Það er eðlileg
krafa að stofnun eins og Ríkisút-
varpið sé rekin í góðu jafnvægi
eins og aðrar stofnanir sem hafa
það hlutverk að stuðla að velferð
almennra borgara og velmegun
þeirra. En seljum ekki vin okkar,
menningararfinn og framtíð
okkar, markaðsöflum sem hafa
einungis efnis leg verðmæti og
ábata að markmiði. Stöndum
vörð um Ríkisútvarpið, skerðum
ekki frekar útvarpsgjaldið!
Ekki skerða enn frekar útvarpsgjaldið!
Ef eitt álver leggst skyndilega af á Íslandi er hætta á miklu efnahagslegu og samfélags-
legu tjóni. Bæði eru álverin horn-
steinn atvinnulífs í sínu byggðar-
lagi en einnig afar mikilvæg stoð
útflutnings. Því skyldi ekki tala af
léttúð um möguleikann á skyndi-
legu brotthvarfi eða lokun álvera.
Hundruð starfa, milljarðar í
útflutning, afkoma heimila,
annarra fyrirtækja og sveitarfé-
laga er í húfi. Það er til mikils að
vinna að tryggja starfsumhverfi
og samkeppnishæfni þessara
mikilvægu fyrirtækja. Þetta eru líka ríkir hagsmunir
þess fjölbreytta iðnaðar sem þrífst í kringum álverin
og Samtök iðnaðarins standa vörð um.
Álverin á Íslandi hafa lagt mikið til efnahagslífsins.
Árlega streyma til landsins um 200 milljarðar króna
og eftir sitja um 80-100 milljarðar í íslensku efnahags-
lífi. Um 40 milljarðar fara í kaup fyrirtækjanna á raf-
orku, um 25 milljarðar í kaup á vöru og þjónustu og
14 milljarðar í laun og opinber gjöld.
Í Hafnarfirði einum og sér nema fasteigna- og hafn-
argjöld álversins um hálfum milljarði króna á ári auk
þess sem 400-500 manns vinna í tengslum við álverið.
Í heild sinni má ætla að eitt álver skapi um 1.000 störf
til viðbótar við þá sem starfa beint í álverunum. Yfir
100 fyrirtæki bara í Hafnarfirði þjónusta álverið og
vandséð hvernig hægt væri að fylla það skarð sem
lokun heils álvers skildi eftir sig. Það munar um eitt
álver.
Það munar um
eitt álver
Ef eitt álver leggst skyndilega af á Íslandi
er hætta á miklu efnahagslegu og sam-
félagslegu tjóni.
Það er eðlileg krafa að
stofnun eins og Ríkisút-
varpið sé rekin í góðu
jafnvægi eins og aðrar
stofnanir sem hafa það
hlutverk að stuðla að vel-
ferð almennra borgara og
velmegun þeirra.
Dominique
Plédel
Jónsson
formaður Hollvina
Ríkisútvarpsins
Guðrún
Hafsteinsdóttir
formaður Samtaka
iðnaðarins
• R-Line ytra útlit og 18” álfelgur
• Litað gler
• Alcantara áklæði
• Webasto bílahitari með fjarstýringu
• Hraðastillir
• Bluetooth fyrir farsíma og tónlist
• Climatronic - 3ja svæða loftkæling
• Bílastæðaaðstoð
• Aðfellanlegt dráttarbeisli
• Bakkmyndavél
• Leiðsögukerfi fyrir Ísland
• Panorama sólþak
Staðalbúnaður í Tiguan R-Line 4Motion 2.0 TDI dísil, fjórhjóladrifnum og sjálfskiptum
Er ekki kominn
tími á Tiguan?
VW Tiguan R-Line er vel útbúinn með öllu því helsta sem gerir bíl að sportjeppa.
Taktu skrefið til fulls og fáðu þér Tiguan. Góða skemmtun!
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirðiwww.volkswagen.is
5.990.000
kr.
Sjálfskiptur
og fjórhjóla
drifinn
Tiguan R-Li
ne:
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15M i ð V i k u D A G u R 2 . D e s e M B e R 2 0 1 5
0
2
-1
2
-2
0
1
5
1
0
:5
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
4
9
-3
B
1
8
1
7
4
9
-3
9
D
C
1
7
4
9
-3
8
A
0
1
7
4
9
-3
7
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
1
2
_
2
0
1
5
C
M
Y
K